Fréttablaðið - 20.04.2011, Blaðsíða 18
18 20. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR
Fjöldi öryrkja hefur orðið fyrir umtals-verðum skerðingum á örorkulífeyris-
greiðslum hjá allmörgum lífeyrissjóðum
í nokkur ár og hafa margir öryrkjar
misst þær alveg. Hér er ekki átt við þær
almennu skerðingar sem komu í kjölfar
bankahrunsins heldur skerðingar sem
lagst hafa þungt á öryrkja sérstaklega
og hófust í góðærinu þegar lífeyrissjóðir
fóru að taka mið af greiðslum frá Trygg-
ingastofnun ríkisins (TR) við útreikning á
greiðslum.
Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) höfðaði
prófmál fyrir hönd öryrkja sem við tekju-
athugun 2007 varð fyrir verulegri skerð-
ingu á örorkulífeyrisgreiðslum frá Gildi
lífeyrissjóði. Í Héraðsdómi Reykjavíkur
vannst varnarsigur í málinu en Hæsti-
réttur sýknaði Gildi lífeyrissjóð, sem
voru mikil vonbrigði fyrir öryrkja sem
höfðu orðið fyrir svipuðum skerðingum.
ÖBÍ skaut málinu til Mannréttindadóm-
stóls Evrópu, sem samþykkti að taka
málið fyrir, en ekki er komin dagsetning
á því hvenær það verður. Fjallað verður
um hvort mannréttindi hafi verið brotin á
öryrkjum með hliðsjón af Mannréttinda-
sáttmála Evrópu.
Skerðingar hófust árið 2007
Greiðslur í lífeyrissjóð eru lögbundnar
sem ákveðið hlutfall af launatekjum. Þeir
sem verða óvinnufærir að hluta eða öllu
leyti geta sótt um örorkubætur frá þeim
lífeyrissjóði/um sem þeir hafa greitt í. Ef
örorkulífeyrissjóðsgreiðslur eru undir
ákveðnum viðmiðum fær fólk örorkubæt-
ur frá TR. Í áraraðir tóku lífeyrissjóðir
ekki mið af tekjum frá TR við útreikning
greiðslna. Því kom það eins og þruma
úr heiðskíru lofti þegar margir lífeyris-
sjóðir fóru að taka mið af örorkubótum
frá TR við útreikning örorkugreiðslna
til sjóðsfélaga. Ekki var tekið tillit til
þeirra öryrkja sem voru með bótaflokka
frá TR til að mæta kostnaði sem tengdist
fötluninni sérstaklega.
Raunverulegt dæmi um skerðingar lífeyris-
sjóðsgreiðslna til öryrkja 2007-2010*
2007 Örorkulífeyrir lækkaði úr kr. 70.014 í kr.
26.277, sem er 65% lækkun.
Víxlverkun TR bætti skerðinguna að hluta, sem
leiddi til enn meiri skerðinga.
2010 Örorkulífeyrir er kominn niður í kr.
9.601** á mánuði. Lækkun í krónutölu
um 86,3% frá 2007.
*Upphæðirnar miðast við mánaðarlegar greiðslur fyrir
skatt.
** Skerðingin er í raun meiri, þar sem örorkulífeyrir er upp-
reiknaður skv. vísitölu.
Það segir sig sjálft að þegar lífeyris-
sjóðir og TR skerða greiðslur með hlið-
sjón hvort af öðru leiðir það á endanum
til þess að örorkugreiðslur frá lífeyris-
sjóðum lækka eða falla alveg niður. Eina
leiðin til að binda enda á slíkar skerðing-
ar er að setja lög sem koma í veg fyrir
slíkt.
Fjöldi öryrkja sem hefur orðið
fyrir skerðingum
Á árunum 2007 til 2009 urðu fjölmargir
örorkulífeyrisþegar fyrir skerðingum
á greiðslum frá sínum lífeyrissjóði eða
misstu þær alveg, eins og sjá má í með-
fylgjandi töflu.
Fjöldi öryrkja og skerðingar/niðurfellingar
lífeyrissjóðsgreiðslna 2007-2009*
2007 1.600 öryrkjar
2008 1.009 öryrkjar
2009 2.047 öryrkjar
*Hluti öryrkja varð fyrir skerðingum oftar en einu sinni.
Hlutfall þeirra sem fengu samtímis
bætur frá TR og úr lífeyrissjóði lækkaði
úr tæplega 60% árið 2006 í rúmlega 51%
árið 2009. Eðlilegra hefði verið að þeim
hefði fjölgað þar sem fleiri greiða í lífeyr-
issjóð en áður. Þess skal getið að öryrkjar
með bætur frá TR voru samtals 14.500
árið 2009.
