Fréttablaðið - 29.03.2011, Síða 8
29. mars 2011 ÞRIÐJUDAGUR8
1. Hversu mikið mælist atvinnu-
leysi nú meðal Pólverja hérlendis?
2. Fyrir hversu háa upphæð hyggst
íslenska fyrirtækið Northern Lights
Energy selja rafjeppa á Norður-
löndunum?
3. Hver stóð í marki íslenska karla-
landsliðsins í knattspyrnu gegn
Kýpur um liðna helgi?
SVÖR
DÓMSMÁL Tvö mál eru fyrir Hér-
aðsdómi Reykjavíkur sem bæði
tengjast Sigurði Einarssyni, fyrr-
verandi stjórnarformanni Kaup-
þings og lánveitingum bankans til
hans. Í október 2008 hafði Sigurð-
ur Einarsson fengið 7,8 milljarða
króna að láni hjá Kaupþingi.
Annað málið snýr að lánum sem
starfsfólk Kaupþings, þar á meðal
Sigurður, fékk til kaupa á hluta-
bréfum í bankanum. Stjórn Kaup-
þings aflétti persónulegri ábyrgð
starfsmanna á lánunum 25.
septem ber 2008, fjórtán dögum
áður en bankinn fór í þrot. Á þeim
tíma námu heildarlánveitingar
til æðstu stjórnenda bankans 64
milljörðum króna. Slitastjórn
bankans rifti síðar ákvörðuninni
en bauð þeim sem höfðu fengið
lánin að endurgreiða stóran hluta
þeirra eða semja um uppgjör.
Nokkrir fyrrverandi stjórnend-
ur bankans sem hæst lán fengu
neituðu að semja við slitastjórn
um endur greiðslu og fóru mál
þeirra fyrir dómstóla. Slitastjórn
Kaupþings krefst þess að Sig-
urður endur greiði 579 milljónir
króna af lánum sínum.
Stjórnarformaðurinn fyrr-
verandi krafðist frávísunar á
málinu á þeirri forsendu að hann
sé með lögheimili í Bretlandi.
Úrskurðar um hvort hægt verði
að flytja málið hér verður felldur
7. apríl næstkomandi. Fjögur sam-
bærileg mál eru á dagskrá Hér-
aðsdóms Reykjavíkur og Héraðs-
dóms Reykjaness á næstu tveimur
mánuðum, þar á meðal gegn
Magnúsi Guðmundssyni, fyrr-
verandi bankastjóra í Lúxemborg.
Þá verður fyrirtaka í lánamáli
Arion banka gegn Sigurði í dag.
Það fjallar um lán til hans til
kaupa á hlut í fjárfestingarsjóðn-
um Kaupþing Capital Partners II
Fund, sem hélt utan um fjárfest-
ingar bankans í óskráðum bréf-
um.
Í skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis kemur fram að The S
Invest Trust, félag Sigurðar, hafi
fengið tíu milljónir punda að láni
til kaupa í sjóðnum. Það jafn gildir
rúmum 1,8 milljörðum króna á
núvirði og er jafn há upphæð og
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrr-
verandi forstjóri bankans, fékk
að láni.
jonab@frettabladid.is
Milljarðar undir hjá
Sigurði Einarssyni
Tekist er á um lán Kaupþings til fyrrverandi stjórnarformanns og annarra
æðstu starfsmanna bankans fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Helstu starfsmenn
bankans fengu á sjötta tug milljarða króna að láni hjá bankanum.
SIGURÐUR EINARSSON Tekist er á um milljarðalán Kaupþings til fyrrverandi stjórnarformanns bankans í Héraðsdómi Reykjavíkur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
1. Tuttugu prósent. 2. Fyrir 4,5 milljarða
króna. 3. Stefán Logi Magnússon.
Verðtryggð skuldabréf
Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. LSS150224
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. (LSS), kt. 580407-1100, hefur birt
útgefandalýsingu og grunnlýsingu dagsettar 28. mars 2011
vegna töku skuldabréfa til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland
hf. Útgefandalýsinguna og grunnlýsinguna ásamt þeim gögn-
um sem vitnað er til í þeim er hægt að nálgast hjá Lánasjóði
sveitarfélaga ohf., Borgartúni 30, 105 Reykjavík og á heimasíðu
Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. www.lanasjodur.is fram til loka-
gjalddaga skuldabréfanna.
Nafnverð útgáfu: Heildarnafnverð skuldabréfanna sem
óskað hefur verið að tekin verði til
viðskipta 30. mars 2011 er 445.000.000
kr., heildarnafnverð flokksins eftir þá
stækkun er þá 24.787.000.000 kr.
Nafnverð hverrar einingar er 1 kr.
Skilmálar bréfanna: Skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslu-
bréf. Bréfin bera fasta 3,75% ársvexti sem
greiddir eru hálfsárslega, 15. febrúar og
15. ágúst ár hvert, í fyrsta sinn 15. febrúar
2009 og í síðasta sinn 15. febrúar 2024.
