Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1915, Blaðsíða 14

Sameiningin - 01.06.1915, Blaðsíða 14
110 sem maður skoðar. Frelsarinn segir: “skoðið akurs- ins liljugrös” og “lítið til fuglanna í loftinu.” Undan athugunarleysi Israelsþjóðar kvartar liöfundur texta vors sárt, er hann segir: “Uxinn þekkir eiganda sinn, og asninn jötu húshónda síns, en Israel þekkir ekki, mitt fólk skilur ekki’ (Es. 1, 3). Og einmitt vegna þess athugunarelysis leiðir Ouð yfir þá liina hræðilegu, en þó mjög eðlilegu, hegningu skilningsleysisins, eins og Drott- inn lætur spámanninn segja: “Far og seg þessu fólki: Hlýðið grandgæfilega til, þér skuluð þó ekkert skilja; horfið á, vandlega, þér skuluð þó einskis vísir verða. Gjör þú hjarta þessa fólks tilfinningarlaust og eyru þess daufheyrð og afturloka augum þess, svo að þeir sjái ekki með augum sínum og heyri ekki með eyrum sínum og skilji ekki með hjarta sínu, að þeir mættu snúa sér og læknast” (Es. 6, 9. 10). Átakanlega eftirtektarvert er það, að frelsarinn vitnar í þennan spádóm og segir, að hann hafi ræzt á Israelsþjóð á hérvistardögum hans. Og ekki er frítt um, að þessi spádómur rætist á sumu skólafólki, bæði voru og annara. Nú eru skólar til þess stofnaðir, ef til vill aðallega, að kenna fólkinu að hugsa og skilja; en sumir nemendur koma kenurunum fyrir sjónir eins og þeir, sem með látbragði sínu segja: “Kendu mér, ef þú getur, eg mana þig.” Afleiðing þessháttar stefnu hjá námsmanninum verður ætíð sú, að því meira sem reynt er að troða í liann, því lieimskari verður hann. Þetta er ekkert annað en náttúrulögmál. Hver sá einstaklingur, sem ekki vill skilja og leitast við að skilja ekki, uppsker nákvæmlega það, sem hann sáir: skilningsleysi. Vér stvrkjumst í því, sem vér æfum, af alveg eðlilegum og skiljanlegum ástæðum. Til er einn óvinur, sem skilningsþroskinn á og heit- ir tryllingur. Verður hans sérstaklega vart í bæjunum. en er þó alls ekki fjarri félagslífi fólks úti á landsbygð- inni. Trylling-ur sá, sem eg á við, er þessi hringiða létt- úðarfullrar skemtanafýsnar, sem deyfir alla tilfinningu fyrir skyldu, gagntekur fólkið með nokkurskonar ölæði, svæfir það með einskonar óminnis-hegra, svo það gleym- ir öllu öðiu en hinni tilgangslausu liringiðu, sem það

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.