Kostnaður ríkisins hefur aukist
Aðför lífeyrissjóðanna hefur leitt til
verulegrar skerðingar á framfærslu fólks
sem hefur í góðri trú talið að greiðslur
í lífeyrissjóð kæmu sér vel ef það yrði
óvinnufært. Þá hafa þessar aðgerðir líf-
eyrissjóðanna aukið kostnað ríkisins því
margir sem hafa orðið fyrir skerðingum
hafa fengið skerðinguna bætta hjá TR,
en einungis að hluta. Sú sárabót hefur
í kjölfarið leitt til þess að lífeyrissjóðs-
greiðslur hafa lækkað enn frekar. Það var
augljóst hvert stefndi og spurning hver
var tilgangurinn með slíkum aðgerðum.
Þá er vert að geta þess að lífeyrissjóð-
irnir fá á fjárlögum umtalsverðar fjár-
hæðir til að bæta þeim þá „örorkubyrði“
sem þeir hafa orðið fyrir. Þessi fjárhæð
hefur hækkað frá ári til árs sl. 4 ár. Þrátt
fyrir hækkandi framlög ríkisins hafa
margir lífeyrissjóðir farið þessa leið.
Hver er vilji stjórnvalda til úrlausna?
En hver er vilji stjórnvalda til að leysa
lífeyrissjóðsmálið? Hinn 30. desember
2010 gerðu félags- og tryggingamálaráð-
herra (nú velferðarráðherra) og Lands-
samtök lífeyrissjóða samkomulag um
ofangreint mál. Í samkomulaginu kemur
fram m.a. að lífeyrissjóðirnir munu út
árið 2013 ekki skerða greiðslur til sinna
sjóðsfélaga þó að bætur almannatrygg-
inga hækki almennt, sem er jákvætt. Í
kjölfar samkomulagsins var samið frum-
varp sem hefur verið lagt fyrir Alþingi
og verður tekið til afgreiðslu á næstunni.
Hvorki í frumvarpinu né í samkomu-
laginu kemur fram hvernig mál þeirra
sem þegar hafa orðið fyrir skerðingum
eða misst sínar bætur verði leyst, sem
er grafalvarlegt mál. Mun sá hópur sitja
eftir úti í kuldanum án úrlausnar sinna
mála? Er eina von þessa fólks að bíða
niðurstöðu Mannréttindadómstólsins?
ÖBÍ skaut málinu til
Mannréttindadómstóls
Evrópu, sem samþykkti að taka
málið fyrir, en ekki er komin
dagsetning á því. Fjallað verður
um hvort mannréttindi hafi
verið brotin á öryrkjum.
Skerðingar á lífeyri öryrkja – hvað vilja stjórnvöld?
Velferðarmál
Lilja
Þorgeirsdóttir
framkvæmdastjóri ÖBÍ
Sigríður Hanna
Ingólfsdóttir
félagsráðgjafi ÖBÍ
Þöggun, kúgun, misbeiting á valdi, já og foringjaræði – allt
frekar kunnugleg orð í ræðu og riti
þessi misserin. Og það er dapurlegt
að þurfa að taka sér þau í munn
þegar maður talar um starfsemi
fjöldahreyfingar eins og knatt-
spyrnuhreyfingin er. Skyldi fjöld-
anum standa á sama eða kemur
honum það barasta ekki við?
Við borðið sitja þeir sem ráða og
láta sér í léttu rúmi liggja hverja
ákvarðanir þeirra hitta fyrir eða
hvernig.
Rétt er og heiðarlegt að taka
fram strax að málið er mér skylt
og ég því líklegast vanhæfur til
að tjá mig. Sem sagt hlutdrægur
en það sem við mér blasir, þótt ég
setji upp hlutleysisgleraugun, er
að í boði KSÍ er tveggja fóta tækl-
ing notuð til að klippa niður bróður
minn, Jóhannes Valgeirsson, einn
besta knattspyrnudómara landsins
til fjölda ára. Og skyldi nú einhver
fá áminningu, tiltal eða jafnvel
rautt fyrir svo lúalegt brot? Neibb,
það var yfirdómarinn sjálfur sem
tæklaði og viti menn, hann er besti
vinur aðal.
Engin áminning
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum hefur Jóhannesi verið
sparkað. Fyrst var sagt að hann
hefði sjálfur sagt upp og þegar
því var vísað þráðbeint til föður-
húsanna og menn beðnir að sýna
þá formlegu uppsögn kemur ný
ástæða: Margra ára samskipta-
vandi milli Jóhannesar og hluta
dómaranefndar, já og dómaranna
sjálfra, samstarfsmanna og vina
Jóhannesar. Enginn geti unnið með
honum. Gott og vel, gefum okkur
að þetta sé rétt. Þeir sem þekkja
Jóhannes vita að hann liggur ekki
á skoðunum sínum og getur verið
gagnrýninn. Fyrst liggur svo sem
við að spyrja hvort það væri samt
ekki bara allt í lagi, hvort menn
eigi ekki alveg að þola gagnrýni?
