Sameiningin - 01.06.1913, Side 2
98
anir barna í þeim efnum; heldr eigi þau sjálf að fá að á-
kveða stefnu sína á því svæði, þá er til þess sé hentugr
tími kominn. Eg vildi leyfa mér að segja, að sá, sem slíku
heldr fram um trúarkennslu barna, er annaðhvort sjálfr
blindaðr eða að leitast við að blinda einhverja aðra.
Vér lærðum það forðum í skóla, að ‘náttúran hefir ó-
beit á auðu rúmi’, og víst er um það, að auðn í manns-
hjartanu á sér ekki stað. Sé hjartað ekki fyllt með trú, fyll-
ist það af vantrú. Œskumaðr tuttugu og eins árs, sem
ekki trúir á guð, hefir þegar afneitað guði. Sá, sem á
þeim aldri liirðir ekkert um biblíuna, liefir þegar ályktað,
að láta ekki þá bók hafa álirif á líf sitt. Sá, sem á þeiin
aldri liefir talið sér trú um, að Kristr sé ekki guðlegs eðlis,
hefir þegar sett hann í hóp með syndugum mönnum. Á-
hrifum þeim, sem móta líf vort, höfum vér orðið fyrir í
œsku, og heimskulegt er það af foreldrum að trúa því, að
piltr eða stúlka lialdi sér á fullorðinsaldri ósjálfrátt eða af
einberri náttúru-hvöt á vegi réttlætisins, ef foreldrarnir
liafa ekki gjört sér neitt far um að liðsinna þeim í þeim
efnum meðan þau voru börn.
Er eg lít yfir liðna æfi mína, lilýt eg að gjöra þá játn-
ing, að eftir það, er eg varð maðr fulltíða, iiefi eg lítið fœrt
út þekking mína á siðferðis-málum eða þeim, er ráða und-
irstöðu mannlegs lífs. Og er eg segi þetta um sjálfan
mig, geng eg að því vísu, að eins sé um yðr alla, er orð
mín lieyrið. ,
Tíu ára gamall var eg, er eg hóf skólagöngu. Þar á
undan hafði móðir mín sagt mér til lieima. Meðal annars
innrœtti liún mér slíka óbeit á formælingum, að eftir að eg
var kominn í skóla fór eg ætíð burt, er eg heyrði drengi í
samrœðum viðhafa 1 jótt orðbragð; og enn er svo, að heyri
eg einhvern blóta, þá langar mig til að eg væri kominn sem
lengst burt frá honum. Þessi tilfinning mín á rót sína að
rekja til þess, sem móðir mín kenndi mér áðr en eg var
orðinn tíu ára. Þetta er einn þáttr álirifanna, sem eg
varð fyrir af móður minni snemma í œsku.
Faðir minn átti og sinn þátt í því að ala mig upp til
siðferðilega rétts lífs. Spilamennska öll um peninga var
honum viðrstyggð, og hann gjörði engan greinarmnn á
því, livort spilamennskan fór fram í heimaliúsum ellegar