Fréttablaðið - 20.04.2011, Page 35
H A U S
MARKAÐURINN
Ú T T E K T
5MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2011
viðburðar að fjármálaráðherrar
og seðlabankastjórar allra helstu
landa heims sóttu heim vorfund
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Al-
þjóðabankans. Enda er það svo
að á þessum viðburðum þar sem
vélað er með heimskapítalið safn-
ast fólk saman til mótmæla. Hluti
föruneytis Íslands fylgdist með því
og gerði góðlátlegt grín á föstudegi
þegar mótmælendur hópuðust að bíl
sendiráðsins íslenska því þar inni
sat Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra og verður seint tal-
inn fulltrúi alþjóðakapítalsins. Lét
hann reyndar eftir sér hafa að mót-
mælendur vestra hafi verið ólíkir
því sem ráðamenn fengu að reyna í
búsáhaldabyltingunni, því þótt þeir
hafi hópast að bílnum og horft inn,
þá snerti enginn bílinn, ólíkt því
sem hér gerðist.
Vestra komust því allir ólemstr-
aðir frá mótmælendum en fjármála-
ráðherra og föruneyti brá heldur í
brún þegar þeir komu aftur heim
á hótel síðdegis, því þá var búið
að „tékka þá“ út af herbergjum
og henda persónulegum munum
þeirra. Þó áttu þeir bókuð herbergi
í þrjá daga.
ÓVÆNT VERKEFNALEYSI
Úr þessari fléttu leystist, menn
fengu herbergi sín á ný og smám
saman sína persónulegu muni.
Gengur ferðin nú stóráfalla-
laust fram á sunnudag þegar til
stóð að fara heim. Fljúga átti frá
Washington til Boston og þaðan
áfram heim til Íslands. Á síðustu
stundu aflýsti Delta Airlines flug-
inu og þótti félagið standa sig held-
ur slælega í að finna út úr áfram-
för þeirra sem með þeim áttu að
fara til Eplisins stóra. Hluti hóps-
ins fór til New York með öðru
flugfélagi en fjármálaráðherra og
aðstoðarmaður hans urðu eftir í
Washington. Þaðan héldu þeir svo
ekki fyrr en daginn eftir, mánudag,
aftur með Delta og til New York og
heim þar sem biðu úrlausnarefni
tengd kjarasamningum. Fátt er þó
svo með öllu illt að ekki boði nokk-
uð gott – ráðherrann og hans maður
fengu góðan nætursvefn í Washing-
ton þar sem dagskráin var tæmd og
komu því væntanlega endurnærðir
í slaginn heima.
K R A R Á Ð A M A N N A Í A N N A R S Á R A N G U R S R Í K R I F E R Ð T I L B A N D A R Í K J A N N A
Lilja Alfreðsdóttir hefur verið hjá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum síðan
í ágúst 2010. Hún er skipuð af ís-
lenskum stjórnvöldum og starf-
ar á skrifstofu Norðurlanda og
Eystrasaltsríkja. „Og hérna verð
ég þangað til í byrjun árs 2013,“
segir Lilja, sem tók frá nokkrar
mínútur til að setjast niður með
blaðamanni þrátt fyrir miklar
annir við að skipuleggja fundi og
afla gagna vegna heimsóknar ís-
lenskra ráðamanna í tengslum við
vorfund AGS og Alþjóðabankans
sem lauk núna á sunnudag.
„Þessa skrifstofu skipa átta sér-
fræðingar frá ríkjunum átta sem
mynda kjördæmið,“ segir hún, en
24 slík kjördæmi mynda fram-
kvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins. Í þeim tilvikum þar sem
mörg lönd deila kjördæmi skiptast
þau á um að veita því forsæti og
verma stól kjördæmisins í fram-
kvæmdastjórninni. „Til dæmis
eru Bandaríkin eitt kjördæmi og
hafa 16,5 prósenta vægi atkvæða
í framkvæmdastjórninni, meðan
við höfum að mig minnir 3,4 pró-
sent. Kjördæmin eru mynduð út
frá efnahagslegri vikt ríkjanna í
heimsbúskapnum,“ útskýrir Lilja.
Stærstu hagkerfin hafa því einn
stól hvert um sig, meðan smærri
ríki þurfa að sameinast um stóla.
