Fréttablaðið - 24.03.2011, Page 60
24. mars 2011 FIMMTUDAGUR44
folk@frettabladid.is
120 MILLJÓNUM íslenskra króna hefur Miley Cyrus eytt í föt og annað glingur á árinu, samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs. Þá ku hún hafa keypt lítinn hlut í einkaþotu.
Merkilegum kafla í stjörnu-
sögu Hollywood lauk í
gær þegar tilkynnt var
að Elizabeth Taylor væri
látin. Taylor er ein helsta
og umdeildasta kvikmynda-
stjarna draumaborgarinnar
fyrr og síðar.
Umboðsmaður Elizabeth Taylor
greindi frá því í gær að Taylor
hefði látist á Cedars-Sinai sjúkra-
húsinu í Los Angles. Andlát henn-
ar hefði verið kyrrlátt og hún
hefði ekki kvalist. Taylor varð 79
ára að aldri en hún hafði glímt við
langvarandi veikindi. Taylor var
lögð inn á spítala fyrir sex vikum
vegna hjartasláttartruflana en
læknum virtist hafa tekist að ná
tökum á því vandamáli. „Við bund-
um því vonir við að Taylor myndi
snúa aftur heim innan skamms en
það átti augljóslega ekki að verða,“
hefur CNN eftir talsmanni leik-
konunnar.
Sigríður Pétursdóttir, umsjónar-
kona kvikmyndaþáttarins Kvik-
unnar, segir þetta hafa eingöngu
verið tímaspursmál hvenær Taylor
hyrfi yfir móðuna miklu. „Ég er
búin að vera tilbúin með minn-
ingargreinina ofan í skúffu í mörg
ár.“ Hún segir kannski sorgleg-
ast hversu skrumskæld minn-
ing Taylor er, það vilji nefnilega
stundum gleymast hversu frábær
leikkona hún hafi verið. „Hún var
auðvitað fyrirferðarmikil á öðrum
sviðum, ástarsambandið við Rich-
ard Burton, vinasambandið við
Michael Jackson, lygileg sjúkra-
saga og allt þar á milli. En hún var
líka frábær listamaður.“ Sigríður
vonast til þess að fólk snúi sér að
kvikmyndum Elizabeth nú þegar
hún er farin á vit feðra sinna. „Ef
fólk vill rifja upp barnakvikmynd-
irnar hennar þá ættu þeir að kíkja
á Little Women frá 1949 og Lassie.
Og svo ætti fólk að horfa á Father
of the Bride þar sem Elizabeth er
ung kona.“ Sigríður bendir síðan
áhugafólki um þungavigtar myndir
á Hver er hræddur við Virginiu
Wolf? og Köttur á heitu tinþaki
séu hálfpartinn skylduáhorf. „Ég
vonast til þess og mælist til þess
að fólk kynni sér þessar myndir
hennar.“
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
leikkona, lék Mörtu í uppsetningu
Þjóðleikhússins á Hver er hræddur
við Virginiu Wolf? árið 2001. Hún
segist reyndar ekki hafa horft á
myndina fyrr en eftir frumsýn-
ingu en Elizabeth Taylor var í
miklu uppáhaldi hjá henni sem
barni. „Ég átti dúkkulísur með
henni, hún var náttúrlega barna-
stjarna og átti ömurlega æsku
sem hún var ekki öfundsverð af.
Ég man alltaf eftir því þegar hún
byrjaði með grínistanum Eddie
Fischer, sem var giftur maður,
því þá setti ég Elizabeth-dúkkuna
í skammakrókinn. Hún fékk síðan
að koma út úr honum þegar hún
byrjaði með Burton,“ segir Lilja
og hlær en hún lék einnig í Ótemj-
unni eftir Shakespeare og þá sama
hlutverk og Taylor fékk Bafta-
verðlaunin fyrir. Lilja segir Liz
hafa verið stórbrotinn karakter
sem hafi sveimað yfir öllu og hún
hafi eflaust haft eitthvað með það
að gera að hún leiddist útí leiklist.
