Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1919, Síða 24

Sameiningin - 01.09.1919, Síða 24
212 undan batt ihann spotta á eins margar af tánum sínum og dagar voru eftir, og leysti einn þeirra á hverjum morgni, og þegar hann leysti þann seinasta, þá var hann viss um að tíminn væri kominn til þess að bera fram heillaóskir sínar, — en hann varð samt einum degi á undan tímanum, því hann hafði sparkað einum þeirra af sér eina nóttina. Mamma vildi ekki lofa okkur að hlæja að honum, því hún sagði að það væri betra að muna eftir tyllidögum einum degi of snemma, en að gleyma þeim alveg. Mömmu þykir ósköp vænt um tyllidaga, hún segir að dálítil tilbreyting haldi manni betur vakandi.” Sjúklingurinn var að hlæja að þessari sögu, þegar Dr. Meade gekk fram hjá dyrunum, og hann leit inn alveg hissa, því þessi sjúklingur hafði aldrei einu sinni brosað síðan hann kom á sjúkrahúsið. En Jóhönnu varð hverft við, því hún var hrædd um að það kynni að verða talin yfirsjón, að koma sjúk- lingi til að hlæja. En hún gleymdi þessu fljótt, og þegar Patreksdagur kom, prýddi hún diskana og skeiðarnar með péturselju laufum; og hún sá ekki eftir þeirri fyrirhöfn, þegar hún varð þess vör, að sjúklingunum þótti vænt um þá tilbreytingu. En þann dag, þegar hún var að bera diskana út aftur, heyrði hún óvart orð af því, sem Dr. Meade og Miss Flynn voru að tala saman. Miss Flynn talaði fyrst, og hún heyrði þetta til hennar: “Miss Mc- Fadden — of örgeðja — einkennileg—-hrædd — hjarta.” Svo heyrði hún Dr. Meade svara: “Við getum ekki altaf vitað um hjartað, með öllum okkar rannsóknum, en eg er hræddur um—” Jóhanna hafði ósjálfrátt numið staðar, og það var langt frá því, að henni væri rótt innanbrjósts. En þá datt henni alt í einu í hug að hún væri að gjöra sig seka í því, að standa á hleri, og hún flýtti sér burtu. pegar hún var komin inn í her- bergið sitt, lét hún niður aftur bréf, sem hún hafði verið byrjuð á að skrifa heim til sín, því henni fanst hún ekki vera í sem beztu skapi til bréfaskrifta. Ef til þess kæmi, að hún yrði látin hætta, þá væri enginn bættari með því, að hún færi fyrirfram að gjöra ættingjum sínum leiðindi út af því. Og hvað sem því leið, þá var enn nokkuð eftir af reynslutímanum, og þann tíma gat hún notað til þess að gjöra eitthvað fyrir þá, sem umsjón hennar voru faldir. Og þó að hún yrði að hætta við námið á spítalanum. fann hún að hún mundi samt geta orðið að liði einhverjum sjúkling- um, sem ættu ekki kost á að hafa hjá sér lærða hjúkrunarkonu. Hún þurkaði sér um augun og gekk niður í borðstofuna, til þess að horfa á myndina, og á meðan hún var að virða hana fyrir sér hugfangin, kom Dr. Meade inn, og hún hrökk við. “pykir þér 'hún falleg?” spurði læknirinn; hann var venju- lega orðfár.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.