Fréttablaðið - 29.03.2011, Page 6
29. mars 2011 ÞRIÐJUDAGUR6
EFNAHAGSMÁL Landsmenn hafa nýtt
tímabundna heimild til að taka út
séreignarsparnað til að taka 54,8
milljarða króna út úr lífeyris-
kerfinu, samkvæmt upplýsing-
um frá ríkisskattstjóra. Alls hafa
rúmlega 54 þúsund manns nýtt sér
þetta úrræði, um fjórðungur fólks
á aldrinum 18 til 67 ára.
Stjórnvöld opnuðu tímabund-
ið fyrir þann möguleika að taka
út séreignarsparnað til að bregð-
ast við erfiðu efnahagsástandi í
kreppunni. Frestur til að sækja um
heimild til að taka út lífeyri rennur
út um næstu mánaðamót. Þeir sem
ætla að nýta sér úrræðið verða að
sækja um fyrir föstudag.
Frá því heimilað var að taka
út sparnaðinn snemma árs 2009
hefur hver af hinum 54 þúsund
landsmönnum sem hafa nýtt sér
heimildina tekið út að meðaltali
ríflega eina milljón króna hver.
Þegar úrræðið var kynnt árið
2009 var heimilt að taka út allt að
milljón. Sú upphæð hækkaði síðar í
2,5 milljónir, og svo aftur í 5 millj-
ónir króna. Sumir hafa því sótt um
oftar en einu sinni, alls hafa rúm-
lega 93 þúsund umsóknir verið
samþykktar. - bj
Ekki stendur til að framlengja frest til að sækja um úttekt á séreignarsparnaði sem rennur út á fimmtudag:
Fjórði hver hefur tekið út lífeyrissparnað
3,0
2,5
2,0
1,5
1,0
0,5
0
m
ar
. ‘
09
m
aí
‘0
9
jú
l.
‘0
9
se
pt
. ‘
09
nó
v.
‘0
9
ja
n.
‘1
0
m
ar
. ‘
10
m
aí
‘1
0
jú
l.
‘1
0
se
pt
. ‘
10
nó
v.
‘1
0
ja
n.
‘1
1
m
ar
. ‘
11
m
aí
‘1
1
jú
l.
‘1
1
se
pt
. ‘
11
nó
v.
‘1
1
ja
n.
‘1
2
m
ar
. ‘
12
m
aí
‘1
2
jú
l.
‘1
2
se
pt
. ‘
12
nó
v.
‘1
2
ja
n.
‘1
3
Úttektir á séreignarsparnaði
Heimild: Ríkisskattstjóri
Tölur eru í milljörðum króna.
UMHVERFISMÁL Matvælastofnun
stendur fyrir fræðslufundi um
díoxín milli klukkan þrjú og fjög-
ur á morgun.
Á fundinum verður fjallað um
það hvernig díoxín myndast og
hvernig það berst út í umhverfið,
matvæli og fólk. Fundurinn verður
haldinn á Stórhöfða 23 í Reykjavík.
Á heimasíðu Matvælastofnunar
kemur fram að nýleg greining
díoxíns yfir viðmiðunarmörkum
í nágrenni Ísafjarðar sýni að
slík efni geti myndast og borist í
umhverfið og dýraafurðir hér á
landi, rétt eins og í nágrannalönd-
um okkar.
Hægt verður að fylgjast með
fræðslufundinum í beinni útsend-
ingu á vef Matvælastofnunar.
Matvælastofnun:
Fræðslufundur
um díoxín
Þegar þú vilt fá það besta út úr lífinu!
Faxafeni 14 www.heilsuborg.is
Ofþyngd / Offita
Heilsulausn 3 - Hentar einstaklingum
sem glíma við offitu, hjartasjúkdóma
og/eða sykursýki
Hefst 4. apríl
Tólf vikur, árs eftirlit
Verð kr. 13.900 m.v. árs skuldbindingu
Að námskeiðinu standa læknar, hjúkrunarfræðingar,
sjúkraþjálfari, næringarfræðingur íþróttafræðingar og sál-
fræðingar!
Skráðu þig núna í síma 560 1010
eða á heilsuborg@heilsuborg.is
ORKUMÁL Ástandið í kjarnorku-
verinu í Fukushima verður æ
hættulegra. Í gær fundust í fyrsta
sinn merki um plúton í jarðvegi
utan kjarnaofnanna, sem bend-
ir til þess að alvarleg bráðnun
hafi orðið í kjarna eins eða fleiri
þeirra.
Magnið er reyndar sagt lítið og
enn er vonast til að brátt muni tak-
ast að kæla niður ofnkjarnana svo
þeir verði viðráðanlegir. Hættu-
leg geislun hefur enn ekki dreifst
að ráði út fyrir nánasta nágrenni
ofnanna.
Kjarnorkuslysið í Fukushima
í Japan hefur hins vegar blásið
nýju lífi í alla andstöðu við nýt-
ingu kjarnorku víða um heim.
Á Vesturlöndum og víðar hafa
kjarnorkuandstæðingar haldið í
mótmælagöngur og krafist þess
að stjórnvöld leggi niður öll kjarn-
orkuver og hætti við áform um
frekari uppbyggingu kjarnorku-
nýtingar.
