Fréttablaðið - 20.04.2011, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 20.04.2011, Blaðsíða 26
20. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR26 timamot@frettabladid.is Björt Ólafsdóttir, stjórnunarráðgjafi hjá Capacent, hefur verið kjörin for- maður Geðhjálpar. Hún tekur við af Sigursteini Mássyni, sem gengur úr stjórn eftir tólf ára aðkomu að starf- semi félagsins. Krefjandi og skemmti- legt; þannig sér hinn nýi formaður starfið fyrir sér og kveðst tilbúin að taka til hendinni í geðheilbrigðismálum á Íslandi. „Því miður eru enn fyrir hendi for- dómar hérlendis gagnvart fólki með geðræn vandamál þótt þeir séu á undanhaldi. Þetta er ákveðið feimnis- mál og stundum veit fólk ekki alveg hvernig það á að haga sér þegar það ber á góma,“ segir Björt, sem telur að með fræðslu og opinni umræðu megi taka á þessum vandamálum og draga úr hleypidómum í garð geðsjúkra í samfélaginu. En af hverju bauð hún sig fram? „Ég starfaði um tíma á geðdeild Landspítal- ans og í gegnum skjólstæðinga mína þar kynntist ég þeirri vinnu sem Geðhjálp hefur innt af hendi. Mér varð strax ljóst hversu mikilvægu og góðu starfi félagið sinnir og langaði til að bjóða fram mína sýn og krafta. Því ákvað ég að grípa tækifærið þegar það gafst.“ Áhuginn á geðheilbrigðismálum á sér þó lengri sögu, upplýsir Björt. „Ég ólst upp á meðferðarheimili fyrir unglinga sem foreldrar mínir ráku á Torfastöðum í Biskupstungum. Þar átti ég fjölda fóst- ursystkina sem glímdu sum við vanda- mál, misalvarleg, og sá hvernig greiða mátti úr mörgum með markvissri með- ferðarvinnu. Þarna öðlaðist ég þá trú að allir geti átt mannsæmandi líf þótt vissulega geti skipst á skin og skúrir. Það var mjög þroskandi fyrir barn og seinna ungmenni að alast upp við þessar aðstæður. Þetta starf stendur mér því vissulega nærri,“ segir hún og brosir. Geðhjálp segir hún hafa sams konar markmið að leiðarljósi; að vera hags- munasamtök fyrir fólk með geðræn vandamál, aðstandendur þeirra og annarra sem láta sig málið varða. „Sýn félagsins er réttlát og sterk og mitt starf verður að skerpa betur á henni og vekja athygli á þessum málaflokki. Enda eru það mannréttindi fólks með geðræn vandamál að eiga gott líf og á ábyrgð alls samfélagsins að svo sé. Það er líka samfélagslega hagkvæmt að ein- staklingar innan þess séu heilir heilsu. Sjálf vil ég koma heilmiklu í verk en ekki er tímabært að ræða það að sinni; fyrst þarf ég að hitta stjórnina með formlegum hætti og móta með henni stefnu og starf félagsins á næstunni.“ roald@frettabladid.is BJÖRT ÓLAFSDÓTTIR: NÝKJÖRINN FORMAÐUR GEÐHJÁLPAR Mannsæmandi líf fyrir alla ELDHUGI Björt Ólafsdóttir hlakkar til að taka til hendinni í geðheilbrigðismálum á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ástkær faðir okkar og afi Richard Sigurbaldursson Hann kom hingað þann 17.12.1934. Hann var hérna, en nú er hann farinn. Hann fór þann 30.03.2011. Við þökkum þér alla örvun og innblástur í lífinu. Bálför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki lungnadeildar Landspítalans. Sigríður Hulda Richardsdóttir Guðný Björk Richardsdóttir Jóhann Davíð Richardsson Richard Oddur Hauksson Jóhann Þór Stefánsson Kristín Margrét Guðmundsdóttir Bragi Haukur Jóhannsson Andrea Rán Jóhannsdóttir Dagný Dimmblá Jóhannsdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Freysteinsson áður til heimilis á Aflagranda 40, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þann 