Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.06.1913, Qupperneq 30

Sameiningin - 01.06.1913, Qupperneq 30
120 mesta flýti og búið þar um hann. Seint um kvöldiS talaSi hann nokk- ur orö viS einn förunauta sinna, og lagðist svo til svefns. En kl. 4 um morguninn vaknaði piltr, sem svaf við kofadyrnar, til að vera til taks, ef hann kynni aS þurfa hans viS, og sá hann þá, aS Eivingstone kraup viS fletiS sitt og hallaSist fram-á þaS, einsog hann væri aS biSj- ast fyrir, En er betr var aS gætt, kom þaS í ljós, aS hann varr liSinn. Hinir tryggu förunautar hans bjuggu um lík hans og fluttu þaS til sjávar, til þess aS hann gæti hlotiS legstaS á ættjörS sinni. LeiSin var löng, yfir þúsund mílur, og margar torfœrur á leiSinni; og hvaS eftir annaS var reynt aS aftra þeim frá aS koma þessarri fyrirætlan í fram- kvæmd. En þeir höfSu tekiS þetta upp hjá sjálfum sér, af tryggS viS minning mannsins, sem hafSi veriS þeim svo góSr, og létu ekkert aftra sér frá því; en níu mánuSi voru þeir á leiSinni meS líkiS til Zanzibar. ÞaSan var þaS flutt sjóveg til Englands, og greftraS 18. Apríl 1874 í Westminster Abbey, þarsem brezka þjóSin geymir lík hinna frægustu og beztu manna sinna. VI. Niðrlagsorð. MikiS verk liggr eftir David Livingstone. Hann ferSaSist alls um 29,000 mílur í Afríku og kannaSi þaS landflæmi, sem er aS stœrS um eina milíón fermílna. AllsstaSar, þarsem hann fór, prédikaSi hann fagnaSarerindiS og líknaSi sjúkum. Verki hans hélt Stanley og aðrir áfram, og hin mikla hugsjón hans komst í framkvæmd: aS SuSr- Afríka yrSi opnuS menningarstraumum NorSrálfunnar; og jafnhliSa því ávannst þaS tvennt, aS kristiS trúboS breiddist út-um allt þaS land, og þrælaverzlunin var særS ólífissári, þótt ekki sé hún því miSr alveg útdauS þar enn. Ef aS því er spurt, hvaS hafi átt rnestan þáttinn í því aS gjöra Livingstone aS öSru eins mikilmenni og hann reyndist, þá liggr svarið beint viS: þaS var trúin. 1 trúarlífi sínu var hann svo algjörlega einlægr, gaf sig guSi á vald allan og óskiftan og helgaSi allt líf sitt þvi eina mikla markmiSi, aS þjóna honum. Sú trú veitti honum þá djörfung, aS hann kunni ekki aS hræSast, og þá auömýkt, aS lof manna gat ekki spillt honum. Heitasta bœn hans var alltaf sú, aS honum mætti auSnast aS líkjast felsara sínum sem mest. Á nýársdag 1867 skrifaSi hann í dagbók sína: „Eg biS hann, sem er fullr náSar og sannleika, aS láta lunderni sitt koma fram í mér. NáS—fúsleik til aS gjöra öSrum gott; sannleika—sannleiksást, einlægni, göfgi—, sakir miskunnar hans.“ Og fimm árum síSar, næst-síSasta afmælisdaginn, sem hann lifSi, skrifaSi hann í dagbókina: „Fœðingardagr minn. Minn Jesús, minn konungr, mitt líf, mitt allt! Aftr helga eg þér mig allan. Tak því á móti mér! Og gef mér, miskunnsami faSir! aS ljúka starfi mínu áSr en þetta ár er á enda. Þess biö eg i Jesú nafni. Amen.“ — Kristr lifSi í þessum lærisveini; og því varS lærisveinninn ;svo mikill og góSr maSr og líf hans svo mörgum til blessunar.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.