„Okkar starf felst í því að fara
yfir þá vinnu sem er í gangi og
mál sem kynnt eru fyrir fram-
kvæmdastjórninni,“ segir Lilja
og kveður flest mál sem fyrir
framkvæmdastjórnina fara vera
samþykkt þar. „Menn eru búnir
að undirbúa mál þannig að sam-
staða og sátt sé um þau.“
Þegar kemur að fundum á borð
við nýafstaðinn vorfund þá segir
Lilja starfið að stórum hluta snú-
ast um að greiða leið stjórnvalda,
svo sem við að koma á fundum
með öðrum framkvæmdastjórum
hjá AGS. „Og eins að liðka til og
hafa milligöngu um samskipti við
annað starfsfólk sjóðsins.“
Lilja, sem áður var á alþjóða-
skrifstofu Seðlabankans, hefur
fjölskyldu sína hjá sér úti .
Eiginmaður hennar er í fram-
lengdu fæðingarorlofi, en er í leyfi
frá fjármálaráðuneytinu þar sem
hann annars vinnur. Þegar blaða-
maður hitti Lilju var hún nýkomin
frá því að skila öðru tveggja barna
þeirra í dagvistun í leikskóla sem
AGS er með fyrir starfsfólk sitt í
aðalstöðvum sjóðsins í Washington.
Pólitískri óvissu um stöðu efna-
hagsáætlunar Íslands hjá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum var að nokkru
eytt um síðustu helgi þegar ís-
lenskir ráðamenn fóru til fundar
við kollega sína frá öðrum lönd-
um á vorfundi sjóðsins í Wash-
ington D.C. í Bandaríkjunum. Þar
kom fram að áætlunin nyti enn
stuðnings Norðurlandaþjóða og
ekki merki um að viðsemjendur
landsins í Icesave-deilunni ætl-
uðu að reyna að bregða fæti fyrir
áætlunina.
Julie Kozack, yfirmaður sendi-
nefndar AGS á Íslandi, segir engu
að síður mat á hugsanlegum afleið-
ingum þjóðaratkvæðagreiðslunnar
um Icesave standa yfir hjá starfs-
fólki sjóðsins. Ekki sé þó annað að
sjá en að efnahagsáætlunin geti
haldið áfram og fimmtu endur-
skoðun hennar verði lokið innan
fárra vikna. „Einna helst horfum
við til þess hver áhrifin kunna
að verða á áætlunina um afnám
gjaldeyrishafta,“ segir hún. Ekki
þurfi hins vegar að endurskoða
áætlunina sjálfa, fremur að huga
að tímasetningum og því hversu
hratt hún nái fram að ganga. „Við
þurfum að sjá hvort upphafleg-
ar væntingar um tímasetningar
standa, því tímasetningar í afnámi
gjaldeyrishafta ráðast að stórum
hluta af getu ríkissjóðs til að fjár-
magna sig á alþjóðlegum fjár-
málamörkuðum.“ Hún segir hins
vegar almenna ánægju með áætl-
unina sjálfa. Skynsamlegt sé að
byggja hana ekki á niðurnegldum
tímasetningum heldur hafa hana
árangurs- og þrepaskipta.
Þá segir Julie Kozack að einnig
þurfi að greina hvort neitun í þjóð-
aratkvæðagreiðslunni um Ice-
save kunni að hafa efnahagsleg-
ar afleiðingar, svo sem á viljann
til beinnar erlendrar fjárfesting-
ar á Íslandi. „En við vitum af tölu-
verðri fjárfestingu í pípunum og
sjáum ekki að breytingar verði á
þeim áætlunum. Það er frekar að
við horfum til áhrifa á nýjar fjár-
festingar, en þær ráðast náttúru-
lega að stórum hluta á fjármögn-
unarkostnaði.“
Julie segir ljós í myrkrinu hvað
matsfyrirtækin Standard & Poor‘s
og Moody‘s varðar að þau hafi ekki
lækkað lánshæfi Íslands strax
eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna líkt
og þau höfðu boðað. „Mér virðist
allir ætla að taka sér tíma til að
meta hverjar mögulegar afleiðing-
ar atkvæðagreiðslunnar kunna að
verða.“
Almennt er hins vegar litið svo
á að afar vel hafi gengið í efna-
hagsáætlun Íslands, þó svo að
einstakir áfangar hafi tafist.
