Sameiningin - 01.09.1919, Blaðsíða 19
207
Ó, blessað líknar bjargið mitt,
bænina heyrðu mína:
Láttu nú friðar ljósið þitt,
lifandi Drottinn, skína;
tendraðu lampaljósið mitt,
þér lofsöng fái’ eg saminn;
blíði Jesú, við brjóstið þitt,
eg bið af hjarta. Amen.
Bréf frá höfundi lofgjörðar þessarar var birt í Janúar-
blaði Sameiningarinnar, með loforði um að birta bænina þegar
friður væri saminn. Nú er svo komið, að friðarskjalið er undir-
skrifað og hefir þegar öðlast gildi, þótt ekki hafi það enn verið
samþykt af öllum hlutaðeigandi þjóðþingum. Allir sannkristnir
menn geta fundið tilfinningar hjartna sinna í bænarorðum
“gömlu konunnar”.
Á grafreitnum.
ó! þú barnið mitt blíða
blundar hér undir mold;
eftir mér ertu að bíða,
önd þín er laus við hold.
Floginn í geiminn fríða,
frelsarans nærri stól,
í flokki frélstra lýða
fegri en nokkur sól.
í maí 1899, J. E.
Samband lútersku kirkjufélaganna í Bandaríkjunum (Na-
tional Lutheran Council) hefir sent nefnd, skipaða ágætis
mönnum úr sínum hópi, til Norðurálfunnar til að kynnast ástæð-
um og þörfum þar, einkum innan vébanda lútersku kirkjunnar,
og að vera leið-beinandi um þá líkn og hjálp líkamlega og and-
lega, sem kirkjan í Ameríku vill svo gjarnan láta í té á þessu
viðreisnartímabili. Lútersku kirkjunni á Frakklandi hefir
þegar verið veittur þýðingarmikill stuðningur, fjárhagslega og
andlega. Leiðtogarnir þar kannast við hve ómetanlegur stuðn-
ingur þeim sé að bróðurhöndinni, sem rétt er yfir hafið. parf-
irnar í öllum stríðslöndunum á meginlandinu verða athugaðar
og hjálp veitt eftir því sem unt er.