Fréttablaðið - 20.04.2011, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 20.04.2011, Blaðsíða 27
Sögurnar... tölurnar... fólkið... Veffang: visir.is – Sími: 512 5000 62 4-5 H E L S T Í Ú T L Ö N D U M Miðvikudagur 20. apríl 2011 – 7. tölublað – 7. árgangur Marel greiðir tíu milljónir evra, jafnvirði rúmra 1,6 milljarða króna, í tengslum við samkomulag sem náðst hefur um lífeyrissjóð starfsmanna sem áður heyrðu undir hollensku iðnsamsteypuna Stork. Sjóðurinn, sem áður var sjálfstæður, verður nú hluti af Mel-Electro, hollenskum sjóði. Marel keypti iðnsamsteypuna ásamt fleirum árið 2007 og tók úr henni matvælavinnsluvéla- hlutann. Hjá Marel vinna nú 960 starfsmenn sem áður voru hjá Stork. Marel greiðir lífeyrissjóðnum í samræmi við hlutfall starfs- manna sem áttu hlutdeild í honum og losnar þar með við framtíðar- skuldbindingar. Greiðslan dreif- ist yfir fjögur ár en fellur til sem einskiptiskostnaður á öðrum ársfjórðungi. - jab Marel greiðir 1,6 milljarða TÆKJABÚNAÐUR MARELS Samkomulag hefur náðst um lífeyrissjóð fyrrverandi starfsmanna Stork í Hollandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Þjónusta Veitingahús HeildsölurÍþrótta- og félagasamtök Ríki- og sveitarfélögFerðaþjónusta Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Stjórnendur VBS fjárfestingarbanka vissu af þeirri áhættu sem bankinn lagði á herðar viðskiptavina sinna sem voru með fjármagn í eignastýringu hjá bankanum með kaupum á veðskuldabréfum tengd- um fasteignaverkefnum. Kaupin voru gerð án samráðs við viðskiptavini og ekki í samræmi við samning bankans við þá. Viðskiptavinir bankans voru ekki upplýstir um verkefnin fyrr en eftir að viðskiptin gengu í gegn. Veðskuldabréfin voru gefin út af byggingaverk- tökum sem jafnframt voru viðskiptavinir Fram- kvæmdafjármögnunar VBS. Bankinn átti sjálf- ur hlut í nokkrum verkefnanna ýmist beint eða í gegnum dótturfélög. „Það er verið að vinna í ýmsum málum og margar ásakanir í gangi sem þarf að rannsaka. Ákveðin mál eru í skoðun,“ segir Þórey S. Þórðardóttir, sem sæti á í slitastjórn VBS fjárfestingarbanka sem hefur verið með málin til skoðunar frá falli bankans í fyrravor. Ekki er útilokað að einhver málanna varði við lög um verðbréfaviðskipti og að þau verði send til frekari rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu. Engin mál hafa verið send áfram enn sem komið er. Í kröfulýsingu eins af kröfuhöfum VBS sem Frétta- blaðið hefur undir höndum kemur fram að Fram- kvæmdafjármögnun VBS hafi leitað með beinum hætti til eignastýringasviðs bankans og óskað eftir því að það útvegaði fjármagn í þau fasteignaverkefni sem bankinn hefði skipulagt og samþykkt að fjármagna. Þá segir í kröfulýsingunni að veðskuldabréfin séu mun áhættusamari og ótryggari en hefðbundin skuldabréf. Þegar halla hafi tekið undan fæti á fasteignamarkaði síðla árs 2007 hafi verið ljóst að útgefendur skulda- bréfanna gátu ekki greitt þau á gjalddaga. Stjórnend- ur bankans hafi brugðist við með því að breyta skil- málum skuldabréfa sem eignastýringarsviðið hafði þegar keypt eða var að kaupa og samið um nýja gjald- daga. Viðskiptavinir VBS eiga í dag ýmist erfitt með að greiða skuldir sínar eða eru orðnir gjaldþrota. Óvíst er hvort lítið ef nokkuð fæst upp í kröfur. „Við munum væntanlega senda svona mál áfram,“ segir Þórey. Stjórnendur VBS sakaðir um lögbrot Eignastýringarsvið VBS fjárfestingarbanka keypti veðskuldabréf í heimildarleysi. Áhætta bankans var lögð á herðar viðskiptavina. „Eignastýring hefur þurft að leggja sig í líma við að verja fjárfestingar sínar í veðskuldabréfum, hvorutveggja gagnvart eftirlitsaðilum á markaði sem og einstaka viðskiptavinum [...] Sem betur fer hefur vel verið að málum staðið í langflestum tilvikum og eignastýringin gerir að sjálfsögðu engar kröfur vegna tjóns sem viðskiptavinir hafa orðið fyrir eða kunna að verða fyrir sem afleiðingu þeirra áhættu sem gera hefði mátt ráð fyrir að þessi skuldabréf bæru. Þar má telja til áhættu er lýtur að verðhruni á fasteignamarkaði, mótaðilaáhættu vegna aðstæðna hjá verktökum, stöðvun framkvæmda og fleira í þeim dúr sem þegar hefur verulega þrengt að öllum þeim verkefnum sem viðskiptavinir eignastýringar eiga fjármagn bundið í og ekki hafa verið leidd til lykta.“ Brot úr tölvupósti Péturs Aðalsteinssonar, forstöðumanns eignastýringar VBS, til Jóns Þórissonar, forstjóra bankans, og fleiri starfsmanna. BROWN EKKI Í AGS David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, finnst ekki við hæfi að Gordon Brown, forveri hans í emb- ætti og pólitískur andstæðingur, gefi kost á sér sem arftaki Dom- inique Strauss-Khan hjá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum. Cameron segir að tregða Browns til að fara út í harðar aðhaldsaðgerðir til bjarg- ar bresku efnahagslífi geri hann óheppilegan í embættið. MOODY‘S LÆKKAR FÆREYJAR Matsfyrirtækið Moody‘s hefur lækkað lánshæfismat Færeyja úr Aa2 í Aa3. Fyrirtækið segir horfurnar nú neikvæðar, en þær voru stöðugar. Í tilkynningu frá Moody‘s segir að matið sé lækk- að vegna erfiðleika Færeyja við að koma nýju jafnvægi á langtíma- fjármögnun í erfiðu efnahagsum- hverfi. Stefna stjórnvalda sé ekki nægilega skýr um það til hvaða ráða eigi að grípa. APPLE KÆRIR SAMSUNG Bandaríski tölvu- og símafram- leiðandinn Apple hefur lagt fram ákæru á hendur suður-kóreska fyr- irtækinu Samsung fyrir Galaxy- snjallsímana, sem Apple segir illa gerða eftirlíkingu af iPhone-sím- um og iPad-spjaldtölvum sínum. Íslenska auglýsingastofan Viðurkenningar hrannast upp Vorfundur AGS Ísland er skrautfjöður Árelía Eydís Guðmundsdóttir Skrifaði bók um réttu hilluna í lífinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.