Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.06.2011, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 18.06.2011, Qupperneq 52
18. júní 2011 LAUGARDAGUR24 1. Látrabjarg Vestasti tangi Íslands og stærsta sjávarbjarg í Atlantshafi, fjórtán kílómetrar að lengd og 441 metri á hæð, er tilkomumikill sjón. Það er ævintýraleg reynsla að ganga meðfram bjargbrúninni og skoða fjölbreytilegt fuglalífið, enda er aðgengið gott. Fjöldi skipa hefur farist við hamravegginn en þar var einnig unnið eitt frægasta björgunarafrek Íslandssögunn- ar, þegar Togarinn Dhoon strand- aði undir Geldingsskorardal árið 1947. 2. Rauðasandur Hvergi á landinu er hægt að kom- ast nær þeirri upplifun að liggja á sólarströnd að erlendum sið en á Rauðasandi, einni helstu náttúru- perlu landsins. Vert er að líta við á Franska kaffihúsinu á Rauðasandi og fá sér í svanginn. 3. Sjóræningjahúsið á Patreksfirði Saga sjórána við Íslandsstrend- ur er viðfangsefni Sjóræningja- safnsins, þar sem áhersla er lögð á að öll fjölskyldan finni sitthvað við sitt hæfi. Þá fara margir menn- ingarviðburðir fram í Eldsmiðju- salnum svokallaða. 4. Skrímslasafnið á Bíldudal Samkvæmt gömlum sögum og nýjum er Arnarfjörður eitt mesta skrímslasvæði á Íslandi. Skrímslasafnið á Bíldudal hefur það markmið að varðveita og kynna á lifandi hátt þessar sögur. Skrímsla ormurinn sem hringar sig utan um safnið vekur lukku, sér- staklega hjá yngstu gestunum, sem kunna því vel að klifra á honum. 5. Minjasafnið á Hnjóti Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti á Örlygshöfn er eitt magn- aðasta byggðasafn landsins. Þar má finna allt frá gamla innbúinu hans Gísla að Uppsölum upp í sov- éskar flugvélar. Þá hefur umhverfi safnsins heillað marga og til að mynda orðið kvikmyndagerðar- fólki hugleikið. 6. Melódíur minninganna á Bíldudal Enginn, hvorki tónlistarunnend- ur né aðrir, ætti að láta tónlistar- safn Jóns Kr. Ólafssonar á Bíldu- dal framhjá sér fara. Þar má finna margar af gersemum íslenskrar tónlistarsögu, meðal annars muni sem tengjast Hauki Morthens, systkinunum Ellý og Vilhjálmi Vil- hjálmsbörnum og Ingimar Eydal. 7. Dynjandi Dynjandisvogur fyrir botni Arnar- fjarðar er einstök náttúruperla. Þar er mesti foss Vestfjarða og einn fegursti foss landsins, Dynj- andi, þar sem áin fellur fram af fjallsbrúninni niður nær hundr- að metra bungumyndað þrep með smástöllum. Hafa margir haft á orði að fossaröðin minni helst á brúðarslör. 8. Brjánslækur Höfuðbólið Brjánslækur er við- komustaður daglegra áætlunar- siglinga ferjunnar Baldurs til Stykkishólms. Þar var löngum prestsetur og stendur falleg timbur kirkja frá árinu 1908. Fyrir ofan Brjánslæk er Surtarbrands- gil, með einhverjum best varð- veittu plöntusteingervingum sem finnast á Vestfjörðum, allt að tólf milljón ára gömlum. 9. Kaldbakur Fyrir klifurgjarna má mæla með Kaldbak, hæsta fjalli Vestfjarða, sem er 998 metrar á hæð. Eftir að hafa kvittað í gestabókina uppi á toppnum er tilvalið að dást að stór- fenglegu útsýninu yfir Arnarfjörð og Dýrafjörð. 10. Pollurinn á Tálknafirði Pollurinn, eins og litlu laugarn- ar við sundlaugina eru nefndar í daglegu tali, hefur borið hróð- ur Tálknafjarðar víða. Þar er oft gestkvæmt enda er hann fyrirtaks staður til að slaka á, sérstaklega í góðu veðri. Þá má einnig stinga sér til sunds í sundlauginni í Reykjar- firði og víðar. Fossar, fjöll og franskt kaffihús Á ferðalagi Fréttablaðsins um Arnarfjörð á Vestfjörðum og nágrenni kennir ýmissa grasa. Þar eru meðal annars söfn tileinkuð skrímslum og sjóræningum, stærsta sjávarbjarg landsins, þvottekta sólarströnd og mikil náttúrufegurð. Bylgjulestin Hrafnseyri við Arnar- fjörð er einn af áfangastöðum Bylgjunnar, sem fagnar 25 ára afmæli sínu í ár með ferð um Ævintýraeyjuna Ísland í allt sumar. 1 2 7 3 8 4 9 5 10 6 BREIÐAFJÖRÐUR Ísafjörður 25% afsláttur af öllu á eldhúsáhaldavegg AÐEINS ÞESSA HELGI Nýtt kortatímabil
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.