Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1919, Page 6

Sameiningin - 01.09.1919, Page 6
194 Fyrsti fundur nefndarinnar var haldinn í herbergi einu í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg, 4. og 5. Sept. Allir nefndarmenn sátu fundinn. Byrjaði fundurinn með biblíu- lestri og bænagjörð. Formaður nefndarinnar er forseti kirkjufélagsins og skrifari hennar er skrifari kirkjufélags- ins, séra Fr. Hallgrímsson. Auk þeirra eru í nefndinni • Séra Kristinn K. Ólafsson, séra Jóhann Bjarnason, Jón J. Vopni, Halldór S. Bardal og Jón J. Swanson. Starfsmál kirkjufélagsins voru rædd og framkvæmdum þeirra ráðstafað. Heimatrúboðið var fyrst til afgreiðslu. Var hr. H. S. Bardal falið að skrifast á við prestlausa söfnuði og grensl- ast eftir því, hvar og hvernig þyrfti að liðsinna söfnuðum þetta ár. Á síðasta ári var miklu kostað til trúboðs-starfsins heima fyrir og gekk því sjóðurinn til þurðar. Nú er enn miklu til kostað, sérstaklega í sambandi við komu hr. S. Á. Gíslasonar vestur. Borgar kirkjufélagið 600 doll. upp í far- gjald fjölskyldu hans. pegar auk þess hafði verið áætlaður kostnaður við trúboðsstarfið þetta ár, kom í Ijós að safna verður eitt þúsund dollurum í Heiðingjatrúboðssjóð nú í haust. Var séra Kristni K. Ólafssyni falið að gangast fyrir fjársöfnun þessari, og má þess vænta, að söfnuðirnir láti féð greiðlega af hendi rakna. Heiðingjatrúboð. Samþykt var að kaupa, samkvæmt ósk trúboðans, og senda honum ritvél, er kostar 60 doll. Var á kirkjuþingi skotið saman 52 doll. til þess og nú því við- bætt úr sjóði, sem á vantaði. Séra Octavius Thorláksson hefir bent á það, að einn samverkamanna hans í Japan, Rev. Horn, sé nú staddur hér í landi og gæti það verið gott og gagnlegt, að fá hann til að heimsækja einhverja söfnuði kirkjufélagsins. í annan stað kom fram áskorun frá trú- boðanum um að senda sem fyrst kven-trúboða til Japan. Var séra Kristni falið að leita upplýsinga um þetta hvort- tveggja hjá yfirstjórn trúboðans í Lútersku kirkjunní sameinuðu. Sunnudagsskólarnir. Ýms atriði þess máls voru rædd all-lengi, og var síðan hr. Jóni J. Swanson falið að hafa mál- ið til íhugunar og undirbúnings undir næsta fund neíndar- innar. En hr. Jóni Vopna var falið að grenslast eftir því, hversu margir skólar æski eftir sérprentun af lexíum þeim, sem birtar eru í “Sameiningunni”, og ef nægar pantanir koma, svo af sérprentun verði, þá að annast um útsöluna.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.