Fréttablaðið - 29.03.2011, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 29. mars 2011 3
Inga Kristinsdóttir býr í Washington DC
í Bandaríkjunum. Þar líkt og víðar hefur
verið mikil umræða um hreinsun líkam-
ans og eiturefni í mat og hefur Inga kynnt
sér þau málefni vel. „Þegar móðir mín
greindist með brjóstakrabbamein fyrir
rúmum mánuði stakk ég upp á því að við
færum saman í detox,“ segir Inga. Gerður,
móðir hennar, sagði henni þá frá Heilsu-
hóteli Íslands á Reykjanesi og þær ákváðu
að athuga hvort þær fengju að koma eftir
aðgerðina. „Ég hringdi á staðinn og mér var
vel tekið. Við slógum því til og ég pantaði
flug til Íslands rétt fyrir aðgerð mömmu,“
segir Inga. Við vissum líka að það er starf-
andi læknir við hótelið.
„Ég hef alltaf verið hundrað prósent viss
um að matur og það sem maður lætur ofan
í sig skipti máli,“ segir Gerður. Ég er hálf-
partinn á móti lyfjameðferð en mun fara í
hana ef þörf krefur en það á eftir að koma
í ljós.“ Gerður hefur fylgst vel með starfi
Heilsuhótelsins í gegnum tíðina. „Mig lang-
aði mikið að fara í detox þegar boðið var
upp á slíkt í Póllandi en gerði ekkert í því
fyrr en núna,“ útskýrir hún.
Inga og Gerður dvöldu á Heilsuhótelinu
í tvær vikur. „Það var tekið ofboðslega vel
á móti okkur. Starfsfólkið passaði mjög vel
upp á mömmu og fylgdist vel með henni.
Hér er prógramm allan daginn, mikið um
að vera og maður ræður hverju maður
tekur þátt í,“ segir Inga. Hún telur upp
morgungöngu, jóga, nudd, slökun og inn-
rautt sánabað að ógleymdri ristilskolun.
„Hún er alger snilld enda flýtir hún fyrir
því að hreinsa eiturefnin út,“ segir hún.
Þær mæðgur voru sérstaklega ánægðar
með félagsskapinn. „Hópurinn var mjög
samrýmdur segir Inga og bætir við að á
kvöldin gátu gestir hótelsins farið í Bláa
lónið auk þess sem boðið var upp á fyrir-
lestra og skemmtikrafta á hótelinu á kvöld-
in.
Margir hafa orðið til að gagnrýna með-
ferðir Heilsuhótelsins. Höfðu þær ekki
áhyggjur af því? „Hvað getur maður haft
áhyggjur af því að borða ávexti og græn-
meti, sem fólk hefur lifað á í margar aldir?“
spyr Inga áhyggjulaus.
En urðu þær aldrei svangar? „Nei, við
fengum að borða eins mikið og við mögu-
lega gátum í okkur látið,“ segir Gerður sem
hafði upphaflega nokkrar áhyggjur af því
að verða svöng. „Það kom mér því ánægju-
lega á óvart að svo var ekki, meira að segja
á „föstu“ dögunum varð ég ekki svöng.“
Inga segir það hafa verið ótrúlega upp-
lifun að fara í gegnum föstu. „Þá er mikil
hreinsun í gangi, gamlir verkir koma upp
og hverfa síðan,“ segir hún og Gerður bætir
við að þær hafi séð mikinn mun bæði á
sjálfum sér og öðrum, sérstaklega í andliti.
„Ég léttist til dæmis um fimm kíló,“ segir
Gerður ánægð.
Þær ætla báðar að reyna að halda í
þá reynslu sem þær hafa aflað sér
í þessar tvær vikur með
auknu grænmetis-
fæði og sérstökum
föstum.
„Þetta er búin að
vera ótrúleg upp-
lifun og líkt og að
fara í annan heim.“
Skemmtilegt fólk
og ótrúlega hag-
stæð dvöl segir Inga
ánægð og Gerður er
sammála.
Mæðgurnar Gerður og Inga upplifðu góðar stundir á Heilsuhótelinu. MYND/VILHELM
Efnið Bioflavinoid skortir í nútímafæði mannsins en er nauðsynlegt
mannslíkamanum meðal annars til þess að vinna á og útrýma
candida-sveppnum og sýkingum í líkamanum. Bioflavinoid er unnið úr
hvítu himnunni sem umlykur greipaldinávöxinn.
Citroceptið dregur úr sykur-
löngun. Gott fyrir alla sem
sækja í sætindi.
Citrosept er ríkt af andoxunar-
efnum og forvörn gegn
krabbameini. Citrocept er
frábært eftir sýklalyfjanotkun.
Pöntunarsími: 5128040
www.heilsuhotel.is
Citrosept Bioflavinoid,
loksins á Íslandi
Kynning
„Hvað getur maður haft áhyggjur
af því að borða ávexti og
grænmeti, sem fólk hefur lifað á í
margar aldir?“
Heilsuhótel Íslands á Reykjanesi.
Ótrúleg upplifun á Heilsuhótelinu
Þegar Gerður Sigurðardóttir greindist með brjóstakrabbamein fyrir rúmum mánuði ákváðu hún og dóttir hennar, Inga Kristinsdóttir, að fara saman á Heilsuhótelið á
Reykjanesi eftir aðgerð sem Gerður þurfti að gangast undir. Upplifun þeirra beggja var einkar ánægjuleg.
Heilsuhótel Íslands
Næstu heilsunám-
skeið 2011.
15.-29. apríl
13.-27. maí
Við höfum opið í
sumar!
17. júní-1. júlí
15.-29. júlí
11.-25. ágúst
Pantið tímanlega.
www.heilsu-
hotel.is
Árið 2011 hefur farið vel af stað hjá Heilsuhóteli Íslands. Góð
aðsókn hefur verið í heilsumeðferðir á hótelinu og að meðal-
tali missa þátttakendur um 180 kg samanlagt á tveimur
vikum. Með ánægju og vellíðan auk árangurs sem
helsta markmið Heilsuótelsins hafa allir
haft sigur. Heilsumeðferðin byggir á
að ná tökum á lífsstíl til frambúðar.
Fjölmargir koma til hvíldar, auka ein-
beitingu og skerpa á þekkingu og vitn-
eskju um mataræði og hreyfingu.
Á næsta námskeiði, 15.-29.
apríl, nýta fjölmargir páska-
helgina til að huga að heilsu
til uppbyggingar sem nýtist
allt lífið.
Hálft tonn horfið !
Á tímamótum
11. - 14. apríl 2011