Fréttablaðið - 18.06.2011, Blaðsíða 4
18. júní 2011 LAUGARDAGUR4
Skýrsla sérfræðihóps
Þetta bann jafn-
gildir því að hækka
eiginfjárkröfu sjávarútvegs-
fyrirtækja langt upp fyrir það
sem eðlilegt er talið í öðrum
greinum.
SÉRFRÆÐIHÓPUR
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
GENGIÐ 16.06.2011
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
220,5547
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
116,59 117,15
187,83 188,75
164,39 165,31
22,039 22,167
20,924 21,048
17,896 18,000
1,4444 1,4528
184,74 185,84
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GLÆSILEGT HÁDEGISVERÐARHLAÐBORÐ Á MADONNU
ur, pasta, salat,Pizz
akað brauð, súpanýb
sköld kók í gleri.og í
w.madonna.isww
10 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið
HÓPKAUP.IS Í DAG
í krafti fjöldans
hópkaup.is
690 kr. GILDIR Í 48 TÍMA
1.660 kr.
Verð
58%
Afsláttur
970 kr.
Afsláttur í kr.
PI
PA
R\
BW
A
TB
P
•
SÍ
A
•
11
155
31
HÁTÍÐARHÖLD „Eitt af stóru verk-
efnunum fram undan er að móta
samfélagi okkar nýja stjórnar-
skrá, nýjan samfélagssátt-
mála um stjórnkerfi landsins og
grundvallar reglur,“ sagði Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra í
hátíðarræðu sinni á 17. júní og vís-
aði til þjóðfundarins í Lærða skól-
anum árið 1851 þar sem fyrsta til-
raunin til að semja stjórnarskrá
fyrir Ísland fór út um þúfur.
„Það er í raun merkilegt að nú
fyrst, 160 árum eftir að þjóðfund-
inum var slitið, skuli hilla undir
fyrstu alíslensku stjórnarskrána
á vettvangi stjórnlagaráðs. Fyrst
nú hafa handhafar valdsins stigið
það skref að fela óháðum full trúum
þjóðarinnar að móta nýjar leik-
reglur fyrir íslenskt samfélag, án
afskipta stjórnmálaflokka, fram-
kvæmdarvalds eða löggjafarvalds.“
Jóhanna sagði að á þjóðfundin-
um fyrir 160 árum hefði Trampe
greifi haft völdin í sínum höndum.
„Nú, árið 2011, er það Alþingi
Íslendinga sem getur brugðist
við tillögum stjórnlagaráðs og
sett þær í hendur fólksins í land-
inu. Minningu Jóns Sigurðssonar
verður vart meiri sómi sýndur en
með því að þegar tvær aldir eru
liðnar frá fæðingu hans rætist ósk
hans um íslenska stjórnarskrá –
stjórnarskrá fólksins í landinu.“
- gb
SJÁVARÚTVEGUR Frumvarp Jóns
Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra
um stjórn fiskveiða fær afar harða
gagnrýni frá sérfræðihópi sem Jón
skipaði.
Sérfræðihópurinn, sem tók til
starfa í apríl, tók á mismunandi hag-
rænum áhrifum af frumvarpi Jóns
sem lagt hefur verið fram á Alþingi
en bíður frekari umfjöllunar á þeim
vettvangi til haustsins.
Auðlindagjald á útgerðafyrirtæki
sem lagt er til í frumvarpinu getur
ekki talist hóflegt að teknu tilliti til
annarra þátta frumvarpsins, segir
í niðurstöðum sérfræðihópsins sem
skipaður var fimm mönnum. Ekki
sé hægt að horfa á gjaldtökuna í
afmörkuðu tilliti. „Þannig er gjald-
takan einungis hófleg sé hún skoðuð
ein og sér. Í samhengi við aðrar til-
lögur frumvarpsins getur hún hins
vegar ekki talist það,“ segja sér-
fræðingarnir.
Vara við valdi ráðherra
Í frumvarpi ráðherrans er reiknað
með nýtingarrétti á aflaheimildum
til fimmtán ára. „Sérfræðihópurinn
telur úthlutunartímann samkvæmt
frumvarpinu mjög skamman og að
óvissan um framlengingu, bæði eftir
15 og 23 ár brjóti í bága við inntak
samningaleiðar,“ segir hópurinn.