Gagnrýnir menn geta haft jákvæð
áhrif. En ef menn þola ekki gagn-
rýnina liggur næst við að spyrja
hversu margar viðvaranir, já eða
áminningar, svo talað sé tungu-
mál sem menn ættu að eiga auðvelt
með að skilja, hefur Jóhannes feng-
ið? Fyrst samskiptavandinn hefur
staðið í mörg ár spyr maður hversu
oft hafi honum þá verið settur
stóllinn fyrir dyrnar? Hversu oft
hefur verið sagt: „Eitt orð í viðbót
og þú ferð í sturtu“, eða „ein upp-
ákoma enn og við neyðumst til að
sýna þér rauða spjaldið“? Svarið er
ekki flókið. ALDREI. Þvert á móti
hafa menn umbunað honum vel
unnin störf með metnaðarfullum
verkefnum á sviði dómgæslunnar,
klappað honum á bak fyrir dugnað,
metnað og ósérhlífni. Að öðru leyti
hafa samskipti verið lítil.
Flekklaus dómaraferill
En hvaða viðkvæmni er þetta?
Ræður ekki dómaranefnd? Hefur
hún ekki heimild til að vera á móti
þeim sem hún vill og vald til að
reka þá sem hún vill? Eflaust er
það svo en það sem er bara svo
ljótt í málinu er aðferðin og sú
staðreynd að Jóhannes fær enga
skýringu og hinn almenni knatt-
spyrnuáhugamaður ekki heldur.
Dómarinn er skilinn eftir úti í
kuldanum og almenningur stend-
ur eftir gapandi, eitt spurningar-
merki. Hreyfingin er stór og flestir
vita hver maðurinn er, ferill hans
sem dómari er flekklaus. Þess
meiri líkur eru til þess að brotið
hljóti að vera alvarlegt. Menn geti
ekki verið reknir fyrirvaralaust
með slíkan feril nema vegna mjög
alvarlegs brots og því hljóti málið
að vera þess eðlis að það þoli ekki
dagsljósið.
Ég hef átt fjölda símtala við
menn um málið og spurt hvað það
kunni að vera sem ekki þoli dags-
ljósið. Jóhannes er bróðir minn
en ég hef samt leyft mér að efast.
Hann hljóti eitthvað að hafa gert af
sér, annað en einhvern veginn að
vera fyrir þeim sem ræður. Sá sem
veit vill ekki ræða, aðrir þekkja
málið einungis af afspurn, þykir
málið leitt og muldra eitthvað um
að sagan segi að til séu ljótir tölvu-
póstar eða SMS sem Jóhannes
kunni hugsanlega að hafa sent frá
sér. Slíkt muni jafnvel hafa meitt
svo illa að ekki verði aftur tekið.
Ekki fylgir sögunni hvert þetta á
að hafa verið sent og hvers vegna.
Jóhannes þverneitar slíkum Gróu-
sögum.
Háttvísi?
Knattspyrnusamband Íslands er
ekki bara einhver samtök úti í bæ
eins og sagt er. Þetta er fjölda-
hreyfing þar sem tugir þúsunda
taka þátt, flestir hinna fylgjast
með. Vertíðin fer að byrja og allir
bíða spenntir. Það er sorglegt að
svo stór hreyfing, sem ætlast til að
hún sé tekin alvarlega, skuli ekki
ganga í svona mál og leysa, ég leyfi
mér að segja sjái ekki sóma sinn í
að taka fram fyrir hendur manna
sem gera mistök. Dómaranefnd er
eflaust skipuð vönduðum mönnum.
Suma þekki ég persónulega og af
góðu einu. Einhvers staðar hljóta
menn bara að hafa farið fram úr
sér, boltinn hefur undið upp á sig
og stolt einhverra kemur í veg
fyrir að menn sættist. Ég skora
á KSÍ, sem veitir verðlaun sem
kennd eru við háttvísi, að láta sig
málið varða. Knattspyrnan þarf
á kröftum Jóhannesar að halda
og hann vill eflaust endurheimta
áhugamál sitt og æruna.
Tveggja fóta tækling í boði KSÍ
Íþróttir
Svanur
Valgeirsson
rekstrarstjóri
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
með Miele
kr.: 24.900
Verðlistaverð kr.: 33.200
Tango Plus er vinsælasta ryksugan frá Miele
Miele ryksugurnar eru traustar
og kraftmiklar, með stillanlegu
röri og úrvali fylgihluta. Þær
hafa hlotið hæstu einkunn hjá
neytendasamtökum í Þýskalandi.
AFSLÁTTUR
Care Collection ryksugupokar
og ofnæmissíur eru sérstaklega
framleidd fyrir Miele ryksugur
Farðu alla leið með Miele