Fréttablaðið - 20.04.2011, Side 56
20. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR44
sport@frettabladid.is
RHEIN-NECKAR LÖWEN komst upp að hlið Kiel í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar
í handknattleik í gær er Íslendingaliðið vann fínan útisigur á Grosswallstadt, 24-34. Löwen og
Kiel eru bæði með 47 stig í öðru sæti. Íslendingarnir í liði Löwen voru áberandi í gær en Róbert
Gunnarsson skoraði sex mörk, Guðjón Valur Sigurðsson fimm og Ólafur Stefánsson eitt.
Iceland Express-deild karla:
Stjarnan-KR 95-109
Stjarnan: Jovan Zdravevski 20, Renato Lindmets
20/13 fráköst, Marvin Valdimarsson 14/4 fráköst,
Justin Shouse 12/6 stoðsendingar, Kjartan Atli
Kjartansson 10/4 fráköst, Fannar Freyr Helgason
9/4 fráköst, Guðjón Lárusson 5, Daníel G. Guð-
mundsson 3, Dagur Kár Jónsson 2.
KR: Marcus Walker 40/6 fráköst/6 stoðsend-
ingar/8 stolnir, Finnur Atli Magnússon 20,
Brynjar Þór Björnsson 12, Pavel Ermolinskij 11/13
fráköst/9 stoðsendingar, Hreggviður Magnússon
9/7 fráköst, Skarphéðinn Freyr Ingason 7, Jón Orri
Kristjánsson 4/6 fráköst, Ólafur Már Ægisson 4,
Fannar Ólafsson 2.
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI Hreggviður Magnús-
son kom til KR frá ÍR fyrir tíma-
bilið og fagnaði fyrsta Íslands-
meistaratitlinum á ferlinum í
gær.
„Þetta er búin að vera löng bið
og tilfinningin er sykursæt. Það
er erfitt að útskýra þetta en ég er
í sæluvímu,“ segir Hreggviður.
„Við erum búnir að vera að
stefna að þessu í allan vetur. Við
vissum að við vorum með besta
liðið, það gekk á ýmsu fyrir jól en
eftir jól þá small þetta saman hjá
okkur. Þá var þetta bara spurn-
ing um að komast í úrslitakeppn-
ina og standa við stóru orðin. Það
gerðum við.“
„Okkar aðalsmerki er sterk
vörn og svo hraðinn. Þeir reyndu
að stilla upp og hægja á sókninni
en það gekk ekki upp nema í leik
númer tvö,“ segir Hreggviður
sem var í nýju hlutverki í vetur
og var ekki mikið í byrjunarlið-
inu. „Þetta var öðruvísi en ég var
vanur. Það er öðruvísi að byrja
ekki og vera ekki drifkraftur í
sókn og vörn. Ég þurfti svolítið að
finna mitt hlutverk í liðinu og það
gekk á ýmsu fyrir jól. Við náðum
að slípa okkur saman og ég fann
mitt hlutverk,“ segir Hreggviður.
- óój
Hreggviður Magnússon:
Ég er í
sæluvímu
HREGGVIÐUR Kom í KR fyrir tímabilið og
sér líklega ekki eftir því. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÖRFUBOLTI Teitur Örlygsson,
þjálfari Stjörnunnar, var daufur
í leikslok en hann er enn á ný
búinn að endurskrifa sögu körfu-
boltans í Garðabæ.
„Við áttum ekki möguleika því
KR-ingarnir voru rosalega góðir í
dag. Þeir hittu alveg svakalega og
þá er alveg vonlaust að eiga við
þetta. Við náðum að gera áhlaup
nokkrum sinnum og þá gerðum
við okkur seka um nokkur fárán-
leg mistök. Þeir voru það góðir
í dag að þeir létu ekki bjóða sér
það tvisvar,“ sagði Teitur.
„Marcus Walker var kannski
gæfumunurinn í þessu því við
vorum ekki með mann til þess að
dekka hann frekar en önnur lið
og hann varð bara betri og betri,“
sagði Teitur.
