Sameiningin - 01.09.1919, Page 28
216
frelsaranum? Andrés bróðir hans kom meS hann til Jesú (Jóh.
1. 41-43). 6. Hvernig fékk hann nafnið Pétur og hvað merkir
það? Jesús nefndi hann “Pétur”, sem þýðir: klettur, og átti að
tákna þá bjargföstu trú, sem Pétur öðlaðist (Matt. 16, 15-18).
7. Var Pétur að eðlisfari bjargfastur í lund? Nei, hann var
óstöðugur og örgeðja, en náð Drottins gjörði hann að staðfastri
hetju trúarinnar. 8. Hvað vita menn um ætt og uppruna Péturs?
Hann var fiskimaður frá Galíleu, eins og Jóhannes, en talsvert
eldri. Hann var kvæntur. Bróðir hans Andrés varð postuli
með honum. 9. Hvað getum vér lært af þessari lexíu? Fyrst
og fremst það, hvernig einn maður getur vísað öðrum á frels-
arann. Fyrstu tveir lærisveinanna fóru til hans eftir orðum og
vísbending Jóhannesar. Annar þeirra kemur svo með þann
þriðja. Enn fremur sjáum vér, hvað það er, sem hænir menn
að Jesú. pað er vitneskjan um það, að hann sé hinn sanni
Kristur, sonur Guðs, sem frelsar mennina frá syndinni (Jóh.
1, 29-34. 36. 42). í þriðja lagi hvað það er, að vera sannur læri-
sveinn: að koma til frelsarans sjálfs, dvelja hjá honum og vera
í fylgd með honum á hverjum degi. 10. Hverjir geta orðið læri-
sveinar? Allir, sem afneita syndinni og fylgja honum af ein-
lægu hjarta (Matt. 9, 9; Mark. 2, 13-17).
II. LEXÍA. — 12. OKTÓBER.
Mannaveiðar.—Mark. 1, 14-20.
Minnistexti: Jesús sagði við þá: Komið og fylgið mér, og
eg mun láta yður verða mannaveiðara.—Mark. 1, 17.
Umræðuefni: Pétur og Jóhannes gjörast þjónar Krists.
Til hliðsjónar: Matt. 4, 18-22; Lúk. 5, 1-11; 14, 15-24; Jak. 5,
19-20; Opb. 22, 17. 1. Hvað er samhengið milli þessarar lexíu
og þeirrar síðustu? Jesús fór norður í Galíleu með lærisvein-
ana fimm, sem slegist höfðu í för með honum þegar hann kom
aftur til Jóhannesar skírara úr eyðimörkinni (þeir voru:
Andrés, Jóhannes, Pétur, Filippus og Natanael—Jóh. 1, 35-52).
f Kana í Galíleu var Jesús í brúðkaupsveizlu með skyldfólki
sínu og lærisveinum. par gjörði hann fyrsta kraftaverkið í
augsýn lærisveina sinna — breytti vatni í Ijúffengt vín. Sama
árið í Apríl-mánuði fór Jesús aftur til Jerúsalem til þess að
vera þar á páskahátíðinni. Eftir það var hann í átta mánuði
suður í Júdeu og kendi fólkinu á ýmsum stöðum. Frá þessari
för segir Jóhannes einn, en Markúsar guðspjall, sem eflaust er
bygt á frásögn Péturs, getur ekkert um hana. Fyrir því halda
menn, að Jóhannes einn hafi farið suður með honum, en að Pétur
og hinir hafi orðið eftir í Galíleu. Texti þessarar lexíu ber
það með sér, að lærisveinarnir, sem hér er um að ræða, voru
enn ekki orðnir stöðugir fylgjendur Jesú, þegar hann kom norð-
ur til Galíleu aftur. 2. Hvar og hvenær gjörðist atburðurinn,