Sameiningin - 01.06.1915, Síða 1
amcinmgin.
Mánaðarrit til stwðnings kirkjw og kristindómi faUndinga.
gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi fsl. í Vestrheimi
RITSTJÓRI: BJÖRN B. JÓNSSON.
XXX. árg. WINNIPEG, JÚNÍ 1915. Nr. 4.
Sameining.
Kristnum mönnum er að verða með hverjum degi
Ijósara, hvílíkt böl stafi af sundrung þeirri, sem ávalt er
í kirkjunni. Þótt það hafi verið búið að vekja eftirtekt
áður og tilraunir byrjaðar í þá átt að sameina, þá virð-
ist nú að stríðið muni verða til þess, að koma því máli
alvarlega á dagskrá. Menn sjá, að það er skömm að því,
að vera að bítast og hatast út af fræðakerfum og skóla-
speki, nú þegar alt ætlar um koll að keyra og neyðaróp-
in heyrast úr öllurn áttum. Á þessum erviðu tímum þarf
lieldur ekki meir en meðal búvit til að skilja það, hvílík
fásinna það er, að rembast við að halda uppi starfsemi
margra smá-safnaða í hverju bæjar-kríli eða bygðar-
lagi, eyða stórfé í þann óþarfa, að byggja margar kirkj-
ur, ýmist bláar eða gráar, gular eða grænar, eftir því
sem fræðakerfi mannanna eru á litinn, í staðinn fyrir
]>að, að búa saman í einu félagi og hafast við í sömu
virkjum, sem þá fyrst geta orðið dálítið traust, og haft
svo eitthvað afgangs til að miðla þeim, sem ógæfusam-
ari eru.
Mótlætið er í hendi Uuðs strangur en heilbrigður
kennari.
Þetta liafa séð þær deildir reformeruðu kirkjunnar
hér í landi, sem skvldastar eru, og er nú kappsamlega
unnið að því á kirkjuþingum þeirra, að koma því til leið-