„Við tókum stórt skref í vetur
og næsta skref er bara Íslands-
meistaratitillinn.“ - óój
Teitur Örlygsson:
Við áttum ekki
möguleika
KÖRFUBOLTI Marcus Walker átti
ótrúlega leiktíð með KR og kórón-
aði hana með því að skora 40 stig
þegar liðið tryggði sér Íslands-
meistaratitilinn í Ásgarði í gær.
Það kom fáum á óvart að hann var
valinn maður úrslitakeppninnar,
eða „MVP“ eins og tíðkast í körfu-
boltaheiminum.
Walker skilaði ótrúlegum tölum
í gær og rétt að tíunda þær sér-
staklega hér. 40 stig, átta stolnir
boltar, sjö fiskaðar villur, sex frá-
köst, sex stoðsendingar og aðeins
einn tapaður bolti á tæpum 37 mín-
útum. Hann nýtti öll fimm skotin
sín utan þriggja stiga línunnar.
Sjálfur sagði hann eftir leik
langt síðan honum leið jafn vel og
eftir að titillinn var í höfn.
„Reynslan mín af háskólabolt-
anum var frábær en það gekk þó á
ýmsu hjá mér, bæði gott og slæmt.
Ég hef því ekki upplifað annað eins
í langan tíma. Það er sérstaklega
gaman að fá að upplifa þetta með
KR, lið sem er með ríka hefð og
sögu – líklega þá bestu á Íslandi.“
Hann segir að tímabilið hafi
verið frábært og hrósaði liðsfélög-
unum sínum. „Þeir hafa verið frá-
bærir, rétt eins og félagið sjálft
þar sem staðið er sérstaklega vel
að öllu því sem þarf að hlúa að.“
Fyrsti leikur hans með KR í
deildinni var einmitt gegn Stjörn-
unni. Þá átti hann ekkert sérstak-
an leik – skoraði innan við tíu stig
og fékk fimm villur. En síðan þá,
jafnt og þétt, hefur hann bætt sinn
leik.
„Ég er Kaninn og verð að skila
mínu. Mitt hlutverk er að gera það
sem þarf að gera til að liðið vinni
– annars verð ég sendur heim. Það
er það sem hvetur mig áfram.“
Því hefur verið fleygt að hann
sé einhver besti Bandaríkjamað-
ur sem hefur spilað á Íslandi og
honum þykir vænt um að heyra
það. „Maður má ekki láta sitt eftir
liggja. En ég reyni fyrst og fremst
að vera góð manneskja. Körfubolt-
inn er bara ákveðinn hluti af líf-
inu en ég vil bara vera góð mann-
eskja.“ - esá
Bandaríkjamaðurinn Marcus Walker var kosinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar:
Ég reyni bara að vera góð manneskja
FRÁBÆR Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, var að vonum ánægður með Walker eftir leik í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÖRFUBOLTI KR-ingar eru Íslands-
meistarar í körfubolta karla í
þriðja sinn á fjórum árum og í
tólfta sinn frá upphafi eftir sann-
færandi fjórtán stiga sigur á
Stjörnunni, 109-95, í fjórða leik
liðanna í úrslitaeinvígi Iceland
Express-deildar karla í Garða-
bænum í gær. KR hlupu yfir
Stjörnumenn í þessu einvígi og
allir þrír sigrarnir voru eins sann-
færandi og þeir gerast.
Bandaríski bakvörðurinn í KR-
liðinu, Marcus Walker, var hrein-
lega óstöðvandi eins og oft áður í
þessari úrslitakeppni og sá til þess
að Garðbæingar áttu aldrei mögu-
leika í kvöld. Marcus skoraði 18 af
40 stigum sínum í þriðja leikhlut-
anum þegar KR-liðið stakk einu
sem oftar af og var auk stiganna
með 8 stolna bolta, 6 stoðsendingar
og 6 fráköst.
Hrafni Kristjánssyni, þjálfara
KR-liðsins, tókst á fyrsta ári að
gera KR að tvöföldum meisturum
sem er eitthvað sem hefur ekki
gerst í 32 ár hjá KR.
