Fréttablaðið - 29.03.2011, Síða 10

Fréttablaðið - 29.03.2011, Síða 10
29. mars 2011 ÞRIÐJUDAGUR10 SIGLINGAMÁL Olíulekinn úr Goða- fossi ógnar fuglalífi á náttúru- verndarsvæðinu Grønningen við Lillesand í Óslóarfirði. Um 50 kílómetrar eru á mili strand- staðar skipsins og Lillesand. Í samtali við Aftenposten, segir Halvard Olsen, starfsmað- ur í Lillesand, menn vera að ná tökum á lekanum að mestu, en ógnun við fuglalíf á svæðinu sé hins vegar mikið áhyggjuefni. Svæðið sé algengt og stórt varp- svæði sjófugla og talið er að það hafi orðið fyrir einna mestum skaða af lekanum. Ekki verður farið af stað með hreinsun við strendurnar eins og er, en nú stendur varptímabil fuglanna sem hæst. Búið er að hreinsa meira en 100 tonn af olíu úr sjónum eftir strand Goðafoss. - sv Olíulekinn úr Goðafossi: Skaðar fuglalíf við strandstað JAFNRÉTTISMÁL Helga Guðrún Jóns- dóttir var kosin nýr for maður Kvenréttindafélags Íslands á aðalfundi félagsins í gær. Helga Guðrún sat sem varaformaður og bauð sig ein fram til formanns. Einnig var kosið í fram- kvæmdastjórn á fundinum en hana skipa átta konur. Varafor- maður var kjörin Guðrún Mar- grét Guðmundsdóttir, sem áður var ritari félagsins. Úr stjórn vék Margrét K. Sverrisdóttir, sem gegnt hefur embætti formanns félagsins undanfarin þrjú ár, ásamt Margréti Steinars dóttur og Sólborgu A. Pétursdóttur. Fríða Rós Valdimarsdóttir, Inga Guðrún Kristjánsdóttir og Mar- grét Björnsdóttir voru kosnar nýjar í stjórn. Kvenréttindafélagið hefur starfað síðan árið 1907. - sv Kvenréttindafélag Íslands: Helga Guðrún nýr formaður FRAKKINN FLJÚGANDI Í VARSJÁ Hann kallar sig „Frakkann fljúgandi“, þessi fjöllistamaður sem skemmti áhorfend- um á hestadögum í Varsjá í vikunni. NORDICPHOTOS/AFP Sk já rB íó V O D , S kj ár Fr el si o g Sk já rH ei m ur e r a ðg en gi le gt u m S jó nv ar p Sí m an s. M eð D ig it al Ís la nd + fæ st a ðg an gu r a ð Sk já Ei nu m o g Sk já Fr el si . SP JA LL IÐ Lífæð samskipta NÁTTÚRA „Mér fannst þetta mjög sérstakt. Hann var svo tignarlegur og flottur og svo spakur líka að ég varð eiginlega meira en hissa,“ segir Gunnlaugur Örn Valsson, sem rakst á þennan fallega fálka á göngutúr um Leirvogstungu í Mos- fellsbæ í fyrradag. Gunnlaugur var úti að ganga með hundinn sinn þegar hann sá fuglinn og segir að hann hafi verið svo gæfur að hann hafi hafi ekki verið nema um tvo til þrjá metra frá Gunnlaugi. Ævar Petersen, fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, segir að þarna sé um ungan fálka að ræða. Algengt sé að þeir komi nálægt byggð. „Þeir koma jafnvel inn í bæ og eru að elta dúfur og svona,“ segir Ævar. Hann segir að eldri fuglar ferðist hins vegar ekki jafn mikið um og hinir yngri. Þá verpi fuglinn ekki í nágrenni við Reykjavík. - jhh Tignarlegur og spakur fálki spókaði sig í Leirvogstungu: Ungur fálki sást í Mosfellsbæ FÁLKINN Gunnlaugur Örn Valsson var úti að ganga með hundinn sinn þegar hann kom auga á fálkann. Hann náði þessari myndi af honum. MYND/GUNNLAUGUR ÖRN VALSSON LÍBÍA, AP „Markmið okkar er að vernda og aðstoða almenna borgara og byggðakjarna sem eiga árásir á hættu,“ sagði kanadíski herforing- inn Charles Bouchard, sem þessa dagana er að taka við yfirstjórn hernaðaraðgerða NATO í Líbíu af Bandaríkjamönnum. Hann sagði það alrangt að mark- mið árásanna væri að aðstoða upp- reisnarmenn í baráttu þeirra gegn hermönnum á vegum stjórnar Múammars Gaddafí. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, hélt því fram að loft- árásir NATO væru ekkert annað en alþjóðleg íhlutun í borgarastríðið í Líbíu. Þessar loftárásir gangi miklu lengra en ályktun öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna heimilar. Eftir að loftárásirnar hófust hafa uppreisnarmenn náð á sitt vald aftur öllum þeim borgum í vestur- hluta landsins. Í gær börðust þeir í næsta nágrenni fæðingarstaðar Gaddafís, sem ýmist er nefnd Sirte eða Surt, og stefna í vesturátt. - gb Rússar segja árásirnar á Líbíu ganga lengra en ályktun öryggisráðsins leyfir: NATO segist aðeins vernda fólk Í UMBOÐI NATO Charles Bouchard, yfirmaður árásanna, á blaðamannafundi á Ítalíu í gær. NORDICPHOTOS/AFP EFNAHAGSMÁL Hótel, tjaldstæði og aðrir gististaðir seldu svipaðan fjölda af gistinóttum á síðasta ári og árið áður samkvæmt saman- tekt Hagstofu Íslands. Alls voru seldar tæplega þrjár milljónir gistinátta á árinu. Gistinóttum fjölgaði víðast hvar á landinu, en fækkaði lítil- lega á Vesturlandi og Vestfjörð- um. Fækkunin var mest á Suður- landi, og má skýra um tólf pró- senta samdrátt með eldgosinu í Eyjafjallajökli. - bj Fjöldi gistinátta stendur í stað: Eyjafjallajökull fældi fólkið frá

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.