Fréttablaðið - 09.05.2011, Page 42
9. maí 2011 MÁNUDAGUR26
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
S
A
5
31
35
0
2/
11
100%
HÁGÆÐA
MYSUPRÓTEIN
WWW.MS.IS
NÚ EINNIG FÁANLEGUR Í FERNU
PRÓTEINDRYKKURINN SEM
ÍSLENDINGAR FÁ ALDREI NÓG AF
HLEðSLA ER KJÖRIN FYRIR ALLA ÞÁ SEM TREYSTA Á
HOLLA OG UPPBYGGILEGA NÆRINGU EFTIR GÓðA ÆFINGU,
LANGT HLAUP EðA MILLI MÁLA. ÞAð ER ENGIN TILVILJUN
Að ÍSLENDINGAR FÁ ALDREI NÓG AF HLEðSLU.
HENTAR VEL FÓLKI MEð MJÓLKURSYKURSÓÞOL.
MJÓLKURSAMSALAN
NÝBRAGð-TEGUND
HANDBOLTI Aron Pálmarsson var í
aðalhlutverki þegar Kiel tryggði
sér þýska bikarmeistaratitilinn
með 30-24 sigri á Flensburg i
úrslitaleiknum í Hamborg í gær.
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel,
setti Aron í byrjunarliðið eftir
flotta innkomu Arons í undan-
úrslitaleiknum á laugardaginn
og Aron brást ekki traustinu.
Aron skoraði meðal annars
fjögur mörk í röð í fyrri hálfleik
þegar Kiel-liðið breytti stöðunni
úr 5-4 í 9-6 en eftir það var liðið
með ágætt tök á leiknum.
Aron var síðan markahæstur
í liði Kiel ásamt þeim Christi-
an Zeitz og Filip Jicha en þeir
skoruðu allir sex mörk. Aron
skoraði alls tíu mörk í þessum
tveimur leikjum og stóð sig mjög
vel að stýra sóknarleik liðsins.
Aron hefur nú unnið alla stóru
titlana á fyrstu tveimur tíma-
bilum sínum með Kiel.
Kiel landaði öruggum og
sannfærandi sigri í seinni hálf-
leiknum og það er í raun ótrúlegt
að Flensburg-liðið hafi náð að slá
út Íslendingaliðið Rhein-Neckar
Löwen í undanúrslitunum.
Alfreð gerði liðið einnig að
bikarmeisturum fyrir tveimur
árum og hefur nú unnið titil á
öllum þremur tímabilum sínum
með liðið. - óój
Alfreð Gíslason gerði Kiel að bikarmeisturum í gær:
Aron í aðalhlutverki
ARON OG FÉLAGAR BIKARMEISTARAR Aron Pálmarsson lék mjög vel í úrslitaleiknum
og hér fagnar hann titlinum í leikslok. NORDICPHOTOS/BONGARTS
FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson
var í byrjunarliði Hoffenheim
í þriðja leiknum í röð og laun-
aði þjálfaranum traustið með
því að vera maðurinn á bak
við bæði mörk liðsins í 2-1
endurkomusigri á Nürn-
berg á laugardaginn.
Philipp Wollscheid kom
Nürnberg í 1-0 á 16. mínútu
en Gylfi lagði upp jöfnunar-
markið fyrir Roberto
Firmino á 40. mínútu.
Brasilíu maðurinn
skallaði þá inn
aukaspyrnu
Gylfa frá hægri.
Gylfi skoraði síðan sigur-
markið sitt á 87. mínútu með
laglegu hægri fótar skoti
eftir að hafa verið fljótur
að átta sig í teignum.
Gylfi hefur þar með
skorað tíu mörk í
öllum keppnum á
tímabilinu. Gylfi
hefur skorað tvö
mörk í þremur leikj-
um síðan hann vann
sér sæti í byrjunar-
liðinu á ný.
- óój
Gylfi Þór Sigurðsson hetja Hoffenheim um helgina:
Maðurinn á bak við
endurkomu liðsins
GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON
Enska úrvalsdeildin
Aston Villa - Wigan 1-1
0-1 Charles N‘Zogbia (10.), 1-1 Ashley Young (16.)
Bolton - Sunderland 1-1
0-1 Zenden (45.+1), 1-1 Ivan Klasnic (87.)
Everton - Manchester City 2-1
0-1 Yaya Touré (28.), 1-1 Sylvain Distin (65.), 2-1
Leon Osman (71.)
Newcastle - Birmingham 2-1
1-0 Shola Ameobi, víti (36.), 2-0 Steven Taylor
(43.), 2-1 Lee Bowyer (45.)
West Ham - Blackburn 1-1
0-1 Jason Roberts (12.), 1-1 Hitzlsperger (78.)
Wolves - West Bromwich 3-1
1-0 Steven Fletcher (15.), 2-0 Adlène Guedioura
(28.), 3-0 Steven Fletcher (47.), 3-1 Peter
Odemwingie, víti (55.).
Stoke - Arsenal 3-1
1-0 Kenwyne Jones (28.), 2-0 Jermaine Pennant
(40.), 2-1 Van Persie (81.), 3-1 Walters )82.).
Manchester United - Chelsea 2-1
1-0 Javier Hernández (1.), 2-0 Nemanja Vidic
(24.), 2-1 Frank Lampard (68.).
