Fréttablaðið - 24.03.2011, Blaðsíða 64
24. mars 2011 FIMMTUDAGUR48
sport@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI Það var sannkallaður
háspennuleikur í Keflavík í gær
þegar heimamenn unnu ÍR-inga,
95-90, í oddaleik átta liða úrslita
Iceland Express deildar karla, en
framlengja þurfti leikinn.
ÍR-ingar höfðu frum-
kvæðið í venjuleg-
um leiktíma en eftir
gríðarlega baráttu
náðu Keflvíkingar
að jafna leikinn.
Keflvíkingar
lögðu grunninn
að sigrinum á
fyrstu mínútum
framlengingar-
innar þegar þeir
skoruðu fyrstu átta
stigin og ÍR-ingar
virtust fara á taug-
um. Frábær sigur
Keflvíkinga, sem
gefur góð fyrir-
heit fyrir undanúrslitin gegn KR.
Sigurður Þorsteinsson, leikmaður
Keflvíkinga, var stórkostlegur en
hann skoraði 26 stig. Sveinbjörn
Claessen var atkvæðamestur hjá
gestunum með 19 stig.
„Þetta var virkilega sætt þó
svo að sóknarleikur okkar
hafi verið skelfilegur,“ sagði
Sigurður Þorsteinsson eftir
sigur inn í gær.
„Í kvöld náðum við að lag-
færa varnarleikinn okkar en
hann hefur verð heldur léleg-
ur það sem af er. Við
náðum oft að stoppa þá í leikn-
um í kvöld en nýttum okkar það
ekki nægilega vel. Síðan fór
sóknar leikur okkar að ganga,
við náum að jafna leikinn og
klárum þá síðan framlenging-
unni. Það var eins og það vant-
aði hausinn á okkur á tíma-
bili en við hleyptum
þeim aldrei of langt
frá okkur. Síðan í
lokin vissi ég allt-
af að við myndum
vinna þennan
leik, við erum
með þannig lið sem gefst aldrei
upp,“ sagði Sigurður.
„Ég var búinn að undir-
búa mig fyrir sigur hérna í
lokin,“ sagði Gunnar Sverris-
son, þjálfari ÍR-inga, eftir
tapið í gær.
„Núna getum við nagað á
okkur handarbakið eftir
að hafa misnotað öll
þessi vítaskot í lokin
á venjulegum leik-
tíma. Við fengum
marga mögu-
leika til þess
að stinga þá af
í leiknum en
náðum ekki að
nýta okkur það og því
fór sem fór. Þetta er
að vissu leyti frábær
endir á ótrúlegum
vetri,“ sagði Pétur.
- sáp
BJARNI HÓLM AÐALSTEINSSON verður ekki áfram með Keflvíkingum í Pepsi-deild karla í fótbolta því hann
hefur skrifað undir tveggja ára samning við norska C-deildarfélagið Levanger. Rúnar Páll Sigmundsson, fyrrverandi þjálfari
HK. er þjálfari Levanger auk þess sem Hörður Magnússon, fyrrverandi leikmaður HK, er einnig á mála hjá félaginu.
- vélar
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0000 · www.aflvelar.is
- sala
- varahlutir
- þjónusta
HANDBOLTI Heil umferð fer fram í
N1-deild karla í kvöld og líkt og
í síðustu umferð eiga Akureyr-
ingar möguleika á að tryggja sér
deildarmeistaratitilinn, sem verð-
ur fyrsti titillinn í sögu félagsins.
Akureyri, sem er með fimm
stiga forskot á FH, fær Hauka í
heimsókn en FH tekur á móti Val.
Eftir leikinn verða aðeins sex
stig eftir í pottinum.
Það dugar FH-ingum ekki
að ná Akureyri að stigum
því norðan menn eru betri í
innbyrðis viðureignum liðanna.
Aðrir leikir kvöldsins eru á milli
Fram og Selfoss í Safamýri og
á milli Aftureldingar og HK að
Varmá. Allir leikir hefjast klukk-
an 19.30 nema leikur Akureyrar
og Hauka, sem hefst klukkan
19.00. - óój
Heil umferð í N1-deild karla:
Klárar Akureyri
titilinn í kvöld?
BJARNI FRITZSON Í leik á móti Haukum
fyrr í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Iceland Express deild karla
Snæfell - Haukar 87-73 (46-42)
Stig Snæfells: Ryan Amaroso 27/15 fráköst,
Sean Burton 14, Jón Ólafur Jónsson 13, Pálmi
Freyr Sigurgeirsson 13, Zeljko Bojovic 9/8 fráköst,
Sveinn Arnar Davíðsson 6, Emil Þór Jóhannsson
4, Atli Rafn Hreinsson 1.
Stig Hauka: Gerald Robinson 22/14 fráköst,
Semaj Inge 18/8 fráköst, Örn Sigurðarson 16/6
fráköst, Haukur Óskarsson 8, Sævar Ingi Haralds-
son 6, Óskar Ingi Magnússon 2, Emil Barja 1.
Snæfell vann einvígið, 2-1.
Keflavík - ÍR 95-90 (41-45, 78-78)
Stig Keflavíkur: Sigurður Gunnar Þorsteinsson
26, Andrija Ciric 21, Thomas Sanders 15/9
fráköst/6 stolnir, Hörður Axel Vilhjálmsson
11, Magnús Þór Gunnarsson 9, Þröstur Leó
Jóhannsson 8, Gunnar Einarsson 3, Jón Nordal
Hafsteinsson 2.
Stig ÍR: ÍR: Sveinbjörn Claessen 19, Nemanja
Sovic 18/7 fráköst, Kelly Biedler 15/13 fráköst,
James Bartolotta 14, Eiríkur Önundarson 11, Níels
Dungal 11, Hjalti Friðriksson 2.
Keflavík vann einvígið, 2-1.
Grindavík - Stjarnan 66-69 (34-39)
Stig Grindavíkur: Mladen Soskic 16, Páll Axel
Vilbergsson 13, Ólafur Ólafsson 10, Ryan Pett-
inella 9/14 fráköst, Þorleifur Ólafsson 9, Ómar
Örn Sævarsson 4/9 fráköst, Björn Steinar Brynj-
ólfsson 3, Nick Bradford 2.
Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 21/5 fráköst/8
stoðsendingar, Renato Lindmets 18/8 fráköst,
Kjartan Atli Kjartansson 11, Fannar Freyr Helgason
8, Jovan Zdravevski 8/8 fráköst, Daníel G. Guð-
mundsson 3.
Stjarnan vann einvígið, 2-1.
UNDANÚRSLITIN
Snæfell - Stjarnan
KR - Keflavík
Undanúrslitin hefjast á sunnudagskvöldið.
1. deild karla
Þór, Akureyri - Valur 74-96 (41-48)
Stig Þórs: Óðinn Ásgeirsson 21/13 fráköst,
Dimitar Petrushev 17, Konrad Tota 17/8 fráköst,
Ólafur Torfason 12/9 fráköst, Wesley Hsu 3, Hrafn
Jóhannesson 2, Benedikt Eggert Pálsson 2.
Stig Vals: Calvin Wooten 32/7 stoðsendingar,
Philip Perre 24/8 fráköst, Sigmar Egilsson
12, Snorri Páll Sigurðsson 11, Björgvin Rúnar
Valentínusson 5, Hörður Helgi Hreiðarsson 4,
Birgir Björn Pétursson 3, Alexander Dungal 2,
Hörður Nikulásson 2, Pétur Þór Jakobsson 1.
Þór, Þorlákshöfn og Valur leika í úrvalsdeildinni
á næsta ári.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Undirbúningur U-21
landsliðs Íslands fyrir EM í Dan-
mörku heldur áfram í dag er
strákarnir mæta Úkraínu ytra
klukkan 17.30. Margir af lykil-
mönnum liðsins úr undankeppn-
inni eru þó ekki með í dag þar
sem þeir voru valdir í A-lands-
liðið sem mætir Kýpur í undan-
keppni EM 2012 á laugardaginn.
Liðið heldur svo næst til Eng-
lands, þar sem það mætir heima-
mönnum á mánudagskvöldið.
Ekki er útilokað að Eyjólfur muni
endurheimta einhverja leikmenn
úr A-liðinu fyrir þann leik. - esá
U-21 landslið Íslands:
Vináttuleikur í
Úkraínu í dag
EYJÓLFUR SVERRISSON Er án margra
sterkustu leikmanna sinna í Úkraínu í
dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI Lið Vals er komið
aftur upp í úrvalsdeild karla
í körfubolta eftir sigur á Þór,
Akureyri, í oddaleik í rimmu
liðanna um hvort liðið fylgir Þór
frá Þorlákshöfn upp úr fyrstu
deildinni. Valur vann leikinn í
gærkvöldi, 94-76, og einvígið 2-1.
Allir leikirnir í rimmunni unnust
á útivelli.
Valsmenn léku síðast í úrvals-
deild árið 2003. - esá
Valur í úrvalsdeild karla:
Átta ára bið á
enda hjá Val
KOMINN Í UNDANÚRSLIT
Guðjón Skúlason, þjálfari
Keflavíkur.
GLÖTUÐ TÆKIFÆRI
Gunnar Sverrisson,
þjálfari ÍR.
KÖRFUBOLTI „Ég tók sálfræði „703“
á liðið eftir tapleikinn í Hafnar-
firði og það var greinilega að skila
sér. Menn voru einfaldlega klárir
í þetta verkefni og ég er stoltur af
strákunum,“ sagði Ingi Þór Stein-
þórsson, þjálfari Íslandsmeistara-
liðs Snæfells eftir 87-73 sigur liðs-
ins gegn nýliðum Hauka í oddaleik
í fyrstu umferð úrslitakeppninnar
í Iceland Express deildinni í körfu-
knattleik í gær. Snæfell mætir
Stjörnunni í undanúrslitum og
er ljóst að það verður áhugaverð
rimma.
Það er óhætt að segja að Haukar
hafi komið flestum á óvart í fyrstu
tveimur leikjunum þar sem hægur
sóknarleikur liðsins var helsta
vopn þess. Í gær náðu heimamenn
að finna svörin við því og mun
meiri ákefð var í leik liðsins í vörn
– og sókn.
Í stuttu máli má lýsa leiknum í
gær með þeim hætti að miðherji
Snæfells, Ryan Amoroso, hafi
vaknað af værum blundi sem stað-
ið hefur yfir í nokkrar vikur. Hann
skoraði alls 27 stig í gær og tók
15 fráköst og það var allt
annað að sjá til Snæfells-
liðsins með Bandaríkja-
manninn í sínu besta
ástandi. Sean Burton er
einnig að ná sér á strik
en hann meiddist á ökkla
í fyrsta leiknum gegn
Haukum og var langt frá
sínu besta í útileikn-
um. Jón Ólaf-
ur Jónsson,
eða „Nonni
Mæju“, var
öf lugur í
sóknarleikn-
um líkt og
Pálmi Freyr
Sigurgeirs-
son og Zeljko
Bojovic.
Staða n va r
1 6 -1 5 f y r i r
Hauka eft ir
fyrsta leikhluta
en heimamenn
náðu fjögurra
stiga forskoti
fyrir hálfleik,
46-42. Í þriðja
leikhluta má
segja að Snæ-
fellingar hafi
gert út um leikinn með því að
skora 10 stig í röð og þeir litu
aldrei um öxl eftir það. „Við
náðum ekki að halda
hraðanum niðri eins
og í fyrstu tveim-
ur leikjunum og
það varð okkur
að falli,“ sagði
Sævar Ingi
Haralds-
son, leik-
stjórnandi
Hauka,
eftir leik-
inn. Sævar
er „öldungur“ í hinu kornunga
Haukaliði þrátt fyrir að vera
aðeins 27 ára gamall og hann er
sannfærður um að Haukar eigi
eftir að blanda sér í baráttuna um
meistaratitilinn á næstu árum.
„Liðið er ungt og á framtíðina
fyrir sér. Ég kvíði ekki framhald-
inu,“ bætti Sævar við.
Það er ljóst að titilvörn Snæfells
verður gríðarlega erfið og það er
margt sem liðið þarf að laga fyrir
rimmuna gegn Stjörnunni. Bar-
áttuandinn sem hefur einkennt
liðið var til staðar í gær en ekki í
fyrstu tveimur leikjunum. „Ég veit
ekki hvort við erum orðnir svona
góðir með okkur en við fórum vel
yfir þetta á æfingum og fundum
fyrir oddaleikinn. Ingi þjálfari
orðaði það þannig að við værum
að vanvirða Snæfellsbúninginn og
andstæðingana með þessu hugar-
fari og við tókum það til okkar,“
sagði „Nonni Mæju“ í leikslok.
seth@frettabladid.is
Ryan Amoroso vaknaði
loks af sínum væra blundi
Ingi Þór Steinþórsson tók sálfræði „703“ áfanga á Snæfellsliðið fyrir oddaleik-
inn gegn Haukum. Öruggur 87-73 sigur skilaði meistaraliðinu í undanúrslit.
Snæfell mætir Stjörnunni í sinni undanúrslitarimmu í úrslitakeppninni.
ÖFLUGUR Ryan Amoroso skilaði sínu og gott betur fyrir Snæfellinga í gær. Hér er
hann í leiknum gegn Haukum. MYND/ÞORSTEINN EYÞÓRSSON
Keflvíkingar nýttu sér reynsluna er þeir unnu sigur á ÍR í framlengdum leik í Sláturhúsinu í gær:
Taugarnar brugðust hjá ÍR á ögurstundu
ÞARF AÐ PÚLA
Ingi Þór Steinþórsson,
þjálfari Snæfells, var
búinn að lofa svoköll-
uðum sjálfsmorðs-
spretti ef sínir menn
ynnu og þarf hann nú
að hlaupa fjórtán slíka.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI