Fréttablaðið - 24.03.2011, Blaðsíða 28
24. mars 2011 FIMMTUDAGUR28
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi
Þorsteinn Pálmi
Guðmundsson
Steini spil
Furugrund 8, Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Fossheimum
föstudaginn 18. mars. Útför hans fer fram frá
Selfosskirkju föstudaginn 25. mars kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á
Vinafélag Fossheima og Ljósheima.
Unnur G. Jónasdóttir
Soffía G. Þorsteinsdóttir Eiður Steingrímsson
Guðmundur Þorsteinsson Dröfn Sigurðardóttir
Silja S. Þorsteinsdóttir Lúðvíg Þorfinnsson
barnabörn.
Elskulegur sonur minn, bróðir
og mágur
Steindór Gunnarsson
varð bráðkvaddur á Kanaríeyjum 19. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Guðrún Sigbjörnsdóttir
Kristín Gunnarsdóttir Gunnar Kristinsson
Gunnar Gunnarsson
Guðbjörg Þorvaldsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma
Guðlaug Hallbjörnsdóttir
lést á Landakotsspítala aðfaranótt miðvikudagsins
23. mars. Útför verður auglýst síðar.
Hallbjörn Sævars Hrönn Þormarsdóttir
Magnús Þór Vilbergsson Harpa Sæþórsdóttir
Sigurður Hallbjörnsson Guðrún Andrésdóttir
Hilmar Kári Hallbjörnsson Sjöfn Finnbjörnsdóttir
Guðlaug E. Hallbjörnsdóttir
og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu
Guðfinnu Óskarsdóttur.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk D-deildar á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja fyrir einstaka umhyggju og hlýju.
Guðmundur Óskar Ívarsson
Magnús Guðmundsson Hulda Halldórsdóttir
Margeir Óskar Guðmundsson Marisa S. Sicat
María Guðmundsdóttir Unnar Ragnarsson
Guðný Guðmundsdóttir Hersir Sigurgeirsson
Bragi Guðmundsson Valgerður Þorvaldsdóttir
Þórdís Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma
Helga Kristjánsdóttir
Þorláksgeisla 1, Reykjavík,
lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn 15. mars.
Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn
25. mars kl. 13.00.
Þorsteinn Sigurðsson
Kristján Helgason
Sigurður Þórir Þorsteinsson Hildur Hrönn Oddsdóttir
Halldór Örn Þorsteinsson Lilja Björg Sigurjónsdóttir
barnabörn
TOMMY HILFIGER TÍSKUHÖNNUÐUR er 60 ára í dag.
„Ég vissi upp á hár hvað ég vildi gera: Ég vildi hanna
fatnað sem endurspeglaði smekk minn og lífsstíl.“
60
Kór Bústaðakirkju, ásamt einsöngvur-
um og Jónasi Þóri organista, heldur svo-
kallaða Ave Maríu tónleika í Bústaða-
kirkju í kvöld klukkan 20, á sjáfum
Boðunardegi Maríu. Tónleikarnir eru
þeir fyrstu í röð tónleika sem haldnir
verða á fertugasta afmælisári kirkj-
unnar.
„Á þessum fyrstu tónleikum afmæl-
isársins verða nokkur af fallegustu Ave
Mariu lögum, eftir íslensk og erlend tón-
skáld, flutt af einsöngvurum kórsins,“
segir Jóhann Friðgeir Valdimarsson
sem jafnframt er formaður kórsins.
Þeir einsöngvarar sem fram koma eru
Anna Sigríður Helgadóttir, Edda Aust-
mann, Gréta Hergils Valdimarsdóttir,
Sibylle Köll, Svanur Valgeirsson, Svava
Kristín Ingólfsdóttir og Sæberg Sig-
urðsson. Þorsteinn Reynisson spilar á
harmonikku og Örnólfur Kristjánsson
á selló.