Þá varar hópurinn við breytingum
á fiskiveiðistjórnunarkerfinu sem
takmarki getu fyrirtækja til að nýta
sér tækifæri á markaði eða dragi úr
hvata til langtímahugsunar.
Mjög harðri gagnrýni er síðan
beint að þeim meginþætti frum-
varpsins að setja hluta aflaheimilda
í svokallaða potta sem úthlutað sé
af ráðherra. Séfræðingarnir segja
ráðherra með þessu öðlast víðtækt
vald. Stjórnmálamenn séu ekki ólík-
ir öðru fólki. „Þeir taka ákvarðan-
ir sem taka mið af eigin hag líkt og
aðrir,“ vara sérfræðingarnir við og
benda á að almenningur, sem eigi
lítilla hagsmuna að gæta, veiti lítið
aðhald en hagsmunahópurinn sem sé
samanþjappaður og eigi mikið undir
leggi sig fram „af öllu afli“.
Fjandsamlegt nýliðun
Sérfræðingarnir segja að takmark-
anir á framsali veiðiheimilda geri
nýliðun erfiðari í þeim hópi sem hafi
almennar veiðiheimildir. Bann við
veðsetningu muni gera fjármögnun
útgerðar dýrari. „Einungis þeir sem
hafa úr öðrum veðum að ráða eða
koma með mikið eigið fé inn í útgerð
eiga möguleika á að hefja útgerð
í flokki 1 [almenna flokknum]. Að
þessu leyti er frumvarpið bein línis
fjandsamlegt nýliðun,“ segir sér-
fræðihópurinn sem kveður framsal
kvótans stuðla að hagkvæmni. „Sér-
fræðihópurinn mælir því eindregið
gegn slíkum takmörkunum.“
Sterklega er varað við þeirri leið
að nota sjávarútveginn til að ná fram
byggðapólitískum markmiðum. „Á
þann hátt er dregið úr rekstrar-
legri hagkvæmni greinarinnar og
þar með samkeppnishæfni hennar
á alþjóðlegum mörkuðum,“ segja
sérfræðingarnir og undirstrika
að það sé pólitísk ákvörðun hvort
almannavaldið eigi að bregðast við
staðbundinni þróun sem veiki ein-
stök byggðar lög. Eðlilegt sé að gera
slíkt þá á samfélagslegum grunni
en ekki leggja það á herðar einnar
atvinnugreinar.
Ráðherra horfir til atvinnuöryggis
Bann við veðsetningu kvótans
er að sögn sérfræðinganna óráð-
legt. „Þetta bann jafngildir því að
hækka eiginfjárkröfu sjávarútvegs-
fyrirtækja langt upp fyrir það sem
eðlilegt er talið í öðrum greinum,“
segja þeir og bæta því við að eigin-
fjárstaða sjávarútvegsfyrirtækja
muni rýrna um fimmtíu prósent –
varlega áætlað. „Frumvarpið leiðir
því til þess að mun erfiðara verð-
ur fyrir fyrirtækin að halda áfram
rekstri og vart réttlætanlegt hjá
mörgum þegar raunverulegt verð-
mæti eigna verður langtum meira
en virði skulda.“
Hvorki náðist í Jón Bjarnason né
Lilju Rafney Magnúsdóttur, for-
mann sjávarútvegsnefndar Alþing-
is, í gær. Í tilkynningu frá sjávar-
útvegsráðuneytinu segir hins vegar
að það sé mat ráðherrans að það sé
„pólitísk ákvörðun, en ekki ein-
göngu hagfræðileg, hvernig fisk-
veiðistjórnuninni er háttað og
hvernig tekið er tillit til marghátt-
aðra aðstæðna. Má hér sérstaklega
nefna atvinnuöryggi íbúa í sjávar-
byggðunum og ýmis jafnræðis- og
mannréttindasjónarmið.“
gar@frettabladid.is
Falleinkunn á frumvarp Jóns
Hópur sérfræðinga segir frumvarp sjávarútvegsráðherra um stjórn fiskveiða fá ráðherra of víðtæk völd,
fela í sér óhóflegt auðlindagjald og veikja eiginfjárstöðu útgerða. Pólitískt og hagrænt mál segir ráðherra.