Auðkenni flokksins á NASDAQ OMX
Iceland hf. er LSS150224 og ISIN númer
IS0000018869.
Reykjavík, 29. mars 2010.
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
!
!
"##$
$%
&
!#
!
!!
#
'
()* )
!)
+,)-.
UPPLÝSINGATÆKNI Vírusvarnir
mega sín lítils þegar notendur
velja sjálfir að virkja forrit með
því að smella á hlekki á netinu.
Björn Davíðsson, þróunarstjóri
hjá vefþjónustunni Snerpu á Ísa-
firð, segir „almenna skynsemi“
seint verða ofmetna sem forvörn
á internetinu.
Fólk sem notar samskiptavef-
inn Facebook kann að hafa orðið
vart við nokkra aukningu á því
að jafnvel grandvörustu menn
sendi frá sér það sem virðist
vera tenglar í vafasamt efni á
vefnum. Full ástæða er til að
sýna aðgát í þessum efnum, jafn-
vel þótt einungis virðist vísað á
saklaust grín.
Björn segir algengt að fólk
þurfi að setja upp kerfisviðbæt-
ur til að skoða efni á netinu, svo
sem Microsoft Silverlight, Flash
eða Shockwave. Mikilvægt sé
hins vegar að sýna aðgát þegar
fólk er beðið að samþykkja forrit
sem það ekki þekkir. „Við köllum
þetta trójuhesta, en það eru forrit
og forritsbútar sem virðast vera
annað en þeir eru,“ segir hann.
Fjölmargar útgáfur eru af
slíkum svikabrögðum á netinu,
en flestar eiga þær sammerkt að
fiskað er eftir upplýsingum úr
tölvu notandans, oftar en ekki
til þess að senda fleirum óvær-
una. „Og stundum kemur fyrir
að notandinn samþykkir notk-
unina, jafnvel án þess að kynna
sér skilmála sem upp koma.
Þar gæti eins staðið að forritið
ætli að nýta sér upplýsingar úr
tölvu notandans,“ segir Björn,
þessi leikur hefur verið leikinn
á Facebook, þar sem fólk lætur
plata sig gegn loforðinu um að
fá að sjá myndir, myndskeið eða
brandara. - óká
Stundum er eigið hyggjuvit eina vörnin gegn vá sem leynist á internetinu:
Almenn skynsemi besta vörnin á Fésbókinni
VÁHLEKKIR Loforð á Facebook um
myndir af óförum stúlkna í vefmyndavél,
sætum hvolpum eða hrekkjum geta
verið gildrur óprúttinna netþrjóta.
VIÐSKIPTI Einn féll í tvígang í mati
Fjármálaeftirlitsins (FME) á hæfi til
að sitja í stjórn fjármálafyrirtækja,
eignarhaldsfélaga og vátrygginga-
félaga. Þar á meðal eru stjórnir
bankanna. Tólf þurftu að endurtaka
matið og ákváðu þrír að endurtaka
það ekki.
Þetta kemur fram í umfjöllun
FME á niðurstöðum hæfnismatsins.
Matið náði til 47 stjórnarmanna og
stóðust 35 þeirra fyrstu atrennu. Níu
stjórnarmenn sögðu starfi sínu lausu
og mættu þeir ekki í matið. Líklegt
er talið að þeir þrír sem ekki mættu
í endurtekið mat og sá sem féll í tví-
gang hafi þurft að segja sig úr þeim
stjórnum sem þeir áttu sæti í.
FME stofnaði sérstaka ráðgjafa-
nefnd í janúar í fyrra sem sér um
hæfnismatið. Það byggir á ítar-
legu viðtali við stjórnarmenn þar
sem farið er yfir þekkingu þeirra,
skilning á ábyrgð þeirra og hlut-
verki sem stjórnarmenn, og við-
horf almennt.
Nefndin veitir umsögn um hæfi
stjórnarmanna og er hún höfð til
hliðsjónar við ákvörðun FME um
hæfið. Ekki er um tilmæli að ræða,
samkvæmt upplýsingum frá FME.
Jón Sigurðsson, fyrrverandi for-
maður Framsóknarflokksins, er
formaður nefndarinnar. Hann vildi
ekki tjá sig um málið þegar eftir
því var leitað í gær og vísaði hann
á Gunnar Andersen, forstjóra FME:
Ekki náðist í Gunnar þegar eftir því
var leitað í gær. - jab
Fjórir stóðust ekki hæfnismat Fjármálaeftirlitsins til að sitja í stjórnum fyrirtækja:
Urðu að standa úr stólum sínum
FORSTJÓRI FME 47 stjórnarmenn fóru
í hæfnismat hjá Fjármálaeftirlitinu.
Einn fór tvisvar en féll í bæði skiptin.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VEISTU SVARIÐ?