„Við vorum með svipaða tónleika í
fyrra í Kristskirkju og vorum þá hálf-
gerðir frumkvöðlar í því að halda Ave
Mariu tónleika eftir áralangt hlé á slík-
um tónleikum. Ave Maria tónleikar nutu
mikilla vinsælda hér á árum áður,“ segir
Jóhann og bætir við að á tónleikunum
í fyrra hafi kirkjan troðfyllst. „Við
ákváðum því að endurtaka leikinn en
við munum halda þónokkra tónleika á
árinu, vortónleikar og kirkjustarfið allt
verður mjög fyrirferðarmikið á árinu.“
Jóhann Friðgeir segir að nær hvert
einasta tónskáld hafi samið lag tileinkað
heilagri Maríu. „Þessi lög, eins og allir
vita, bræða mann og við eigum okkar
íslensku tónskáld sem hafa þar samið
ótrúlega falleg lög. Það má ekki gleyma
að nú hefur einn helsti píanó- og org-
elsnillingur þjóðarinnar, Jónas Þórir,
tekið við framstíðarstarfi sem organisti
Bústaðakirkju.” Jóhann Friðgeir bætir
því við að Jónas Þórir hefur komið því
á koppinn að kórinn heldur nú í júní til
Kanada og syngur á 200 ára afmælishá-
tíð Jóns Sigurðssonar.”
Tónleikarnir hefjast eins og áður
sagði klukkan 20 og á sama tíma opnar
sýning á mósaíkmyndum af Maríu guðs-
móður eftir Fannýju Jómundsdóttur í
anddyri kirkjunnar. Þá les séra Pálmi
Matthíasson ritningarorð.
juliam@frettabladid.is
KÓR BÚSTAÐAKIRKJU MEÐ TÓNLEIKA: Á FERTUGASTA AFMÆLISÁRI KIRKJUNNAR
SUNGIÐ INN Í AFMÆLISÁRIÐ
SKEMMTILEGT AFMÆLISÁR Jóhann Friðgeir Valdimarsson formaður Kórs Bústaðakirkju lofar
skemmtilegu afmælisári. Jónas Þórir er nýr stjórnandi kórsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Merkisatburðir
1401 Timur Lenk, höfðingi Mongóla, leggur undir sig Damaskus.
1548 Gissur Einarsson biskup í Skálholti andast. Hann var fyrsti
lútherski biskupinn á Íslandi.
1603 Jakob 6. Skotakonungur verður jafnframt Jakob 1. Englands-
konungur. Er þar með komið á konungssambandi á milli
landanna tveggja.
1931 Fluglínutæki notuð í fyrsta skipti til björgunar á Íslandi.
Slysavarnadeildin Þorbjörn bjargar 38 manna áhöfn franska
togarans Cap Fagnet frá Fécamp þegar hann strandar í
slæmu veðri við bæinn Hraun austan Grindavíkur aðfara-
nótt 24. mars.
1958 Saud, konungur Sádí-Arabíu, veitir Faisal bróður sínum
aukin völd til þess að stemma stigu við versnandi afkomu
ríkisins.
1959 Reglugerð sett um stefnuljós á bifreiðum og önnur um
umferðarmerki.
1973 Kjarvalsstaðir á Miklatúni í Reykjavík formlega opnaðir með
stórri sýningu á verkum Jóhannesar S. Kjarvals listmálara.
1974 Varðskipið Týr kemur til landsins.
1976 Argentínski herinn steypir Ísabellu Perón af stóli.
1999 NATO varpar sprengjum á skotmörk í Júgóslavíu.
Á þessum degi árið 1976 sendi dóms-
málaráðuneytið öllum lögreglu- og
fangelsisstjórum landsins bréf þar sem
tilgreint var að notkun á hljóðtækjum
til að róa fanga væri bönnuð. Ábending
hafði borist stjórn Íslenskrar réttarverndar
um að sérstök hátíðnihljóðtæki væru
notuð í fangelsum hér á landi. Samkvæmt
lýsingu voru tækin tengd hátalarakerfi inn
í fangaklefana og átti hljóðið að róa fanga
sem væru með óspektir og hávaða. Fullyrt
var að um pyntingartæki væri að ræða.
Í kjölfarið sendi stjórn félagsins menn
á sínum snærum í heimsókn í þau tvö
fangelsi sem tiltekin voru í bréfinu og
staðfestu að tækin væru til staðar en
ekki hafði verið veitt heimild fyrir notkun
þeirra. Annað tækið hafði verið smíðað
hér á landi en hitt tækið hafði verið
pantað erlendis frá. Að sögn Baldurs Möll-
ers, þáverandi ráðuneytisstjóra í dóms-
málaráðuneytinu, voru tækin taltæki sem
sónn var hafður á.
ÞETTA GERÐIST: 24. MARS ÁRIÐ 1976
Hátíðnitæki bönnuð