JÓN BJARNASON Frumvarp sjávarútvegsráðherra um stjórn fiskveiða fær harða útreið
hjá sérfræðihópi sem ráðherrann skipaði sjálfur til að meta hagræn áhrif frumvarpsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, skipaði í
lok mars sérfræðihóp til að fara
yfir hagræn áhrif frumvarps um
breytingar á stjórn fiskveiða. Í
hópnum voru Axel Hall hagfræð-
ingur, sem var formaður, Daði Már
Kristófersson hagfræðingur, Gunn-
laugur Júlíusson hagfræðingur,
Sveinn Agnarsson hagfræðingur
og Ögmundur Knútsson viðskipta-
fræðingur. Starfsmaður hópsins
var Stefán B. Gunnlaugsson
sjávarútvegsfræðingur.
Sérfræðihópur
sjávarútvegs ráðherra
„Við hverfum ekki aftur til þess
tíma að við getum unnið fisk í
hverjum firði og hverri vík – sá tími
er einfaldlega liðinn,“ segir Björn
Valur Gíslason,
alþingis-
maður VG og
meðlimur í
sjávarútvegs-
nefnd Alþingis,
um álit sér-
fræðihóps
sjávarútvegs-
ráðherra.
Björn
segir álitið í
takti við fyrri úttektir. Illa sé tekið
í að aflaheimildir séu fyrndar
þegar gildistíma laganna ljúki og
takmarkanir á framsalsheimildum.
„Kannski þurfum við að skipta
um það hugarfar að viðhalda
byggð í landinu með því að dreifa
aflaheimildum sem mest í það
að nýta arðinn af auðlindinni í að
skapa ný atvinnutækifæri.“ - gar
Skipt um hugarfar
BJÖRN VALUR
GÍSLASON
Mikilvægt að ósk Jóns Sigurðssonar um íslenska stjórnarskrá rætist:
Minningu Jóns sómi sýndur
GARÐUR Sveitarfélagið Garður
hefur selt hlut sinn í HS Orku
fyrir rúmar 90 milljónir króna.
Bæjarstjórnin hefur ákveðið að
verja fénu í ýmsar framkvæmdir
í bænum á næstu þremur árum.
Ætlunin er að byggja upp
tjaldstæði og sjósundaðstöðu,
bæta aðgengi fatlaðra og fjölga
atvinnutækifærum þeirra. Þá
á að kaupa nýjar tölvur og tæki
fyrir eldri borgara og unglinga.
Einnig er áætlað að laga og gera
göngustíga og gangstéttir og
byggja upp safnasvæði. - þeb
Garður selur hlut í HS Orku:
Fénu varið í
framkvæmdir
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
31°
24°
22°
15°
20°
16°
17°
17°
24°
17°
29°
29°
33°
16°
19°
19°
19°Á MORGUN
Hæg A-læg eða
breytileg átt.
MÁNUDAGUR
Fremur hægur
vindur.
13
11
5
12
7
6
5
11
10
11
4
4
10
6
9
5
6
7
12
2
3
5
13
9 9
7
10 13
9 10
9
11
FÍN HELGI! Helgar-
spáin er ljómandi
góð. Vindur verður
fremur hægur en
hætt er við að
hafgola láti á sér
kræla. Í dag má
búast við stöku
skúrum en á
morgun verður úr-
komulítið að mestu
og nokkuð bjart.
Hlýnar norðantil á
landinu.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
Fyrst nú hafa hand-
hafar valdsins stigið
það skref að fela óháðum
fulltrúum þjóðarinnar að
móta nýjar leikreglur.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
FORSÆTISRÁÐHERRA
„Þetta er hreinn áfellisdómur yfir
vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar og
því sem hún setur fram í frumvarp-
inu,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson,
sem situr í sjáv-
arútvegsnefnd
Alþingis fyrir
Framsóknar-
flokkinn,
um skýrslu
sérfræðihóps
sjávarútvegs-
ráðherra.
„Það er ein-
boðið að henda
þessu frumvarpi
til hliðar og hefja þessa vinnu upp
á nýtt á grundvelli samráðs allra
aðila,“ segir Sigurður. „Þá sýnir þetta
að svokallað minna frumvarp sem
þingið var að afgreiða var gert á
ákaflega hæpnum forsendum. Von-
andi hefur það ekki eins alvarlegar
afleiðingar og mann gæti grunað við
lestur skýrslunnar.“ - gar
Algjör áfellisdómur
SIGURÐUR INGI
JÓHANNSSON