„Ég er búinn að rífa upp fjöl-
skylduna einu sinni til tvisvar
og hef haft miklar áhyggjur við
og við. Ég hef alltaf fengið þann
skilning að fá að elta drauminn
sinn. Ég fékk síðan það traust frá
Palla, Bödda og stjórninni í KR að
fá að stýra uppeldisliðinu mínu í
bestu umgjörð á Íslandi og það eru
einstök forréttindi. Það er unaðs-
leg tilfinning að hafa náð að skila
titlinum heim,“ sagði Hrafn sigur-
reifur í leikslok. Þegar hann gerði
KR að bikarmeisturum í febrú-
ar hafði KR ekki unnið bikarinn
síðan 1991.
„Ég er eitthvað leiðbeinandi afl
í þessu en það eru leikmennirnir
sem vinna titlana. Þessir strákar
eru búnir að vera ótrúlega ein-
beittir,“ sagði Hrafn hógvær.
Hann lagði upp með að keyra
upp hraðann og það vafðist fyrir
engum sem sáu úrslitaeinvígið að
Stjörnuliðið átti enga möguleika á
því að stöðva KR-hraðlestina sem
skoraði sem dæmi 38 hraðaupp-
hlaupsstig í leiknum í gær.
„Við vorum að vinna í því allt
tímabilið að ná okkur á þennan
hraða,“ sagði Hrafn og eitt af lyk-
ilatriðinu í velgengni liðsins var að
finna Bandaríkjamanninn Marcus
Walker.
Fannar Ólafsson, fyrirliði KR,
var stóryrtur fyrir tímabilið en
hann stóð við stóru orðin. „Mér
fannst ekki vera þörf á því að
fela okkar markmið í september.
Við tókum það strax fram að við
ætluðum að vinna báða stóru titl-
ana. Við horfðum bara á hvern-
ig lið við vorum með, frábær-
an íslenskan hóp og svo þurftum
við bara að bæta við sæmilegum
Kana. Við duttum aldeilis í lukku-
pottinn þar. Við horfðum á það að
finna einhvern varnarmann sem
gæti stoppað bakkarana á Íslandi
en hann gerði nú aðeins meira en
það,“ sagði Fannar Ólafsson, fyrir-
liði KR, í léttum tón.
„Hrafni tókst að púsla saman
þessum risastóru egóum sem eru
í þessu liði og tókst að búa til svona
frábæra liðsheild. Það eru allir
með eitt markmið og það mark-
mið er að vinna titla. Hrafn er
einn besti þjálfari sem ég hef haft.
Hann er frábær þjálfari,“ sagði
Fannar sem hefur kynnst mörgum
góðum á löngum og sigursælum
ferli.
„KR hefur gert það áður að fá
KR-ingana aftur heim. Það hjálp-
aði svo mikið til að Hrafn er upp-
alinn í KR og hann þekkir félagið
og pressuna. Það var ekkert vesen
fyrir hann að labba þarna inn og
hemja þessi egó. Ég held að ég,
Hreggviður og Brynjar sjáum um
egóið fyrir alla deildina. Ég tek því
hattinn ofan fyrir Hrafni því þetta
var frábært tímabil hjá honum,“
sagði Fannar sem hefur nú orðið
Íslandsmeistari í öll fimm skiptin
sem hann hefur komist í lokaúrslit-
in og var að lyfta Íslandsbikarnum
í þriðja sinn frá og með árinu 2007.
ooj@frettabladid.is
Hrafninn flýgur hátt í Vesturbænum
Hrafn Kristjánsson gerði KR ekki bara að Íslandsmeisturum á sínu fyrsta tímabili með liðið því hann varð
fyrsti þjálfari KR í 20 ár til að gera liðið að bikarmeisturum og fyrsti þjálfari KR í 32 ár til þess að vinna
tvöfalt með liðið. KR-ingar innsigluðu Íslandsmeistaratitilinn með sannfærandi sigri á Stjörnumönnum.
MEISTARAR KR varð Íslandsmeistari í gær á sannfærandi hátt. KR er besta körfuknattleikslið Íslands í dag og vann báða stóru
titlana í ár. Hrafn Kristjánsson þjálfari vann einstakt afrek líkt og leikmennirnir. KR-ingar fögnuðu innilega í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON