Sameiningin - 01.06.1915, Qupperneq 32
128
húsiö, varð henni litið á bókina, sem maðurinn ókunni haföi gefiö
henni. Þaö var nýja testamentið. Hún haföi aldrei séð það áöur,
því öllum var bannað að lesa það, öðrum en prestunum. Margrét
var vel læs, og það leið ekki á löngu áður en hún var svo sokkin
niður i að lesa frásögurnar inndælu um frelsarann, að hún vissi ekki
af því hv'að tímanum leið.
Urn sólarlag komu foreldrar hennar heim, og þeim brá heldur
en ekki, þegar Margrét sagöi þeim frá því, sem fyrir hafði komið
um daginn. Með hræðslublandinni lotningu opnuðu þau bókina,
sem dóttur þeirra hafði verið gefin, og kyntust í fyrsta sinni óbjög-
uðu fagnaðarerindi Jesú Krists. Og þá var eins og skýla væri tekin
frá augum þeirra og þau skildu það, að þúsundir landa þeirra vildu
heldur þola ofsóknir, útlegð og dauða, en láta banna sér þá trú,
sem þeirn var dýrmætari öllu öðru.
Seint um kvöldið, þegar dimt var orðið, vitjaði Mr. St. Claire
flóttamannsins í hellinum og fór með hann í bát sínum þangað, seni
hann gat falist um stund fyrir óvinum sinunv Margt töluðu þeir
saman á leiðinni, og margs varð Mr. St. Claire vísari, sem hann
hafði ekki áður grunað.
Og áður en mánuður v'ar liðinn, varð hann og fólk hans flótta-
manninum samferða burtu af Frakklandi, og þeir settust að i öðru
landi, þar sem stórir hópar landa þeirra höfðu leitað hælis og fengið
að njóta þeirra hlunninda, sem þeim voru bönnuð á ættjörðinni, að
niega dýrka Guð sinn óáreittir eins og samvizkan bauð þeim.
KVITTANIR
KirkjufélagssjóSur.—Safnaðagjöld: Hallson-söfn. $9.10, Breiðu-
víkur-söfn. $3.25, Lögbergs-söfn. $3.50, Kristnes-söfn. $16.95, Lund-
ar-söfn. $18.40, Ágústínus-söfn. $5.45, Mikleyjar-söfn. $4.30, Yída-
líns-söfn. $13.85.
Iieiðingjatrúboðssjóður.-—Björn Jónsson, Mountain, N.D., $1.
Heimatrúboðssjóður. — Furudals-söfn. $10.20, Jóhannesar-söfn.
$12, Helgi Thorláksson, Hensel, N.D., $15, Vesturheims-söfn. $10.
—Afhent af H. Johnson (íyrir auka-prestsverk, gjafir og samskot við
messu að Sinclair, Man.J, sem fylgir: J. Danielsson $2, A. Johnson
$2, S. Johnson $2, Mrs. S. Richardson $2, M. Tait $2, B. Johnson $2,
Th. Olafsson $2, Mrs. Hinrik Johnson $4, samskot við messu $15, J.
Jóhannsson $1, Kristin Jósepson $1, Mrs. J. Jóhannesson $1, J. og K.
Abrahamsson. $7, Ásm. Johnson $15, Friðrik Abrahamsson $5, Guðm.
Daníelsson $5, Þorsteinn Jósepsson $10.
John J. Vopni, féhirðir.
“SAMEININGIN” kemur út mánatSarlega. Hvert númer tvær arkir
heilar. VerS einn dollar um áriS. Skrifstofa 120 Emily St., Winnipeg,
Canada.—Hr. Jón J. Vopni er féhirSir og ráísmaSur “Sam.”—Addr.:
Sameiningin, P. O. Box 3144, Winnipeg, Man.