Sameiningin - 01.06.1915, Blaðsíða 2
98
ar, að þær sameinist: presbýterianar, kongregational-
istar og baptistar. Eru liorfurnar fremur vænlegar.
Fyrirsögn hefði það þótt fyrir fáurn árum, að sam-
tímis myndu og koma fram í lútersku kirkjunni liér í
Ameríku þær tilraunir til sameiningar, sem nú eru fram
komnar, og fá góðan bvr. Sagt kefir verið frá í frétta-
dálkum þessa blaðs, kverjar ráðstafanir frændur vorir
Norðmenn liafa gert til þess, að koma á sameining lijá
sér. Enda var mál komið. Síðan Norska Sýnódan los-
aði sig undan áhrifum þýzku Missouri Sýnódunnar, hafa
þeir agnúar horfið, sem á voru, og minstur munur verið
á stefnum norsku kirkjufélaganna, ágreiningsmál þeirra
ekki verið sýnileg nema undir stækkunargleri, og yngri
kynslóðin hefir ekki viljað taka í arf hinar dogmatisku
deilur gömlu vígagarpanna. Nú hafa aðal-deildir norsku
kirkjunnar: Sameinaða Kirkjan, Norska Sýnódan og
Hauge Sýnódan, komið sér saman um öll atriði trúar-
innar og eru að semja sín á milli um samsteypu og
nýtt allsherjar kirkjufélag norsk-lúterskra manna í
Ameríku.
Merkilegri er þó sú hreyfing, sem hafin er og frá
hefir verið skýrt lítilsháttar í “Sam. ”, að sameina öll
kirkjufélögin lútersku, eða koma að minsta kosti á sam-
bandi og samvinnu þeirra á meðal. Raunar mun að svo
stöddu naumast til þess hugsa, að öll renni þau saman í
eina félagsheild, heldur vakir það fyrir, að öll lútersku
kirkjufélögin gangi í bandalag (federation) og eigi sam-
vinnu og styrki hvert annað, en hvert félag lialdi sjálf-
stæði sínu og sjálfstjórn.
Lútersk kirkja í Vesturlieimi greinist í 65 kirkjufé-
lög Þó eru flest þeirra í einhverskonar bandalagi. Þau
bandalög kirkjufélaganna eru fjögur. f General Synod-
bandala.ginu eru 24 kirkjufélög, í General Gouncil 13, í
Synodical Conference 6, og í United Synod (í Suður-
ríkjunum) 8. Þá eru 14 kirkjufélög (þar á rneðal kirkju-
félag vort), sem ekki eru í neinu bandalagi.
Síðastliðið haust ritaði formaður eins lúterska
kirkjufélagsins (Joint Synod of Oliio), dr. Seliuette, em-
bættisbræðrum sínum í hinum félögunum öllum, bréf, er