Stjórnvöld víða um heim hafa
einnig brugðist við með ýmsum
hætti, jafnvel frestað áformum
um frekari uppbyggingu eða hrað-
að áformum um að leggja niður
kjarnorkuver.
Andstaðan hefur verið einna
hörðust í Þýskalandi og nú um
helgina kostaði það Kristilega
demókrata, stjórnarflokk Angelu
Merkel kanslara, þingmeirihluta
í sambandslandinu Baden-Württ-
emberg, þar sem flokkurinn hefur
verið samfleytt við völd í nærri
sextíu ár.
Sitt sýnist þó hverjum og margir
hafa bent á að kjarnorkan er, þrátt
fyrir þau skelfilegu áhrif sem
kjarnorkuslys getur haft, samt sá
orkugjafi sem einna umhverfis-
vænstur hlýtur að teljast.
Margir fara einnig ekki ofan af
því að kjarnorkuvinnsla geti sömu-
leiðis verið nánast hættulaus ef
rétt er að staðið.
Þannig halda Finnar ótrauðir
áfram að reisa nýtt kjarnorkuver
í Olkiluoto við strönd Eystrasalts.
Reyndar eru það Frakkar sem tóku
að sér að reisa kjarnorku verið, sem
sagt er verða það fullkomnasta og
öruggasta sem risið hefur.
Veggirnir eru sagðir nógu
þykkir til að þola flughrap, tækja-
búnaðurinn á að þola finnska
vetrarkuldann og eru öryggis-
ráðstafanir byggðar á áratuga
reynslu og tækniþróun.
„Við erum með svo mikið af
varakerfum að slys á borð við það
sem varð í Japan gæti ekki gerst,“
segir Juoni Silvennoinen, yfir-
maður byggingarframkvæmd-
anna.
gudsteinn@frettabladid.is
Plúton hefur fundist
í jarðvegi utan ofna
Ástandið í kjarnorkuverinu í Fukushima verður æ hættulegra. Í gær fundust í
fyrsta sinn merki um plúton í jarðvegi utan kjarnaofnanna. Deilur um nýtingu
kjarnorku magnast, en víðast hvar er þó haldið áfram uppbyggingu kjarnorku.
MÓTMÆLI Í ÞÝSKALANDI Fyrir utan
kanslarahöllina í Berlín hafa hópar mætt
til að mótmæla kjarnorku. NORDICPHOTOS/AFP
KJARNORKUVER Í SMÍÐUM Í Finnlandi er verið að reisa eitt öruggasta kjarnorkuver
heims í bænum Olkiluoto við strönd Eystrasalts. NORDICPHOTOS/AFP
Sendifulltrúi Japans á Íslandi,
Katsuhiro Natsume, boðaði í gær
íslenska blaðamenn á sinn fund til
að þakka fyrir bæði þann samhug
sem Íslendingar hefðu sýnt og þá
aðstoð sem veitt hefði verið.
Hann sagðist vonast til þess að
brátt tækist að ná tökum á ástand-
inu í kjarnorkuverinu í Fukushima. Til
þessa hefur alvarleg geislamengun
eingöngu mælst innan veggja kjarna-
ofnanna. Aukin geislavirkni hefur
einnig mælst utan versins, en ekki í
þeim mæli að fólki stafi hætta af.
Natsume sagði 65 Íslendinga búa
í Japan, þar af 30 námsmenn. Allir
eru þeir óhultir, líka ung kona sem
var í Sendai-sýslu þegar hamfarirnar
riðu yfir. Hún er nú komin heilu og
höldnu heim til Íslands.
Sjálfur sagðist hann þeirrar skoð-
unar að Japanar ættu að losa sig við
kjarnorkuna og taka Íslendinga sér til
fyrirmyndar í framtíðinni með því að
nýta jarðvarma til orkuvinnslu frekar
en að nota kjarnorku.
Þakkar Íslendingum samhug og aðstoð
KATSUHIRO
NATSUME
Vonar að
Japanar
losi sig við
kjarn-
orkuna.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ICESAVE Nýr fræðsluvefur, www.
thjodaratkvaedi.is, um þjóðar-
atkvæðagreiðslu Icesave-samn-
inganna var opnaður í gær.
Lagastofnun Háskóla Íslands
sér um uppsetningu og viðhald
síðunnar.
Unnið er að því að þýða efni
vefsins á ensku og einnig verður
sett upp forrit til að túlka text-
ann á táknmáli. Þessum verk-
efnum verður lokið í síðasta lagi
á morgun. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá Lagastofnun.
Kynningarbæklingi verð-
ur dreift inn á hvert heimili
dagana 4. og 5. apríl, en kosn-
ingin sjálf verður hinn níunda
sama mánaðar.
- sv
Thjodaratkvaedi.is opnaður:
Fræðsluvefur
um Icesave-lög
KJÖRKASSINN
Er vorið komið?
Já 64,9%
Nei 35,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ætti að lækka opinber gjöld á
eldsneyti?
Segðu skoðun þína á visir.is