17. apríl sl. Útförin fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 28. apríl kl. 13. Starfsfólki í Sóltúni eru færðar alúðar þakkir fyrir góða umönnun. Sigrún Lovísa Grímsdóttir Grímur Sigurðsson Sigríður Finnsdóttir Freysteinn Sigurðsson Kolbrún Sigurpálsdóttir Hulda Guðlaug Sigurðardóttir Brynjar Þórarinsson Guðbjörg Sigurðardóttir Skúli Kristjánsson Sigurður Sigurðsson Liv Marit Solheim Sigurðsson Sigrún Lovísa Sigurðardóttir og fjölskyldur Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ívar Pétur Hannesson fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjónn, lést mánudaginn 11. apríl. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju í dag miðvikudaginn 20. apríl kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Jóna Guðbjörg Gísladóttir Árdís Ívarsdóttir Guðmundur Ingi Kristjánsson Hannes Eðvarð Ívarsson Íris Kolbrún Bragadóttir Gísli Bergsveinn Ívarson Klara Lísa Hervaldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs bróður okkar og mágs Guðbjarts Kjartanssonar Furugrund 40, Kópavogi. Bryndís Kjartansdóttir Karl Arason Ágústa Kjartansdóttir Ólafur F. Ólafsson Halldór V. Kjartansson Svanhvít Kjartansdóttir Einar S. Sigurðsson Bára Kjartansdóttir Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður, tengdamóður og ömmu okkar, Kristínar Bárðardóttur frá Ísafirði, síðast til heimilis á Hjúkrunarheimilinu Eir, Grafarvogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Eirar fyrir góða umönnun. Bárður Hafsteinsson Edda Gunnarsdóttir Guðrún Kristjana Hafsteinsdóttir Einar H. Pétursson Ólafía Soffía Jóhannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elsku pabbi okkar, tengdapbbi, afi og langafi, Guðni Friðriksson harmonikkuleikari frá Sveinungsvík í Þistilfirði, lést á dvalarheimilinu Hlíð 13. apríl síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 27. apríl kl. 13.30. Olga Guðnadóttir Kristján Halldórsson Agnes Guðnadóttir Konráð Alfreðsson Þorbjörg Guðnadóttir Hörður Stefánsson Steinunn Guðnadóttir afabörn og langafabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu hlýhug og samúð við andlát og útför eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa okkar, Kristófers S. Jóhannessonar sem lést 7. apríl sl. Guð blessi ykkur. Þorbjörg Sveinsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Merkisatburðir 1593 Ari Magnússon fær sýsluvöld í Barðastrandarsýslu og umboð konungsjarða. 1602 Einokunarverslun Dana hefst á Íslandi með því að konungur veitti borgurum í Kaupmannahöfn, Málmey og Helsingjaeyri einkaleyfi til verslunar á Íslandi. Einokunin stendur til árs- loka 1787. 1653 Oliver Cromwell leysir Langa þingið upp. 1821 Mönguvetur dró nafnið af því að þennan dag komu skip- brotsmenn af hvalveiðiskipinu Margréti að landi á Þang- skála á Skaga eftir mikla hrakninga í ís norðan við land. 1920 Sumarólympíuleikarnir settir í Antwerpen í Belgíu. 1928 Mæðrastyrksnefnd stofnuð í Reykjavík. 1950 Þjóðleikhúsið vígt. Framkvæmdir við það hófust 1928, en stöðvuðust vegna fjárskorts og síðar vegna hernámsins. 1977 Boris Spasskí vinnur Vlastimil Hort í skákeinvígi þeirra, sem haldið er í Reykjavík. 2006 RES Orkuskóli (The School for Renewable Energy Science) tekur formlega til starfa á Akureyri. 62 JESSICA LANGE leikkona er 62 ára.„Þegar ég horfi yfir farinn veg hefur ekkert skipt eins miklu máli og að eignast börn, fjölskyldu og heimili.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.