Fréttablaðið - 20.04.2011, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 20. apríl 2011
www.itr.is ı sími 411 5000
Afgreiðslutími um páska
Heilsulindir í Reykjavík
ER
EKKI
TILVALIÐ
AÐ SKELLA
SÉR Í SUND
UM PÁSKANA?
Lykill
að góðri
heilsu
Annar í Páskum
25. apríl
Páskadagur
24. apríl
1. maí
1. maí
Laugardagur
23. apríl
Föstud. langi
22. apríl
Skírdagur
21. apríl
ÁRBÆJARLAUG
BREIÐHOLTSLAUG
GRAFARVOGSLAUG
KLÉBERGSLAUG
LAUGARDALSLAUG
SUNDHÖLLIN
VESTURBÆJARLAUG
kl. 11-19 kl. 10-18 kl. 9-17 kl. 10-18 kl. 11-19 kl. 10-18
kl. 10-18 Lokað kl. 9-17 Lokað kl. 10-18 Lokað
kl. 10-18 Lokað kl. 10-18 Lokað kl. 10-18 Lokað
kl. 11-17 Lokað kl. 11-17 Lokað kl. 11-17 Lokað
kl. 8-22 kl. 10-18 kl. 8-22 kl. 10-18 kl. 8-22 kl. 8-22
kl. 10-18 Lokað kl. 8-16 Lokað kl. 10-18 Lokað
kl. 11-19 Lokað kl. 9-17 Lokað kl. 11-19 Lokað
AF NETINU
Undarlegt
Molaskrifari sá og heyrði brot úr síendurteknu Hrafnaþingi
(17.04.2011) þar sem í forsæti var Hallur Hallsson. Hann
djöflaðist á Steingrími J. fyrir að hafa ekki farið til Strassborgar
að halda ræðu fyrir Íslands hönd í miðju kraðakinu, sem
Sjálfstæðisflokkurinn skapaði hér. Samfylkingarþingmaður
við borðið kunni ekki að svara, sagðist ekki þekkja málið.
Undarlegt. Hvað hefðu þeir ÍNN menn sagt ef Steingrímur hefði farið til
Strassborgar. Til dæmis þetta: Steingrímur hleypur úr landi til að tala við
Evrópuráðið! Ekki ólíklegt.
eidur.is
Eiður Svanberg Guðnason
Stóru bankarnir eru skrímsli
Bankar í dag eru innheimtufyrirtæki, fasteignasölur og þræla-
haldarar með ofbeldi sem sérgrein. Bankar í dag eru skrímsli
sem í skjóli ráðherra og stjórnvalda fara sínu fram og komast
upp með það. Þeir hirða fyrirtæki og þeir safna sálum fólks.
Leggja hjörtu barna þeirra inn í bankahvelfingar þar sem
djöfullinn sjálfur telur þau. Bankar í dag eru svikul fyrirbæri sem hafa enga
siðferðisvitund en ljúga að þér að svo sé. Bankar í dag fitna eins og vegglýs
af blóði fórnarlamba sinna með leyfi fyrstu vinstristjórna landsins í sögunni.
pressan.is/pressupennar/Lesa_Bubba
Bubbi Morthens
Regluverk orkunýtingar er óhemju flókið, sem og starfs-
umhverfi orku- og veitufyrir-
tækja almennt. Nefna má dæmi
um að ein og sama framkvæmd-
in hafi þurft að fara yfir tuttugu
sinnum til umsagnar hjá sömu
opinberu aðilunum. Samorka,
Samtök atvinnulífsins, Jarðhita-
félag Íslands og stýrihópur rík-
isstjórnarinnar um mótun heild-
stæðrar orkustefnu eru dæmi um
aðila sem mælt hafa með einföld-
un þessa regluverks, með aukna
skilvirkni að leiðarljósi. Ekkert
lát er hins vegar á lagafrum-
vörpum – stjórnarfrumvörp-
um – sem enn flækja þetta ferli
og/eða starfsumhverfi orku- og
veitufyrirtækjanna almennt. Ef
einungis er horft til núverandi
þings má nefna eftirtalin dæmi:
■ Frumvarp forsætisráðherra
til breytinga á upplýsinga-
lögum, þar sem fyrirtæki í
opinberri eigu að 75% hluta
eða meira eru sett undir upp-
lýsingalög, nema að fenginni
undanþágu ráðherra. Vand-
séð er hvernig fyrirtæki í raf-
orkuframleiðslu og -sölu, sam-
keppnisstarfsemi að lögum,
geta lotið ákvæðum upplýs-
ingalaga, nema með gríðarleg-
um tilkostnaði og óhagræði.
