Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.09.1919, Side 21

Sameiningin - 01.09.1919, Side 21
209 stöðu og trúboðsstarfi. Vonandi verður áframhald af þeim áhuga. “Heróp” Hjálpræðishersins er nú gefið út á 40 tungumálum. Norska kirkjan í Ameríku er ötul mjög í starfi sínu. Áætl- að er, að til starfsins þurfi á næsta ári upphæð er nemur $2,312,- 000. Sameinaða kirkjan danska telur að eins um 15,000 fermda meðlimi, en setur sér þó það takmark að safna $300,000 til styrktar mentastofnunum sínum. Missouri sýnódan telur 200 söfnuði í Canada og 82 presta. Mikið er ritað um afleiðingarnar af vínbanninu, sem komst á um öll Bandaríkin 1. júlí síðastl. Vitanlega eru misfellur á því að lögunum sé framfylgt allstaðar eins og vera ætti, en þrátt fyrir það er árangurinn mikill. Innstæður í bönkum í borginni Detroit hafa vaxið um 25 miljónir síðan vínbannið komst á. Verzlun hefir aukist, í stað þeirrar verzlunardeyfðar, er margir spáðu að mundi verða vínbanninu samfara. Glæpir og spellvirki víða farið þverrandi; færri ósjálfbjarga, og yfir- leitt flest af því góða, sem bannvinir spáðu að af breytingunni mundi stafa, byrjað að koma í ljós. Vínbannið gerir eflaust öfl- um hins illa erfiðara fyrir, en greiðir götu því sem betur má "•■va. FYRIR UNGA FÓLKIÐ. I>essa deilð annast séra F. Hallgrímsson. Hjúkrunarkonan. Hún Jóhanna McFadden var yngsti hjúkrunarneminn a spítalanum, og hún var að þvo gólf. Hún leit fram og aftur eftir göngunum löngu á öðru lofti; yfir-hjúkrunarkonan sást hvergi og allar dyr voru aftur, og þess vegna áleit hún óhætt að tala dálítið við sjálfa sig, en í því fann hún oft fróun, ef eitthvað lá þungt á huganum. “Eg veit ekki hvort mér finst meir þreytandi”, sagði hún, “þessi stöðugi þvottur og ræsting, eða það, hve alt er hér alveg eins og það á að vera: hljótt og hreint og sótthreinsað. Mig langar stundum svo ákaflega til að sjá gólfið sporað eða stól settan um koll, eða eitthvað, sem raskar þessu stöðuga tilbreytingarleysi. Eg má til að skreppa

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.