Fréttablaðið - 29.03.2011, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 29.03.2011, Blaðsíða 38
29. mars 2011 ÞRIÐJUDAGUR30 MORGUNMATURINN „Ég borða alltaf skyrdrykk og Kelloggs Special K á morgnana. Var reyndar að lesa að það er svo mikill sykur í því, það má því segja að ég sykri mig upp fyrir daginn.“ Elmar Johnson, læknanemi og fyrirsæta „Ég er miklu mýkri en leðurjakkinn gefur til kynna,“ segir Kristján B. Heiðarsson, trommari og for- sprakki þungarokkssveitarinnar Changer. Kristján, sem starfar sem leikskólakennari, hefur gefið út stuttskífuna From This Day Forward þar sem hann spilar og syngur þjóðlagaskotin popplög sem eru órafjarri þeirri tónlist sem hann hefur hing- að til flutt. „Það hafa margir verið að benda mér á að þeir hafi ekki átt von á svona fjölbreytni frá mér. Það er gaman að koma á óvart,“ segir Kristján og viður- kennir að ekki séu allir jafnsáttir við tónlistarsmekk sinn. „Ég hef lent í mörgum rifrildum við félaga mína um það sem ég hlusta á sem telst ekki gjald- gengt í metalheiminum. En ég er bara á því að góð tónlist er góð tónlist, alveg sama hvaða stefnu hún tilheyrir. Ég hlusta bara á það sem mér sýnist og það kemur engum öðrum við,“ segir hann léttur. Lögin þrjú sem eru á stuttskífunni voru tilbúin fyrir tveimur árum. „Eins og kannski heyrist í text- unum snýst þetta um stúlku. Þessi lög eru ákveðið uppgjör við nokkurra ára tímabili í mínu lífi og þess vegna vildi ég koma þessu frá mér áður en ég færi gera meira,“ segir Kristján, sem er að undirbúa stóra sólóplötu sem verður öll sungin á íslensku. Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds sér um hljóm- borðsleik og forritun á stuttskífunni, auk þess að eiga heiðurinn af upptökum og hljóðblöndun. Til að byrja með verður From This Day Forward eingöngu fáan- leg í gegnum tónlistarveituna Gogoyoko.com. -fb Úr þungarokki í þjóðlagapopp ÚR ÞUNGAROKKI Í POPPIÐ Kristján B. Heiðarsson fetar nýjar slóðir á nýrri stuttskífu sem nefnist From This Day Forward. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR „Áramótaheitið mitt var að gera eitthvað nýtt í hverri viku. Í þessari viku ákvað ég að læra flugmanninn en í þeirri síðustu litaði ég hárið á mér bleikt,“ segir María Birta Bjarnadóttir, leikkona og verslunareigandi. María Birta stefnir á að skella sér í einka- flugmannsnám strax í haust en hana hefur lengi dreymt um að fljúga um loftin blá. „Mamma mín er flugfreyja og amma var flugfreyja. Mig langaði ekkert í það starf heldur dreymdi mig um að stýra vélinni,“ segir María Birta en hún er svo sannarlega með mörg járn í eldinum enda að undirbúa sig undir aðalhlutverkið í myndinni Svartur á leik ásamt því að reka tvær verslanir í mið- bænum. María Birta hefur ákveðið að sameina báðar búðir sínar, Altari og skóverslunina Maníu, í húsnæði þeirrar síðarnefndu „Vin- kona mín kom með þessa hugmynd fyrir nokkrum dögum en ég var ekki alveg viss enda erfitt að loka einhverju sem þér þykir orðið svona vænt um. En það er auðveldara og hagstæðara að reka eina búð en tvær. Nú er ég byrjuð að pakka Altari ofan í kassa og ætla að fara að ráðast í breytingar á Maníu eftir nokkra daga,“ segir María Birta en Altari lok- aði í gær. „Ég var með köfun, að læra að spila á gítar og fara í einkaflugmanninn á lista yfir hluti sem ég vildi gera á þessu ári. Ég læri köfun í sumar, keypti mér gítar fyrir stuttu og búin að taka ákvörðun um flugnám. Þetta er því allt að smella.“ - áp María Birta í einkaflugmannsnám VERSLUNAREIGANDI, KAFARI, LEIKKONA OG FLUG- MAÐUR María Birta Bjarnadóttir er með mörg járn í eldinum en hún ætlar að láta drauminn rætast og fara í flugmannsnám. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Ég hafði uppi á þeim sem hafði keypt allt dótið þegar það kom til landsins haustið 1968 og svo hringdi í mig dóttir eins úr stjórn- inni sem átti eina fjórtán diska, bolla og grunna diska úr stellinu. Úr því varð svo líka viðtal sem styrkir mjög lokakafla myndarinn- ar,“ segir Þorsteinn J. Vilhjálms- son kvikmyndagerðarmaður. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá hefur Þor- steinn unnið að gerð heim- ildarmyndar um fyrsta útrásar ævintýri Íslands, veitingastaðinn Iceland Food Center, sem var opn- aður í London árið 1965 og átti að sigra breska bragðlauka. Þorsteinn var kominn með öll púsl sínar hendur fyrir utan matar- stell veitinga- staðarins sem virtust hafa gufað upp eftir að hafa verið sent með Goðafossi til Íslands árið 1968. En nú er stellið sem sagt komið í leit- irnar og heimildarmyndin nánast tilbúin til sýningar, hún verður frumsýnd um páskana á Stöð 2. Myndin er að mestu leyti byggð á gögnum sem Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur fann í skjalasafni Ríkisins, reikningar, myndir og bréf. „En myndin er líka saman- burður á tveimur gerólíkum heimum, Reykjavík 1965 og svo London 1965, og hvað þessi hættulega blanda af mikil- mennskubrjálæði og minni- máttarkennd getur leik- ið okkur hart.“ - fgg Þorsteinn Joð fann útrásarmatarstellið STELLIÐ KOM Í LEIT- IRNAR Þorsteinn Joð fann síðasta púslið í heimildarmynd sína um veitingastaðinn Iceland Food Center, fyrsta útrásarævintýri Íslendinga. „Ég verð bara hugsi og reyni að vera alvarlegur og þá lít ég svolítið hrika- lega út,“ segir Baldur Borgþórsson, einkaþjálfari hjá World Class. Frammistaða Baldurs í sjónvarps- þáttaröðinni Pressu hefur vakið töluverða athygli en hann leikur einkalífvörð Gísla Arnar Garðars- sonar í þáttunum (þeim sem vilja horfa á einhverja af endur sýningum Pressu er bent á að lesa ekki lengra). Á sunnudagskvöld framdi persóna Baldurs sjálfsmorð í fremur óhugn- anlegu atriði inni í sturtuklefa lík- amsræktarstöðvar eftir heljarinnar eltingarleik við lögregluna og Láru blaðakonu. Baldur viðurkennir að það hafi verið svolítið maus að taka upp þetta atriði. „Ég var svolítið búinn á því, maður varð að setja sig í tryllingsgírinn og vera í honum í kannski sjö klukkustundir. Sem er mjög orkufrekt og þetta var því erf- iðara en nokkur æfing sem ég hef tekið þátt í.“ Baldur hefur ekki áður reynt fyrir sér á leiklistarsviðinu og er eiginlega handviss um að Óskar Jón- asson, leikstjóri þáttanna, eigi sök- ina á því að hann hafi endað fyrir framan tökuvélarnar. „Hann er að æfa hérna í World Class og hefur eflaust heyrt í mér þegar ég er að æfa, það er svolítil fyrir ferð í mér þegar ég tek á því,“ segir Baldur, sem fór þó í prufur og hreppti því hlutverkið eftir hinum hefðbundnu leiðum sjónvarps- og kvikmynda- bransans. Og þegar kom í ljós að hlutverkið væri hans hvatti eigin- konan hann til stíga út fyrir þæg- indahringinn og prófa eitthvað nýtt. Baldur segir það hafa verið frá- bæra upplifun að taka þátt í þessu verkefni „Þetta gekk allt alveg rosa- lega vel og mér leið eins og ég hefði aldrei gert neitt annað. Leikarar, tökufólk og bara allir létu manni líða þannig.“ Baldur viðurkennir hins vegar að hann hafi ekki séð tvo fyrstu þættina þar sem hann kemur töluvert við sögu. „Við frúin ákváðum bara að hafa þetta þann- ig, að við myndum ekki horfa á þá. Ég ætla því bara að byrja að horfa á sunnudaginn næsta.“ freyrgigja@frettabladid.is BALDUR BORGÞÓRSSON: ÁKVAÐ AÐ HORFA EKKI Á SJÁLFAN MIG Í PRESSU Í tryllingsgírnum í sjö tíma HRIKALEGUR Baldur Borgþórsson þykir ákaflega vinalegur í útliti en hefur eflaust hrætt marga með frammistöðu sinni sem líf- vörður í sjónvarpsþáttunum Pressu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Tekur aðeins 7 mínútur að hella upp á 2,2 lítra

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.