■ Frumvarp iðnaðarráðherra
um verndar- og nýtingaráætl-
un vegna virkjunar fallvatna
og háhitasvæða, þar sem í
raun er gerð sú eftirábreyting
á vinnu við gerð rammaáætl-
unar að öll svæði sem hlotið
hafa einhvers konar friðlýs-
ingu eru undanskilin, nema
heimildar til orkuvinnslu
sé sérstaklega getið í frið-
lýsingarskilmálum. Enginn
veit hvað þetta ákvæði þýðir
í raun, enda friðlýsingarskil-
málar gríðarlega misjafnir,
utan að þetta mun fyrirfram
útiloka fjölda álitlegra virkj-
anakosta, þar með talið að
minnsta kosti þriðjung alls
virkjanlegs háhita sem enn er
ónýttur í landinu.
■ Frumvarp iðnaðarráðherra
um vatnalög og rannsóknir og
nýtingu á auðlindum í jörðu,
þar sem lögð er til veruleg
stytting leyfilegs leigutíma
orkuauðlinda í eigu opinberra
aðila. Slík stytting myndi leiða
til hærri ávöxtunarkröfu sam-
fara styttri afskriftatíma og
með tímanum til hærra orku-
verðs á Íslandi, til heimila,
fyrirtækja og stofnana.
■ Frumvarp iðnaðarráðherra til
breytinga á vatnalögum, þar
sem lagt er til nýtt ákvæði um
tilkynningaskyldu allra fram-
kvæmda sem tengjast vatni
og vatnafari, að því er virðist
einnig minniháttar viðhalds-
framkvæmda sem vel rúmast
innan þegar útgefinna fram-
kvæmdaleyfa.
■ Frumvarp umhverfisráðherra
um úrskurðarnefnd umhverf-
is- og auðlindamála, þar sem
kæruaðild er opnuð öllum
hvað varðar ákvarðanir um
matsskyldu framkvæmda,
sameiginlegt mat á umhverf-
isáhrifum og leyfisveitingar
matsskyldra framkvæmda.
Þarna skal lögð til hliðar
krafan um málsaðild kær-
enda líkt og finna má í stjórn-
sýslulögum og víðar, þvert
gegn áliti réttarfarsnefndar.
Ekkert hinna Norðurlandanna
hefur enda kosið að fara þessa
leið sem leitt getur til algerr-
ar holskeflu kærumála sem
gætu nær lamað umrædda
úrskurðarnefnd, ef marka
má afgreiðslutíma forvera
hennar, og sett þannig fram-
kvæmdir í algert uppnám.
Tekið skal fram að almenn-
ingi gefast ítrekuð færi á gerð
athugasemda við umrædd mál
fyrr í ferlinu.
■ Þá hefur umhverfisráðuneyt-
ið kynnt drög að frumvarpi
til breytinga á náttúruvernd-
arlögum þar sem lögð er til
veruleg fjölgun þeirra teg-
unda náttúrufyrirbæra sem
njóta skuli sérstakrar vernd-
ar. Ennfremur er þar lagt
til að orðalagið um að forð-
ast skuli röskun víki fyrir
orðalagi um að óheimilt sé
að raska slíkum fyrirbær-
um nema brýna nauðsyn beri
til. Brýn nauðsyn er afar stíf
krafa þegar heimila á fram-
kvæmdir, eða hafna þeim.
Verulegt áhyggjuefni
Vissulega má ýmislegt gott segja
um sum þessara mála og eðli
málsins samkvæmt eru þau öll
vanreifuð hér í svo stuttri sam-
antekt. Eftir stendur þó að nær
stöðugur straumur stjórnarfrum-
varpa sem flækja starfsumhverfi
orku- og veitufyrirtækja er veru-
legt áhyggjuefni. Orkunýting og
rekstur orku- og veitufyrirtækja
verða sífellt flóknari, þyngri
í vöfum og kostnaðarsamari.
Afleiðingarnar eru meðal ann-
ars sífellt lengri framkvæmda-
tími, sífellt aukin óvissa um
afhendingartíma og sífellt auk-
inn kostnaður – sem aftur leiðir
óhjákvæmilega til hærra verðs
til neytenda.
Sífellt flóknara
starfsumhverfi
Orkumál
Gústaf Adolf
Skúlason
aðstoðarfram-
kvæmda stjóri
Samorku