Sameiningin - 01.06.1915, Page 3
99
leiddi til þess, að haldin var ráðstefna í miðjum Apríl í
borginni Toledo. Voru þar saman komnir forsetar 15
kirkjufélaga. Fleiri gátu ekki verið viðstaddir. Tveir
eða þrír forsetar höfðu ekki sint fundarboðinu að neinu.
Einn hafði tjáð sig slíkri samvinnu mótfallinn. Hinir
allir höfðu bréflega tjáð sig meðmælta sambands-til-
raunum.*)
Forseta-fundur þessi samdi bráðabirgða reglugerð
fyrir samtökum þessum, og var ákveðið að balda áfram
tilraunum til að sameina lútersku kirkjuna, bera málið
undir þing kirkjufélganna og stofna til almenns fundar
með því augnamiði á 400 ára afmæli siðbótarinnar, ár-
ið .1917.
Mjög vel mælast þessar hreyfingar fyrir og er von-
andi, að einhver árangur verði. Er velferð kirkju vorr-
ar bér í landi að voru áliti undir þeim komin.
Guðshugmyndin og stríðið.
Nýkomið hefti “Eimreiðarinnar” flytur meðal ann-
ars ritgerð frá ritstjóranum, dr. Valtý Guðmundssyni,
er hefir að yfirskrift “Guðsbugmyndin og stríðið.”
Fer ritstjóra þeim sem fleirum, að honum ofbýður það
heiftaræði, sem í ljós kemur í átrúnaði og bænum
margra manna og sérstaklega presta bjá þjóðum þeim,
sem nú heyja hið grimmasta stríð, sem sögur fara af.
ÁSur hefir vikið verið að hinu sama í blaði voru. Það
er sárt að vita til þess, liversu hræðilega nú er farið
með annað boðorðið og Guðs nafn Jagt við hégóma í
öllum áttum.
En hvað sem öðru líður, þá sést nú samt, bversu
sterkt afl í sálum manna trúin er. Þegar allrar orku
er neytt, þegar tefla er um líf og dauða, þá er leitað til
Guðs almáttugs. Nú hrópa allir til himins, því nú ríður
*) Forseta íslenzka kirkjufélagslns var sem öðruni boöið á
þennan fund. Vitanlega gat hann ekki fariö, en bréfinu svaraöi
liann á þá leiö, að vænt þætti honum um slíka tilraun til aukinnar
samvinnu.