Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.06.1913, Qupperneq 10

Sameiningin - 01.06.1913, Qupperneq 10
io6 ar hliðar; og ef menn loka því auganu, sem snýr að þeirra eigin hlið, og sjá þar enga mótsögn — enga flcekju —, en einblína með hinu auganu á gagnstœðu hliðina, og sjá þar ekkert nema mótsagnir og flœkjur, þá er sannleikrinn jafn-hulinn eftir sem áðr. En svo er ekki nóg með; það, að menn strandi þannig á verulegum mótsögnum, heldr leggja þeir sig oft í framkróka til að snúa út-úr, hártoga, misskilja, eða rangfœra, til að geta skap- aö mótsagnir úr engu. Menn gjöra sig þannig oft mjög ómerki- lega, er þeir ætla að gjöra sig merkilega, einsog eg gaf í skyn áðan. Varla tekr það tali, hve spillandi sú aðferð er; því hvað er unniö við það, að geta hártogað orð andstœðings: á þann hátt, að úr þeim verði mótsögn? Hva'ð grœðir sannleikrinn við það? Eða þá með því að leiöa hjá sér alla sanna rannsókn og íhugun undireins og komiö er auga á eitthvað, sem á yfirborðinu viröist andstœtt öðru? —Nei, sannleikanum verðr aldrei rudd braut með hártogunum og hugsunarleysi. Og þó eru sjálfsagt níu tíundu hlutar af mótsagna-tali svo kallaðra sannleiks-leitenda af þesskonar toga spunnir. Því segi eg það: varizt að láta sann- leiks-leit yðar lenda í eintómu mótsagnasnuðri. Ofangreind mótbára yðar gegn afstöðu kristinnar trúar við gyðingdóminn er gott sýnishorn af fánýtu mótsagna-tali. Þér segið, að tvær kenningar lúterskar komi í bága hvor við aðra: kcnningin um guölegan innblástr ritningarinnar og kenningin um 'hálfan sannleik e'ð'a beina villu gyðingdómsins. Setjum nú svo, að þessi mótbára sé vel til fundin hjá yðr — að hér sé í raun og veru um mótsögn að rœöa. Gott og vel, en hvað um það? Getr ekki önnur hvor þessi kenning veriö rétt fyrir því? Hvor þeirra er þá röng? eöa eru þær báðar rangar? Eða hvað hafið þér sannað eða hrakiö með þessu? Þér hafið slegiö yðr til riddara; það er allt og sumt. En svo er ekki því að heilsa, að þessi mótbára yðar gegn lúterskunni sé vel til fundin. Síðr en svo. „Mótsagna-flœkjan“, sem þér talið um, er ekki í kenningunum lútersku (eða kristnuj, heldr í yðar eigin hugsun. Rökfœrslan hjá yðr er á þessa leiö: Lúterskan telr gyðingdóminn „hálfan og villandi sannleik eða beint rangan“. ,Nú er öll heilög ritning ,ekta‘ gyðingdómr og því röng og villandi. Samt telr lúterskan ritninguna óskeikula. Biblían er því bæði röng, villandi og óskeikul, samkvæmt lút- erskri kenning. Hugsun þessi flœkist öll utan-um snurðu, sem þér hafiö sjálfr sett á þráðinn. Eöa hver hefir frœtt yðr á þvi, að öll ritningin sé ,ekta‘ gyðingdótnrf Hafið þér gleymt nýja

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.