Fréttablaðið - 20.04.2011, Page 52
20. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR
Rúnar Rúnarsson virðist
vera í miklum metum
á kvikmyndahátíðinni í
Cannes því kvikmynd hans
Eldfjall hefur verið valin
í tvo keppnisflokka. Þetta
er í þriðja sinn sem Rúnar
tekur þátt.
„Þetta er eins gott og maður þorði
að vona; þetta mun hjálpa mynd-
inni að ná til breiðari og stærri
hóps,“ segir Rúnar Rúnarsson
kvikmyndagerðarmaður. Í gær
var tilkynnt að kvikmynd Rúnars,
Eldfjall, myndi keppa í tveimur
flokkum á kvikmyndahátíðinni í
Cannes. Annars vegar keppir hún
í Directors’ Fortnight, þar sem stór
nöfn á borð við Martin Scorsese,
Francis Ford Coppola og George
Lucas komu fyrst fram á sjónar-
sviðið, og hins vegar um Camera
d’Or eða fyrir bestu fyrstu kvik-
mynd leikstjóra. „Síðarnefndu
verðlaunin eru hluti af aðalverð-
laununum en Directors’ Fortnight
er flokkur sem franska leikstjóra-
sambandið stendur fyrir,“ útskýrir
Rúnar. Þetta er í fyrsta skipti sem
íslensk kvikmynd keppir í flokki
Directors’ Fortnight síðan 1984,
þegar Atómstöðin eftir Þorstein
Jónsson keppti fyrir Íslands hönd.
Þetta er hins vegar ekki í fyrsta
skipti sem Rúnar fer á Cannes með
kvikmynd sína því hann hefur í tví-
gang keppt með stuttmyndir sínar.
Rúnar á enn smókinginn sem fram-
leiðslufyrirtækið ZikZak fjár-
festi í handa honum fyrir þremur
árum þegar Smáfuglarnir kepptu
um aðalverðlaunin í stuttmynda-
flokknum, en slíkur klæðnaður er
staðalbúnaður við hátíðleg tilefni
á frönsku Rivíerunni. „Ég held að
hann passi ennþá og það sé í góðu
lagi með hann. Ég hef allavega
ekki verið að lenda mikið í slags-
málum í honum, þarf bara að fara
með hann í hreinsun.“
Eldfjall er þroskasaga manns
sem er á leið á eftirlaun og þarf að
takast á við nýtt hlutverk í lífinu.
Með aðalhlutverkin fara þau Theó-
dór Júlíusson og Margrét Helga
Jóhannesdóttir en tónlistina gerði
Kjartan Sveinsson, oftast kenndur
við Sigur Rós.
Rúnar segir það einstaka upp-
lifun að frumsýna kvikmynd á
Cannes. „Það er virkilega gaman
að vera í stóru kvikmyndahúsi og
sjá eitthvað sem maður hefur séð
þúsund sinnum en í öðrum aðstæð-
um. Þá er þetta bara eins og maður
sé að sjá myndina í fyrsta skipti.“
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
myndin verður frumsýnd hér á
landi en gert er ráð fyrir því að það
verði í haust.
Rúnar er nú fluttur heim til
Íslands eftir áralanga dvöl í Dan-
mörku þar sem hann var við nám
en segir að það sé fyrst núna sem
hann átti sig á því hvar hann sé.
„Konan mín og dóttir eru búnar að
koma sér fyrir en ég hef náttúr-
lega verið á fullu að vinna mynd-
ina og er að átta mig á þessu hægt
og rólega. Ég hef til að mynda verið
að uppgötva að það eru engin kaffi-
hús sem ég get reykt á né neinn bar
og það var algjört kúltúrsjokk.
Hins vegar er auðvitað gaman að
vera kominn nálægt fjölskyldu og
vinum.“ freyrgigja@frettabladid.is
RÚNAR KEPPIR Á CANNES
TIL CANNES Rúnar Rúnarsson keppir í þriðja sinn á Cannes en í fyrsta skipti með
kvikmynd í fullri lengd. Eldfjall kemur bæði til greina sem besta fyrsta mynd og í
flokknum Directors’ Fortnight. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ólátabelgurinn Johnny Knoxville úr Jackass-mynd-
unum á von á sínu þriðja barni með annarri eigin-
konu sinni, Naomi Nelson. Þetta verður annað
barn þeirra saman en fyrir eiga þau hinn sextán
mánaða Rocko. „Ég og konan mín Naomi tilkynnum
með mikilli ánægju að við eigum von á öðru
barni í haust. Fimmtán ára dóttir mín Madis-
on er mjög spennt yfir þessu og sextán
mánaða bróðir hennar Rocko líka,“ skrifaði
Knoxville á Facebook-síðu sína. Knoxville
og fyrri eiginkona hans, Melanie Lynn
Clapp, deila forræðinu yfir Madison.
ÞRIÐJA BARNIÐ Johnny Knoxville á von á sínu
þriðja barni með eiginkonu sinni Naomi Nelson.
Rapparinn og tónlistarmaðurinn
Snoop Dogg hvetur kollega sína
innan tónlistarbransans til að
byrja að nota Twitter-samskipta-
vefinn ef þeir vilja ná árangri.
„Að vera með persónulegt sam-
band beint við aðdáendur hefur
ekkert með plötufyrirtækið að
gera heldur bara þig. Twitter
býður upp á snilldarsamskipti,“
segir rapparinn og bætir við að
varla sé hægt að ná árangri í dag
nema vera virkur á Twitter og
Facebook.
Hrósar
Twitter
Þriðja barn Knoxville
Vodafone IS 3G 10:32
Dýrð í Apphæðum!
Fermingartilboð í öllum verslunum
Stórsnjallir símar á frábæru verði auk úrvals
framúrskarandi fermingargjafa.
Prófaðu nýjustu tæknina og sjáðu framtíðina með
þínum eigin augum. Láttu ekki app úr hendi sleppa.
Nokia C5- 03
3.333 kr.
á mán. í 12 mán.
Fullt verð: 39.990 kr.
200 MB
á mán. fylgir
með í 6 mán.
2 miðar
í Sambíóin
fylgja
á meðan birgðir endast
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
44
76
0
4/
11
20%
afsláttur
í apríl af
Vivag
vörulínunni
Sápur, klútar,
gel, skeiðarhylki
og krem.
Lægra
verð
í Lyfju