Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1919, Síða 10

Sameiningin - 01.09.1919, Síða 10
198 kurteis. Við þurftum því að byrja alveg að nýju að öllu leyti. Á hverri viku gjörði eg áætlun um verk hennar fyrir hvern dag, gaf henni uppdrátt af því svæði, sem hún átti að fara um og fyrirsögn um heimilin, sem hún átti að vitja. Og í byrjun hverrar viku gaf hún mér skýrslu um starf sitt á vikunni liðnu Starf hennar virtist í fyrstu ætla að hepn- ast vel, en eftir ítrekaðar tilraunir til að kenna henni, kom- umst við að þeirri niðurstöðu, að hana skorti grundvallar- skilyrðin til þess að geta verið góð Biblíu-kona. Hún var bersýnilega orðin of gömul til þess að læra, svo að við neyddumst af þeirri ástæðu, og ýmsum öðrum, til þess að láta hana hætta. Við höfum því sem stendur enga Biblíu- konu, og það er sannfæring mín, að okkur er betra að hafa enga, fyr en við getum undirbúið einhverjar undir það starf í skóla sem við eigum sjálfir, sem við biðjum öll að verði sem fyrst. En við erum að ráðgjöra að konan mín byrji að hausti á einhverju reglubundnu starfi meðal kvenna, með aðstoð Mrs. Takashima. f þessu sambandi langar mig til að biðja um kven- trúboða, — að íslenzkur kven trúboði komi hingað til okkar að ári. Við þurfum á kven-trúboða að halda, til þess að hafa umsjón með starfinu meðal kvenna og barna. Konan mín þráir að hér verði komið upp munaðarleysingja-hæli með “Kindergarten”-deild; en til þess að af því geti orðið, þurf- um við að fá annan kven-trúboða henni til aðstoðar. Hæf til þess starfs myndi vera hver íslenzk stúlka, sem við al- þýðu-skólakenslu hefir fengist og er heilbrigð, ef hún er vel kunnug sögum biblíunnar og boðskapi þeirra um þörf mann- anna fyrir frelsara, og þráir af hjarta að leiða aðra til Guðs. Okkur er mjög ljúft að svara fyrirspurnum þessu viðvíkj- andi og láta í té allar þær upplýsingar, sem í okkar valdi stendur. Og fagnaðarefni væri það okkur stórkostlegt, að fá bréf frá einhverri ungri kenslukonu, er hefði í hyggju eða væri fáanleg til að koma hingað til Japan til trúboðsstarfs. Tækifærin eru takmarkalaus. Er ekki einhver ung stúlka til í kirkjufélagi okkar, sem vill koma? petta er ekki sagt í þeim skilningi, að ungir menn séu ekki líka velkomnir til starfsins; en hér í Yagoya er þörfin brýnust á kven-trúboða, og það þolir enga bið. Eg hefi beðið trúboðsnefndina um að bæta úr þessari þörf; en kærast af öllu væri okkur, ef einhver í okkar eigin íslenzka kirkjufélagi vildi heyra þessa köllun: “Kom og hjálpa okkur!”

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.