Fréttablaðið - 29.03.2011, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 29.03.2011, Blaðsíða 11
1129. mars 2011 ÞRIÐJUDAGUR BÍLAR Vetnisbúnaður sem draga átti úr eldsneytisnotkun bifreiða stendur ekki undir væntingum, að því er fram kemur í umfjöll- un Félags íslenskra bifreiðaeig- enda (FÍB). Í frétt á vef Mbl.is um Thor Energy Zolutions var því haldið fram að búnaðurinn gæti dregið úr eldsneytisnotkun bíla og bif- hjóla um allt að 30 prósent, auk þess að auka afl og draga úr mengun. Búnaðurinn kostar frá tæpum 70 þúsund krónum og upp í um 130 þúsund. „Ef þú ætlar að framleiða vetnið um borð í bílnum ertu farinn að brenna eldsneyti sem nemur því vetni sem framleitt er í bílnum þannig að í raun á enginn orkuávinningur sér stað. Eldsneytissparnaður upp á jafn- vel 30 prósent er einfaldlega óhugsandi,“ hefur fréttavefur FÍB eftir, Ágústu Loftsdóttur eðlisfræðingi og sérfræðingi hjá Orkustofnun, um hvers konar eldsneyti sem nýta má á bíla. Íslenska tæknifyrirtækið HB tækniþjónusta (HBT) ætlaði að framleiða vetnisbúnað fyrir stórar dísilrafstöðvar, búnað sem byggir á sömu hugmynda- fræði og hjá Thor Energy Zolu- tions. Jóhann Benediktsson, stjórnarformaður fyrirtækisins, segir þær áætlanir hafa verið slegnar af eftir mælingar. Hann segir þó ekki hafa verið stefnt að meiri árangri en 2 til 5 pró- senta minni eldsneytis eyðslu. „En ég vil ekki gera lítið úr því að vel geti verið að búnaður- inn þeirra auki afl vélanna. En þessar sparnaðartölur standast ekki,“ segir hann. - óká Vetnisbúnaður sem draga á úr eldsneytisnotkun stenst ekki nánari skoðun: HBT hætti við eftir mælingar VÉLARHÚS Með rafgreiningu þar sem rafgeymir bíls er notaður til að kljúfa vetni úr vatni telja sumir að draga megi úr eyðslu bíla. FRÉTTABLAÐIÐ/SJÓ DÓMSMÁL Karlmaður á fimmtugs- aldri og kona á þrítugsaldri hafa verið ákærð fyrir stórfellt fíkni- efnabrot, auk fleiri brota. Manninum er gefið að sök að hafa 19. nóvember 2009 fjár- magnað og staðið að innflutningi á 318 grömmum af kókaíni frá Bandaríkjunum til Íslands um Keflavíkurflugvöll. Efnið var ætlað til söludreifingar í ágóða- skyni. Þegar efnið var komið til landsins drýgði maðurinn hluta þess með íblöndunarefni og hafði í vörslu sinni rúm 482 grömm af kókaíni, að hluta til í sölu- og dreifingarskyni, auk 341 gramms af amfetamíni og 0,5 gramma af tóbaksblönduðu kannabisefni. Konan er ákærð fyrir að hafa verið í vitorði með manninum hvað varðaði vörslu efnanna í sölu- og dreifingarskyni. Þá er maðurinn ákærður fyrir að hafa árið 2008 staðið að inn- flutningi á 145 grömmum af kókaíni og miklu magni af ster- um. Hann faldi kókaínið og stera- lyfin í ferðatöskum og sendi með fraktflugi frá Amsterdam til Íslands þar sem tollverðir fundu fíkniefnin og steralyfin við leit. Í annað skipti var hann tekinn með stera við komuna frá Hol- landi. Þá er hann ákærður um kannabisræktun, ítrekaðan vímu- efnaakstur og vörslu fíkniefna. - jss Ríkissaksóknari ákærir karl á fimmtugsaldri og konu á þrítugsaldri fyrir stórfelld fíkniefnabrot: Smyglaði ítrekað eiturlyfjum og sterum KANNABIS Maðurinn var einnig ákærður fyrir kannabisræktun á Seltjarnarnesi. SLYS Fjórar kindur drápust þegar gólf féll niður í heilu lagi undan níutíu kindum í fjárhúsi á bænum Fagraneskoti í Aðal- dal í fyrradag. Þegar gólfið gaf sig féllu ærnar tvo metra niður í taðhús undir fjárhúsinu. Björg- unarsveitarmenn hjálpuðu til við að koma fénu upp úr taðhúsinu og inn í tóma hlöðu. Að sögn Guðmundar Jónssonar bónda er ekki vitað hvers vegna gólfið gaf sig. Timbrið hafi verið orðið þrjátíu ára gamalt og lík- legast hafi verið kominn fúi í það. Slys á bóndabæ í Aðaldal: Kindur drápust er gólf brast E N N E M M / S ÍA / N M 4 5 9 8 6 GAME TÍVÍ AÐEINS Á MÁNUÐI 2.890 KR. SKJÁREINN Þegar þú vilt fá það besta út úr lífinu! Faxafeni 14 www.heilsuborg.is Hefur þú prófað ZUMBA? Dansaðu þig í form með einföldum sporum og skemmtilegri tónlist! Nýtt námskeið hefst 4. apríl Mán og mið kl. 17.30 Þjálfari: Sigríður Fanndal Verð kr. 13.900,- Bjóðum einnig upp á Fjölskyldu-Zumba! Föstudagar kl. 17.30 – Fjórar vikur Þjálfari: Eva Verð kr. 6.950,- (afsl. ef fleiri en einn úr sömu fjölskyldu) Skráðu þig núna í síma 560 1010 eða á mottaka@heilsuborg.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.