STAÐA EFSTU LIÐA
Man. United 36 22 10 4 73-34 76
Chelsea 36 21 7 8 67-30 70
Arsenal 36 19 10 7 69-39 67
Man. City 35 18 8 9 54-33 62
Tottenham 35 14 14 7 51-44 56
Liverpool 35 16 7 12 54-39 55
Everton 36 12 15 9 50-44 51
Stoke City 36 13 7 16 46-44 46
Bolton 36 12 10 14 49-50 46
Fulham 35 10 15 10 43-36 45
Enska b-deildin
Norwich-Coventry 2-2
Aron Einar Gunnarsson spilaði allan leikinn.
Queens Park Rangers-Leeds 1-2
Heiðar Helguson skoraði eftir 30 sekúndur en
QPR-liðið tók við bikarnum í leikslok.
Reading-Derby 2-1
Brynjar Björn Gunnarsson sat allan tímann á
bekknum en Ívar Ingimarsson var ekki í hóp.
Reading mætir Cardiff í úrslitakeppninni.
Scunthorpe - Portsmouth 1-1
Hermann Hreiðarsson spilaði allan leikinn.
ENSKI BOLTINN
FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson og læri-
sveina hans í Manchester United
vantar aðeins eitt stig í lokaleikj-
um sínum á móti Blackburn og
Blackpool til þess að tryggja sér
Englandsmeistaratitilinn eftir að
hafa náð sex stiga forskoti á Chel-
sea með sigri í leik liðanna í gær.
Það var því ekkert skrýtið að leik-
menn og stjóri United fögnuðu
í leikslok eins og titillinn væri í
höfn.
Mikil spenna hafði byggst upp
fyrir toppslag Manchester United
og Chelsea á Old Trafford í gær
enda var þetta hálfgerður úrslita-
leikur um titilinn þar sem toppsæt-
ið var í boði fyrir það lið sem ynni
leikinn. Enginn átti þó von á að það
tæki heimamenn aðeins 36 sekúnd-
ur að skora fyrsta mark leiksins en
sú varð raunin þegar Javier Hern-
andez slapp í gegn eftir stungu-
sendingu Park Ji-Sung og skoraði.
Leikmenn Chelsea horfðu sjokk-
eraðir hver á annan og tóku sér
síðan allan fyrri hálfleikinn í að
ná sér af áfallinu. Á meðan setti
United á svið mikla sýningu með
þá Park og Wayne Rooney í farar-
broddi og yfirspilaði Chelsea stór-
an hluta fyrri hálfleiksins. Nem-
anja Vidic kom United í 2-0 á 24.
mínútu með skalla eftir frábæra
fyrirgjöf Ryan Giggs en mörkin
hefði getað orðið miklu fleiri áður
en Carlo Ancelotti fékk loksins
tækifæri til að vekja sína menn í
hálfleiknum.
Chelsea setti smá spennu í
leikinn með því að minnka mun-
inn með marki Franks Lampard
í seinni hálfleik en skaðinn var
skeður og eftir að hafa saxað á
forskot United undanfarnar vikur
verða Chelsea-menn að horfa á
eftir titlinum aftur norður til
Manchester.
„Við töpuðum leiknum á fyrstu
mínútunni. Við byrjuðum svo illa
að eftir það var mjög erfitt að
koma til baka og vinna þenn-
an leik. Við vorum betri í
seinni hálfleiknum en heilt
yfir var United betra liðið og
átti sigurinn skilinn. Það tók
okkur talsverðan tíma að koma
hausnum í lag eftir þetta
mark því við vildum alls
ekki byrja leikinn á því
að fá á okkur mark,“
sagði Carlo Ancelotti,
stjóri Chelsea.
„Við áttum að skora
sex mörk í fyrri hálfleik.
Við fengum frábæra byrjun og
liðið spilaði vel í dag,“ sagði Alex
Ferguson, stjóri Manchester Uni-
ted. Það getur fátt komið í veg
fyrir að félagið vinni nítjánda
meistaratitilinn og bæti þar með
met Liverpool. United var níu titl-
um á eftir Liverpool þegar Fergu-
son tók við liðinu árið 1986.
„Það er frábært að geta sagt
að við séum sigursælasta félagið
í enskum fótbolta. Það tók sinn
tíma að byggja upp réttar undir-
stöður fyrir félagið en síðan við
unnið fyrsta titilinn höfum við
bætt okkur, bætt okkur og bætt
okkur,“ sagði Ferguson kátur en
hann hrósaði líka stuðningsmönn-
unum mikið fyrir stuðning í leikn-
um enda hneigði stjórinn sig fyrir
þeim í leikslok. ooj@frettabladid.is
Síðasta stigið aðeins formsatriði
Manchester United á 19. Englandsmeistaratitilinn vísan eftir 2-1 sigur á Chelsea í toppslagnum í ensku
úrvalsdeildinni í gær. United lagði grunninn að sigrinum með tveimur mörkum og frábærri spilamennsku
í fyrri hálfleik en Javier Hernandez skoraði fyrsta mark leiksins eftir aðeins 36 sekúndna leik.
TAKK FYRIR, CHICHARITO Wayne
Rooney fagnar Javier Hernandez sem
hefur heldur betur reynst United-liðinu
vel á sínu fyrsta tímabili. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SIGUR Í HÖFN Rio Ferdinand og Edwin
van der Sar fagna. NORDICPHOTOS/GETTY