Fréttablaðið - 24.03.2011, Blaðsíða 63
FIMMTUDAGUR 24. mars 2011 47
Hljómsveitin ASA Tríó heldur
útgáfutónleika í Slippsalnum í
kvöld vegna plötunnar ASA Trio
Plays the Music of Thelonious
Monk sem er nýkominn út. Þar er
að finna tónlist eftir bandaríska
píanistann og tónskáldið Thelon-
ious Monk sem lést árið 1982.
Þetta er fyrsta plata tríósins, sem
samanstendur af þeim Andrési
Þór Gunnlaugssyni á gítar, Scott
McLemore á trommur og Agnari
Má Magnússyni á hammond orgel.
Tríóið hefur áður gefið út niður-
hal af tvennum tónleikaupptökum
á vefsíðu sinni asa-trio.com. Önnur
upptakan er með plötunni A Love
Supreme með John Coltrane og hin
með blandaðri efnisskrá. Útgáfu-
tónleikarnir í kvöld hefjast klukk-
an 20.30 og er aðgangseyrir 1.500
krónur. Nýja platan verður í boði á
tilboðsverði.
ASA fagnar útgáfu
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Andrés Þór Gunn-
laugsson og félagar í ASA Tríói halda
útgáfutónleika í kvöld.
Útvarpsmaðurinn og lagahöf-
undurinn Jón Múli Árnason hefði
orðið níræður fimmtudaginn 31.
mars næstkomandi. Í tilefni af
því verður efnt til tónleika í Saln-
um í Kópavogi þar sem Ragnar
Bjarnason, Ellen Kristjánsdóttir
og Sigurður Guðmundsson munu
syngja mörg þekktustu lög Jóns
Múla við texta Jónasar bróður
hans. Að auki má gera ráð fyrir
að óvæntir gestir heiðri sam-
komuna með söng sínum og leik.
Hljómsveitina skipa Eyþór Gunn-
arsson, Óskar Guðjónsson, Scott
MacLemore og Valdimar Kol-
beinn Sigurjónsson. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20.
Syngja lög
Jóns Múla
JÓN MÚLI Útvarpsmaðurinn og lagahöf-
undurinn hefði orðið níræður 31. mars.
Leikarinn Robert Pattinson,
sem sló í gegn í Twilight-mynd-
unum, segist ekki lifa spennandi
lífi í frítíma sínum. „Ég reyni að
horfa á kvikmyndir en ég held
athyglinni svo stutt að ég horfi
bara í tuttugu mínútur og fer þá
að spila leik á iPhone-símanum
mínum sem heitir Fall Down,“
segir Pattinson. „Það fáránlega
er að ég get setið og spilað hann
í sextán klukkustundir án þess
að reyna nokkru sinni á heilann í
mér.“ Þegar Pattinson er ekki að
spila tölvuleik er hann að kynna
myndina Water for Elephants þar
sem hann leikur á móti Reese
Witherspoon.
Tölvuleikur í
frítímanum
ÓSPENNANDI Pattinson segist ekki lifa
spennandi lífi í frítíma sínum.
Breska glamúrgellan Katie Price
sér ekki eftir hjónabandi sínu með
popparanum Peter Andre. Hún
hefði engu að síður viljað að sviðs-
ljósið hefði ekki beinst eins mikið
að þeim og raun bar vitni.
Price og Andre gengu í hjóna-
band árið 2005. Þau komu fram í
fjölda raunveruleikaþátta í sjón-
varpinu og í alls kyns tímaritum.
Sonur þeirra Junior sem er fimm
ára og hin þriggja ára Princess
voru oft með þeim í sviðsljósi fjöl-
miðlanna. „Á þessum tíma var
annað starfslið í kringum mig og
allt snerist um myndatökur og
sjónvarp,“ sagði hin 32 ára Price.
„Núna er ég laus við það en þegar
ég horfi aftur hugsa ég: „Var þetta
raunverulegt samband þegar allt
kemur til alls?“. Ég sé ekki eftir
neinu en það er eitthvað rangt við
að byggja samband á sjónvarps-
þáttum og tímaritum,“ sagði hún.
Price og Andre skildu fyrir
tveimur árum en skömmu síðar
giftist hún bardagakappanum Alex
Reid. Það hjónaband leystist upp í
janúar síðastliðnum og síðan þá
hefur hún átt í ástarsambandi með
argentínsku fyrirsætunni Leandro
Penna.
Sviðsljósið eyðilagði hjónabandið
ÞEGAR ALLT LÉK Í LYNDI Katie Price og
Peter Andre á hjónabandsárunum.