„Mér fannst alltaf fallegt hvern-
ig hún hugsaði um minnimáttar
og maður velti því fyrir sér hvað
hún hefði orðið stór ef hún hefði
ekki verið ofurseld kvikmynda-
verunum.“
Taylor beitti sér mjög fyrir rétt-
indabaráttu samkynhneigðra og
var einnig lengi vel andlit stríðs-
ins við alnæmi. Páll Óskar Hjálm-
týsson segir hana klárlega vera
á topp fimm-listanum yfir svo-
kölluð „gay icon“. „Saga hennar
er náttúrlega ótrúleg, hún þurfti
að berjast svo oft við dauðann en
reis alltaf upp. Og svo þróast hún
náttúrlega frá því að vera saklaus
dúkkulísa yfir í að taka að sér
þungavigtarhlutverk.“ Páll segir
að þegar Rock Hudson hafi dáið
úr alnæmi hafi Taylor brett upp
ermarnar og farið að vinna fyrir
þann málstað. „Og henni fannst
alltaf ógeðslegt hvernig leikarar
í Hollywood töluðu um samkyn-
hneigða,“ segir Páll og vitnar í
fleyg orð leikkonunnar: „Ef það
væru engir hommar, þá væri ekk-
ert Hollywood.“
freyrgigja@frettabladid.is
Kvikmyndastjarna kveður
MIKIL STJARNA
Elizabeth Taylor lést í gær eftir langa baráttu við alls-
kyns sjúkdóma. Kvikmyndaskríbentinn Sigríður Péturs-
dóttir segist vonast til þess að menn dusti rykið af
glæsilegum ferli hennar og Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
leikkona telur hana hafa verið stórbrotinn persónu-
leika. Páll Óskar Hjálmtýsson bendir á að þegar Rock
Hudson hafi dáið úr alnæmi hafi það verið Liz Taylor
sem bretti upp ermarnir í stríðinu gegn sjúkdómnum.
Hjartaknúsarinn Justin Bieber er mikill hrekkja-
lómur og fréttir af uppátækjum hans birtast
reglulega.
Bieber ákvað á dögunum að hrekkja ungstirn-
ið Willow Smith, en hún hitar upp fyrir hann á
tónleikaferðalaginu My World. Á fyrstu tónleik-
unum stökk hann á sviðið vopnaður kúabjöllu
og trommukjuða þegar hún var að syngja
smellinn Whip My Hair. Smith tók gríninu
vel og lét Bieber ekki slá sig út af laginu.
Grínið sýndi reyndar líka að Bieber er
ekki með mikinn takt í sér.
Bieber hrekkir Smith
FLIPPARI Justin Bieber
er mikill hrekkjalómur
en sló Willow Smith
ekki út af laginu.
Bono, söngvari írsku
hljómsveitarinnar U2,
reyndi á dögunum að gefa
vegfarendum í New York
nokkur eintök af nýju plöt-
unni með REM, Collapse
Into Now.
Samkvæmt dagblaðinu
New York Post var Bono
að fagna fimmtugsafmæli
eiginkonu sinnar síðasta
laugardag á veitingastaðnum
Osteria Morini. Á meðal gesta
þeirra hjóna voru fyrirsætan
Helena Christensen, The Edge,
gítarleikari U2, og Michael
Stipe, söngvari REM. Eftir mat-
inn stökk Bono út með nokkur ein-
tök af plötu REM.
Samkvæmt heimildarmönnum
New York Post hundsuðu vegfar-
endur Bono og töldu að þar væri
sturlaður maður á ferð. Fjölmarg-
ir höfðu neitað að taka við plötu
frá Bono þegar ung stúlka þekkti
hann og þáði eintak.
Vegfarendur hundsa Bono
HUNDSAÐUR Bono reyndi að gefa
eintök af nýrri plötu REM í New York.
Það gekk ekki vel.
Hundum lýður betur með hreinan feld.
Ný formúla þróuð af alvöru vísindamö-
nnum í USA og Kanada.
Hreinsar og nærir og skilar allt að 18%
meiri gljáa en helsti samkeppnisaðilinn.
Hundurinn þinn á það besta skilið.
(má líka nota á ketti)
V
úf
f
V
af
f
-
H
un
da
sj
am
bó
ww
w.
fa
ce
bo
ok
.c
om
/e
nn
em
m
ad