Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1919, Síða 32

Sameiningin - 01.09.1919, Síða 32
220 Jónadabs, um að þeir skyldi ekki smakka vín, né hætta við hið einfalda hirðingjalíf feðra sinna. petta boð höfðu þeir haldið vandlega. 5. Hví lét Drottinn spámanninn reyna þá á þennan hátt? Til styrktar sjálfum þeim, óefað, og eins til þess að áminna Júdamenn, sem um þær mundir voru orðnir spiltir af óhófsömum lifnaði. 4. Hvað getum vér lært af Rekabítum? (a) Trygð við forfeður og látna leiðtoga. pað er ekkert gæfumerki, a'o kasta frá sér gulli feðra sinna, eins og fánýtu glingri. (b) Staðfestu. Sá sem vill halda sér við það sem rétt er, verður að hafa þrek til að standa af sér freistingar og þola árásir, háð og jafnvel hatur. Guð veiti okkur styrk til þess, ef vér berj- umst undir hans merki og leitum hjálpar hans. (c) “Einfalt líf”. peir héldu sér við fornan, óbrotinn lifnað á glysgjarnri óhófs-öld. Gáum að öldinni, sem vér lifum á. Hún hugsar of mikið um prjál, skemtanir og góða daga. Feður okkar fóru ekki á mis við sanna lífsgleði, þótt þeir hefðu minna handa á milli. (d) Bindindi. Forðastu víndrykkju eins og heitan eld. Sú viðvörun hljómar frá heilagri ritningu, frá reynslu mann- anna, frá samvizku kristinna þjóða. 5. Hverjar eru afleiðingar víndrykkjunnar? Fátækt, heimilisböl, sem kemur harðast niður á konum og börnum drykkjumannsins; spilling á líkama og sál; dauði, líkamlegur og andlegur. 6. Hvað er bindindi, í kristi- legri merking orðsins? Að láta á móti tilhneigingum sínum, þegar nautnin er óholl sjálfum oss, eða bræðrum vorum til hneykslunar, eða móti skýlausu boði Drottins. 7. Hver er skylda kristins manns gagnvart bindindismálinu? Hann á að vinna af kappi að öllu því, sem er öðrum mönnum til góðs. Verkefni: 1. Líf Júda á dögum Rekabíta. 2. Bindindis- kenning ritningarinnar. Til sunnudagsskólanna. Sunnudagsskólalexíur þær, sem birtar eru í Sameiningunni, verða sérprentaðar ef pöntuð verða nægilega mörg eintök. Verð árgangsins verður 25c. peir s.d.skólar, sem þessu vilja sinna, gjöri svo vel að láta undirritaðan vita fyrir 15. Október næst- komandi hve mörg eintök þeir vilja kaupa, ef af prentuninni verður. John J. Vopni. Box 3144, Winnipeg. “BJARMI”, kristilegt heimilisblatS, kemur út I Reykjavik tvisvar á mánuSi. Ritstjóri cand. S. Á. Gíslason. Kostar hér í álfu 85 ct. árgangurinn. Fæst í bókaverzlun Finns Jónssonar I Winnipeg. “SAMEININ'GIN” kemur út mánaSarlega. Hvert númer tvær arkir heilar. VerS einn dollar um áriS. Ritstjóri: Bjöm B. Jónsson 774 Victor St. Winnipeg. — Hr. J. J. Vopni er féhirðir og ráðs- máSur “Sam.”—Addr.: Saineiningin, P. O. Box 3144, Winnipeg, Man

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.