Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1919, Page 22

Sameiningin - 01.09.1919, Page 22
210 niður og horfa snöggvast á myndina, til þess að jafna mig dá- lítið. Hún gekk hljóðlega fram eftir göngunum, því það var hún búin að venja sig á, og svo hljóp hún léttilega niður stigann. Hugmyndir hennar um sjúkrahús og hjúkrunarkonur höfðu tekið miklum breytingum. Nágrannarnir heima, 40 mílur frá höfuðborginni, höfðu sagt um hana: “Jóhanna er sköpuð til að vera hjúkrunarkona, og hún verður ekki lengi að læra alt það, sem unt er að kenna á sjúkrahúsunum í borginni”. peir höfðu jafnvel haft orð á því, að hún myndi geta kent forstöðu- mönnunum þar sitt af hverju. Til allrar blessunar höfðu lofs- yrði þeirra ekki gjört Jóhönnu stæriláta, því það hefði ekki greitt fyrir námi hennar. En komið hafði það fyrir að henni hafði fallist hugur og hana hafði langað til að hætta, taka sam- an dót sitt og fara heim aftur á sveitabýlið litla til systkinanna yngri, sem hún vissi að myndu fagna komu hennar af öllu hjarta. petta hafði helzt sótt á hana, þegar hún var að þvo gólf, eða vinna önnur ógeðfeld verk, sem nemendum voru falin. En myndin hafði altaf hjálpað henni. pað var enginn í skrifstofunni á fyrsta lofti, og hún fór inn í biðstofuna. par var líka alt í röð og reglu, — borð á miðju gólfi, legubekkur og þrír samstæðir stólar, og stór olíumynd — ekki þó myndin, sem hún var að hugsa um — í gyltri umgjörð á aðalveggnum. “Hvergi neitt, sem líkist heimili!” sagði hún, og mátti heyra heimþrána í röddinni. Svo gekk hún að því, sem henni þótti mest til koma af öllu í herberginu: mynd af Kristi, sem var að lækna barn, sem var í fangi móður sinnar. Friður færð- ist yfir svip hennar. pessi mynd hafði öllu öðru fremur vakið athygli hennar daginn sem hún kom fyrst á spítalann til þess að byrja námið. Hún hékk á veggnum milli dyranna og glugg- ans, og var góð birta á henni. Einhver orð voru letruð á ein- falda eikarumgjörðina, — líklega nafn myndarinnar; en Jó- hanna þurfti ekki að vita hvað myndin var kölluð. Hún horfði á biðjandi andlit móðurinnar og hinn blíða meðaumkvunarsvip hans, sem gat með einu orði unnið dásemdarverkin miklu; og úr svip hennar skein þráin eftir að geta hjúkrað og hjálpað þjáðum. En þá heyrði hún sagt rétt fyrir aftan sig: “Miss McFadden, þú hefir ekki lokið við gólfþvottinn á öðru lofti. Ert þú búin að gleyma honum?” “Nei”, svaraði hún yfirhjúkrunarkonunni blíðlega, “eg var ekki búin að gleyma honum; en mér gengur þvotturinn betur, þegar eg hefi verið dálitla stund hér.” Og svo fór hún til þess að ljúka við vinnu sína. “Einkennileg stúlka”, sagði yfir-hjúkrunarkonan við sjálfa sig, þegar Jóhanna hvarf upp stigann. Hún tók aftur glaðlega til við gólfþvottinn. Kærleikur hennar til starfsins, sem hún hafði kosið sér, hjálpaði henni

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.