„Meginmarkmið áætlunarinnar
hafa náðst og eru að nást. Ef horft
er á stóru myndina og fram hjá
Icesave þá sést hversu mikill ár-
angur hefur í raun náðst á tveimur
og hálfu ári. Tekist hefur að stöðva
gengissveiflur krónunnar, Grettis-
taki hefur verið lyft í fjármálum
ríkisins og skuldum almennings
komið í sjálfbæran farveg. Stýri-
vextir hafa lækkað og stórstíg-
ar breytingar orðið í átt til minni
verðbólgu,“ segir hún og kveður
jafnframt hafa náðst góðan árang-
ur í endurskipulagningu fjármála-
kerfisins þótt þar séu enn allnokk-
ur verk eftir. „Víða hafa góðir sigr-
ar unnist þótt enn séu hlutir sem
fást þarf við, svo sem slagurinn
við atvinnuleysið.“
Enn er lítið farið að ræða hvað
tekur við að efnahagsáætlun-
inni lokinni, en henni á að ljúka í
ágúst næstkomandi. Vinna bæði ís-
lenskra stjórnvalda og AGS miðar
hins vegar við að áætluninni ljúki
þá. Julie bendir á að AGS verði enn
með annan fótinn á Íslandi eftir að
áætluninni lýkur, því tvisvar á ári
er farið yfir mál þjóða sem skulda
sjóðnum peninga.
Enn er verið að meta möguleg
áhrif kosninganna um Icesave
Yfirmaður sendinefndar AGS á Íslandi segir að koma verði í ljóst hvort
Icesave-kosningin hafi áhrif á afnám gjaldeyrishafta og erlenda fjárfestingu.
LILJA ALFREÐSDÓTTIR Á skrifstofu Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem mynda eitt
kjördæmi þeirra ríkja sem að AGS standa starfar Lilja Alfreðsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ
Starfar á kjördæmisskrifstofu okkar hjá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
JULIE KOZACK Yfirmaður sendinefndar AGS á Íslandi hafði í nógu að snúast vegna
vorfundar sjóðsins og Alþjóðabankans sem hófst í síðustu viku og lauk á sunnudaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ
Töluverðar vangavelt-
ur eru innan AGS um
hver kunni að verða af-
taki framkvæmdastjóra
sjóðsins, Dominique
Strauss-Khan, en kjör-
tímabil hans hjá sjóðn-
um rennur út á næsta
ári. Þrálátur orðrómur
er um að hann hyggist
bjóða sig fram til for-
seta í Frakklandi (og þá vænt-
anlega á móti Evu Joly, sem Ís-
lendingum er að góðu kunn).
Strauss-Kahn varðist hins
vegar fimlega spurn-
i ng u m u m má l ið á
blaðamannafundum og
í viðtölum sem hann
veitti í tengslum við
vorfundinn í síðustu
viku. „Aðalmálið núna
er að vara við sinnu-
leysi varðandi þau verk-
efni sem þjóðir heims
standa frammi fyrir í
efnahagsmálum,“ sagði hann og
kvaðst ekki ræða önnur mál en
þau sem sneru að vorfundinum
og AGS.
Fimlega varist
Þrátt fyrir vangaveltur ræðir Strauss-Kahn ekki
önnur mál en að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum snúa.
DOMINIQUE
STRAUSS-KHAN
Á vorfundi AGS var töluvert
rætt um þær breytingar sem
orðið hafa á vinnubrögðum þar og
vangaveltur um breytt hlutverk
hans í heiminum eftir lausafjár-
kreppuna 2008. Enda var það svo
að á fundi fulltrúa 20 helstu hag-
kerfa heimsins (G20) var ákveðið
um helgina að sjóðurinn hefði sér-
stakt eftirlit með skuldastöðu og
efnahagshorfum í mikilvægustu
hagkerfum heimsins. Þar eru
undir lönd á borð við Bretland,
Þýskaland, Bandaríkin, Japan,
Kína og evrusvæðið í heild.
Þá er Ísland dæmi um viðsnún-
ing hjá sjóðnum þegar kemur
að beitingu gjaldeyrishafta, en
þau eru nú viðurkennt verkfæri
í efnahagsstjórnun ríkja, í það
minnsta tímabundið.
Sjóðurinn stendur hins vegar
í mörgum erfiðum verkefnum
og virðist sem erfiðleikar séu
að aukast fremur en hitt í mörg-
um löndum, svo sem á Írlandi, í
Grikklandi, Portúgal og á Spáni.
Hjá sjóðnum eru því nokkrar
væntingar um að hampa megi
að minnsta kosti einni farsælli
áætlun þar sem hlutir hafi geng-
ið upp, en það er áætlun Íslands.
Herma heimildir blaðsins því að
jafnvel þótt Hollendingar eða
Bretar hefðu hug á því að reyna
að leggja stein í götu efnahags-
áætlunar Íslands vegna fram-
göngu landsins í Icesave-deil-
unni (sem reyndar hefur ekki
heyrst af) þá yrði lítil stemn-
ing fyrir því innan AGS og hjá
starfsmönnum sjóðsins.