Fréttablaðið - 24.03.2011, Síða 16

Fréttablaðið - 24.03.2011, Síða 16
24. mars 2011 FIMMTUDAGUR16 16 hagur heimilanna Senn líður að fermingum þeirra barna sem fædd eru árið 1997. Fjölskyldur um land allt standa nú í ströngu við skipulagningu fjölmennra veisluhalda. En hvað kostar að halda ferm- ingarveislur í dag? Viðburðaþjónustan Practical aðstoðaði Fréttablaðið við lauslega kostnaðaráætlun íslenskrar ferm- ingarveislu. Sé gert ráð fyrir því að þeir vinir og ættingjar sem koma í fermingarveisluna séu um 70, má gera ráð fyrir tæpum 300 þúsund krónum í heildarkostnað. Er þar miðað við að veisluhaldarar kaupi inn og lagi matinn sjálfir, fyrir utan eina aðkeypta fermingar- köku. Aníta Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá Practical, segir að við skipu- lagningu stórs viðburðar sem þessa gerist það oft að fólk reikni dæmið ekki alveg til enda. „Við göngum oft út frá því að það sé ódýrara að gera hlutina sjálf,“ segir Aníta. „En þá gleymist að áætla allt það hráefni sem þarf að kaupa inn auk tímans sem fer í undirbúning.“ Aníta segist hafa heyrt af vina- hópum og saumaklúbbum sem hafa skipt verkefnum á milli sín þegar kemur að veislum barnanna. „Það er mjög sniðugt og þannig má að sjálfsögðu deila kostnaði og því álagi sem fylgir undirbúningi.“ Valmöguleikarnir sem fólk stendur frammi fyrir þegar skipu- leggja á fermingarveislu eru ótal- margir. Hver og ein fjölskylda verður að meta hvernig hún vill verja tímanum sínum áður en veislan gengur í garð. Í kostnaðaráætlun Fréttablaðs- ins og Practical er gert ráð fyrir 1.000 krónum í mat fyrir hvern gest. sunna@frettabladid.is Venjuleg veisla kostar 250.000 Á FERMINGARDAGINN Að mörgu er að huga þegar kemur að fermingu barna og er sjálf athöfnin einungis lítill partur af því sem koma skal á fermingardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Lauslega áætlaður kostnaður við fermingarveislu Efni Kostnaður Miðað við Salarleiga 70.000 krónur Sal fyrir 70 til 80 manns þar sem leyfilegt er að koma með veitingar með sér. Matur 70.000 krónur Hráefniskostnað (tertur og drykkur) sem samsvarar 1.000 krónum á mann, heimatilbúinn matur. Þjónusta í sal 12.000 krónur Einn starfsmaður í 4 klukkutíma Kransakaka 31.500 krónur Miðað við 450 krónur á mann (aðkeypt) Boðskort 16.350 krónur Hönnun, prent og umslög (50 stykki) og póstburðargjald. Skreytingar 35.000 krónur Miðað við servíettur, kerti, gestabók og skreytingar á matarborð Alls kostnaður við veislu: 234.850 krónur Athugið að ofangreint er einungis áætlaður meðalkostnaður við keypta þjónustu og vörur. Lauslega áætlaður kostnaður fermingar- fatnaðar Stúlka Kostnaður Kjóll 11.000 krónur Sokkabuxur 3.000 krónur Skór 10.000 krónur Fatnaður stúlku: 24.000 krónur Drengur Jakkaföt 25.000 krónur Skyrta 6.000 krónur Bindi 3.000 krónur Skór 10.000 krónur Fatnaður drengs: 44.000 krónur Friðrik Skúlason, stofnandi og framkvæmdastjóri sam- nefnds upplýsingatæknifyrirtækis, er ekki í vafa um hver séu hans bestu kaup á ævinni. „Bestu kaupin eru skrif- borðsstóllinn sem ég er búinn að eiga í um þrjátíu ár, allt frá því á unglingsárum,“ segir hann eftir ekki nema andartaksumhugsun. „Þetta er Brabert-stóll sem ég keypti í Pennanum á sínum tíma. Stólar þessir voru þvílík gæðavara að menn keyptu aldrei nema einn, en því miður hætti fyrirtækið að framleiða svona góða stóla,“ segir hann og býður í grun að ekki hafi verið gott fyrir vöruveltuna að stólarnir entust svona von úr viti. „Sem er náttúrlega skaði fyrir menn eins og mig sem eru tilbúnir að greiða aðeins meira fyrir gæðavöru.“ Stóllinn átti annars í samkeppni við steikarpönnuna sem enst hefur vel hjá Friðriki. „Hana keypti ég mér þegar ég flutti að heiman fyrir allt of mörgum árum.“ Lengri tíma tók Friðrik að rifja upp verstu kaupin, því alla jafna fer hann varlega í innkaupum og kveðst „íhaldssamur“ í þeim efnum. Margir hafa farið út af sporinu í bíla- kaupum, en það á ekki við um Friðrik. „Ég keyri á fimmtán ára gömlum bíl. Það eina sem skröltir í honum er klinkið í vasanum hjá mér.“ Akkillesarhæll Friðriks er hins vegar tækjadellan. „Flest tæki sem ég kaupi nota ég, en á því er ein undantekning. Tæki sem ég nota aldrei og hef ekki einu sinni tekið úr kassanum. Það er GPS-tækið sem ég fékk mér fyrir tíu árum og ætlaði að nota mikið þegar maður væri á þvælast um á ókunnum slóðum og annað slíkt.“ Friðrik segir tækið hafa verið fokdýrt, enda með þeim flottustu á markaðnum á sínum tíma. „En svo komst ég nefnilega að því að ég er ekkert að þvælast á stöðum sem ég þekki ekkert á. GPS-tæki þarf ég ekki hérna innanbæjar eða þegar maður er að skjótast í sumarbústaðinn og slíkt. Ég hef sumsé aldrei þurft að nota tækið og þar sem ég hef enga þörf haft fyrir það þá hef ég ekki talið ástæðu til að setja það í bílinn eða annars staðar. Þannig að tækið situr enn í sínum kassa, er örugglega í toppstandi og verður kannski safngripur eftir einhverja áratugi.“ - óká NEYTANDINN: FRIÐRIK SKÚLASON FRAMKVÆMDASTJÓRI Áratug síðar er GPS-tækið enn ónotað Töfralyfið Alka-Seltzer er til margra hluta nytsamlegt og ekki bara til að sefa höfuðverk og magakvilla. Virk efni í lyfinu eru nefnilega gagnleg þegar kemur að því að losna við erfið óhreinindi. Til dæmis er hægt að setja nokkrar töflur í kaffivél og láta hana ganga einn umgang. Eftir það er hún látin ganga öðru sinni með hreinu vatni og ætti hún eftir það að vera orðin hrein rétt eins og ný. Einnig má nýta Alka- Seltzer til að losa stíflur í vaski með því að setja þrjár töflur í stíflað niðurfall og hella bolla af ediki á eftir. Eftir nokkrar mínútur ætti blandan að vera búin að losa stífluna þannig að heitt vatn ætti að skola öllu burt. GÓÐ HÚSRÁÐ Töfralyfið Alka-Seltzer til margra hluta nytsamlegt á heimilinu. HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS FERÐAÆVINTÝRI Í FERMINGARGJÖF ÍS LE N SK A /S IA .I S /U TI 5 42 12 0 3/ 11 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vill setja ströng markmið um að bensín- eða olíuknúnar bifreiðum verði fækkað um helming í borgum aðildarríkjanna fyrir árið 2030. Eftir það verði þeim enn fækkað jafnt og þétt til ársins 2050, þegar slík farartæki eiga ekki að sjást lengur í borgum aðildarríkjanna. Þetta kemur fram í skýrslu sem birt verður á mánudag. ■ Eldsneyti ESB vill bensínbílana burt 485 KRÓNUR ER MEÐALKÍLÓVERÐIÐ Á KJÖTFARSI um þessar mundir. Það er um 50 krónum lægra en fyrir tveimur árum en svipað og það var árið 2005.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.