Fréttablaðið - 20.04.2011, Síða 12
20. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR12
Foreldrar gegna lykilhlutverki við að móta heilbrigðan lífsstíl
barna með góðu fordæmi og hispurslausum samræðum.
Með því að kaupa áfengi fyrir unglinginn viðurkenna
foreldrar að það sé eðlilegur hluti af lífi ungs fólks að drekka
áfengi. Ekki kaupa þér vinsældir – vertu fullorðinn!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
6
15
8
„Ég vil bara vera vinur barnanna minna.“
STJÓRNMÁL Framkvæmdaráð Sam-
bands sveitarfélaga á Austurlandi
(SSA) telur að stjórnvöld fari ranga
leið í byggðaaðgerðum.
Ríkisstjórnin fundaði nýverið
á Ísafirði og kynnti þar ýmsar
aðgerðir sem ætlað er að styrkja
byggð.
Í fundargerð frá fundi fram-
kvæmdaráðsins fyrr í mánuðinum
segir meðal annars að við umfjöll-
un um málið hafi komið fram sterk-
ur samhugur með Vestfirðingum
og einhugur um að bregðast hefði
þurft við neikvæðri byggðaþróun
þar, þótt fyrr hefði verið. „Hins
vegar var það mál manna að enn á
ný gripu stjórnvöld til þeirra ráða
að kasta bjarghringnum til þeirra,
sem í sjávarháskann væru komnir
í stað þess að hækka öryggisstigið
um borð í öllum flotanum (hinni
verðmætaskapandi landsbyggð),
sem heldur öðrum fremur hagkerfi
landsins gangandi.“
Aðgerðir sem gripið væri til
vestra gengju út á að styrkja
grunnþætti sem fjármagn væri
skorið niður til annars staðar, til
dæmis á Austurlandi. „Mætti í
því sambandi minna á skert fjár-
magn til menningar-, menntunar-
og þekkingarsamfélagsins, auk
þess sem aðhaldssemi í opinberum
framkvæmdum, til dæmis sam-
göngubótum, þýddi að fjölmörg
verktakafyrirtæki berðust nú í
bökkum.“
Framkvæmdaráð SSA ákvað
að óska eftir því við ríkisstjórn-
ina að hún héldi fund hið fyrsta á
Austurlandi og ræddi um leið við
sveitarstjórnarmenn „með það
í huga að ákveðnar verði og til-
kynnt um sértækar aðgerðir, sem
snúi núverandi varnarstöðu víða
á starfssvæði SSA í aukin sóknar-
tækifæri.“ - bþs
Sveitarstjórnarmenn á Austurlandi vilja sömu sértæku aðgerðirnar og Vestfirðingar fá:
Röng forgangsröðun ríkisstjórnarinnar
GÖNG Séð út úr Fáskrúðsfjarðargöng-
unum.
SKÓLAMÁL Kolfinna Jóhannesdóttir
hefur verið ráðin skólameistari
Menntaskóla Borgarfjarðar frá
og með 1. ágúst nk. Þetta kemur
fram á vef
Skessuhorns á
Vesturlandi.
Kolfinna
er viðskipta-
fræðingur, með
meistarapróf í
hagnýtum hag-
vísindum frá
Háskólanum
á Bifröst og
með diplóma í
kennslufræðum
frá Háskólanum í Reykjavík.
Hún stundaði auk þess nám við
London School of Economics and
Political Science sumarið 2009.
Kolfinna er í dag kennari við
Landbúnaðarháskóla Íslands. - þj
Menntaskólinn í Borgarfirði:
Kolfinna ráðin
skólameistari
KOLFINNA
JÓHANNESDÓTTIR
SAMKEPPNISMÁL Gosdrykkjafram-
leiðendurnir Vífilfell og Ölgerð-
in eru um nokkurt skeið taldir
hafa haft samráð um uppstilling-
ar í hillur verslana. Samkeppnis-
eftirlitið (SE)
réðst í húsleit-
ir hjá báðum
fyrirtækjum
í gærmorgun
og lagði hald
á gögn vegna
rannsóknar á
málinu.
Þegar Frétta-
blaðið hafði
samband við
Andra Þór Guð-
mundsson, forstjóra Ölgerðarinn-
ar, síðdegis í gær sagðist hann
ekkert vita um tilgang húsleitar-
innar. Starfsmenn SE hefðu ekkert
látið uppi. „Þeir voru bara hérna
mjög leyndardómsfullir,“ sagði
Andri.
Honum virtist sem þeir hefðu
ekki lagt hald á ýkja mikið af
gögnum; þeir hefðu einkum afrit-
að tölvupóst og að rannsókn-
in virtist „frekar lítil í sniðum“.
Spurður hvort fyrirtækið hefði
brotið einhver samkeppnislög
svaraði hann: „Ekki vitum við til
þess. Við vorum ekki að gera það
viljandi að minnsta kosti.“
Skömmu síðar sendi Vífilfell
frá sér fréttatilkynningu þar
sem greint var frá því hvers
eðlis meint brot væru. Þau fælust
einkum í samráði við uppröðun
og framsetningu drykkjarvara í
kælum og hillum verslana.
„Vegna þessa vill Vífilfell taka
fram að verslanir ráðstafa hillu-
og kælirými sínu í réttu hlutfalli
við sölu hverrar drykkjarteg-
undar. Reglan er sú að sölutölur
verslana, en ekki framleiðendur,
ákvarða hversu mikið hillurými
framleiðendur fá fyrir hverja
vörutegund,“ segir í yfirlýsingu
fyrirtækisins.
Einungis eitt fyrirtæki til við-
bótar framleiðir gosdrykki á
Íslandi. Það er Gosverksmiðjan
Klettur, sem hefur verið starfrækt
frá því fyrir áramót. Fréttablaðið
hafði samband við framkvæmda-
stjóra þess, Kristján Guðmunds-
son, sem kvað Klett ekki hafa
kvartað formlega til SE vegna
málsins.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir
að rannsóknin nú eigi sér ekki
ýkja langan aðdraganda. Rann-
sóknin mun ekki tengjast nýlegu
máli þar sem Vífilfell var sektað
um 260 milljónir króna fyrir að
skuldbinda viðskiptavini sína til
að skipta einungis við fyrirtækið.
stigur@frettabladid.is
Grunar gosrisa um lögbrot
Samkeppniseftirlitið telur að Vífilfell og Ölgerðin hafi brotið lög með því að skipta með sér hillumetrum í
verslunum. Eftirlitið réðst í húsleitir í gær og tók gögn. Forsvarsmenn fyrirtækjanna segjast koma af fjöllum.
GOS Fyrirtækin tvö eru talin hafa haft með sér samráð um uppstillingu í hillur í versl-
unum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
PÁLL GUNNAR
PÁLSSON
KRISTILEGAR DJÖFLAGRÍMUR
Kaþólskir íbúar í El Salvador halda í þá
hefð að klæða sig í djöflabúninga við
upphaf dymbilviku. NORDICPHOTOS/AFP
Brotist inn í hús og bíla
Lögreglunni á Akureyri hefur borist
nokkuð mikið af tilkynningum að
undanförnu um að farið hafi verið
inn í ólæstar bifreiðar og húsnæði
víðs vegar um bæinn. Rótað hefur
verið í bifreiðum og því húsnæði
sem farið hefur verið inn í, en litlum
verðmætum stolið. Ekki hefur verið
um innbrot að ræða, þar sem bílar
og hús voru ólæst.
LÖGREGLUMÁL