Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1919, Page 1

Sameiningin - 01.09.1919, Page 1
anmmnmn. Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi íslendingo. gejið út af hinu ev. lút. kirlcjufélagi Isl. í Vestrheim.% XXXIV. 4rg. WINNIPEG, SEPTEMBER 1919 No 7 Nýi tíminn. “Eg veit aS trúin á virki fúin, — pa'S vantar bót —< En lát ei teygjast, svo losnir eigi Viö lífs þins rót.’’ Árin nokkur næstu á eftir byltingunum liafa venju- lega verið umhleypingasöm, — ókyrð verið fvrst í stað eftir breytingarnar, þar til komin var fylling liins nýja tíma. Menn muna hversu ókyrt var í þjóðlífinu í Banda- ríkjunum eftir borgarastríðið, sem þar var háð fyrir hálfri öld, en hversu fagur varð dagur hins nýja tíma, þegar búið var að jafna sig. Nýafstaðin er bylting sii, sem mest hefir verið í sögu mannkynsins. Bkki að undra, þótt órótt sé á eftir, og nokkrir kippir enn, þótt jarðskjálftinn mesti sé búinn. Hitt er undur meira, að ekki skuli vera enn hvassara og fleiri mannskaðaveður, eftir heimsskjálftann mikla. Gott eiga þeir, sem fá að lifa í nýja tímanum, sem kemur eftir liðin þau árin, er í það ganga að hreinsa völlinn og koma sér fyrir í húsinu nýja. Menn eiga ekki að vera óþolinmóðir þó erfitt sé í bili, og ekki æðrast þó nokkur óþægindi sé því samfara að flytja sig. Því mannkynið er að flytja sig í nýtt hús og búa um sig í nýjum tíma.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.