Sameiningin - 01.09.1919, Page 5
193
Minningar-gjafir.
Margvíslega má halda á lofti minningu dáinni ástvina
og hlúa að helgum endurminningum um þá, sem vér höfum
elskað hér, en mist um hríð. Á engan hátt fáum vér þó
reist ástvinum vorum fegurri minnisvarða í hjörtum sjálfra
vor, heldur en með því að gefa af elsku til dána vinarins
einhverju því fyrirtæki í ríki Guðs meðal vor mannanna,
sem til er stofnað af mannúð og kristilegum kærleika. Marg-
ir kristnir menn svala á þann hátt fórnarlöngun sinni og
kærleika til ástvina sinna, sem komnir eru á æðra stig hinn-
ar eilífu tilveru, en að líkindum eru oss þó enn þá nærri og
bæði gleðjast og hryggjast með oss.
pórður bóndi Sigmundsson, sem heima á í Garðarbygð
í N. Dakota, hefir nýlega minst ástríkrar eiginkonu sinnar,
er í vor sem leið var flutt heim til himneskra föðurhúsa, á
þann hátt að gefa á afmælisdegi hennar til minningar
um hana sína fimtíu dollarana hvoru fyrirtæki kirkjufélags-
ins, gamalmennaheimilinu og skólanum. Gjafirnar afhenti
hann séra Kristni K. ólafssyni og fylgdi þeim bréf það, sem
hér fer á eftir, og skýrir það vel tilfinningar gefandans:
“Séra K. K. Ólafson,
Mountain, N. Dak.
Kæri vinur!
Á afmælisdag Ástu sál., konu minnar, 1. Ágúst síðastl., til-
einkaði eg hinum tveim stofnunum kirkjufélagsins, gamal-
mennaheimilinu Betel á Gimli og Jóns Bjarnasonar skóla í
Winnipeg sína $50.00 hvoru, til minningar konunnar minnar
sálugu, Ástu Sigmundsson, er lézt 1. Apríl 1919. Eg óska þess
af bljúgu og barnslegu hjarta, að Guð blessi og ávaxti þessa
litlu gjöf, eins og hann hefir, samkvæmt sínu blessaða kærleiks-
lögmáli blessað starf okkar á liðinni tíð.
Með blessunaróskum til allra hinna þreyttu og vegmóðu í
Jesú nafni.
Th. Sigmundsson”.
Fundur framkvæmdarnefndarinnar.
Svo sem menn muna, var sú breyting gjörð á síðasta
kirkjuþingi, að starfsnefndir félagsins voru sameinaðar í
eina nefnd sjö manna, og nefnist hún framkvæmdarnefnd.
Ákveðið er að nefndin haldi fundi á ársfjórðungi hverjum.