Fréttablaðið - 08.07.2011, Page 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011
Föstudagur
skoðun 16
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
8. júlí 2011
157. tölublað 11. árgangur
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
F eðgarnir Eiríkur Ingi Friðgeirsson og Frið-geir Ingi Eiríksson hjáG l b MYND/ÚR EINKASAFNI
Keðjuverkun heitir vísinda- og listasmiðja fyrir börn
sem stendur opin í Verksmiðjunni á Hjalteyri frá 13-17
á laugardag og sunnudag. Boðið verður upp á verkefni
sem byggjast á keðjuverkun. Byggðar verða risastórar
brautir fyrir kúlur og bolta sem koma af stað keðju-
verkun annarra hluta. Nánar á Facebook.
Friðgeir Ingi Eiríksson á Gallery Restaurant er tilbúinn að elda fyrir fleiri Japani á Fimmvörðuhálsi. Ævintýri
með Japönum
N ý r m a t s e ð i l l
F e r s k t
F a g m e n n s k a
N ý u p p l i f u n
F l j ó t l e g t
F y r i r þ i g !
föstudagurFYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 8. júlí 2011
● Work Shop opnar
● Á rúmstokknum
● Útihátíðarförðun
Edda Sif
Pálsdóttir
Heilluð af
fjölmiðlabransanum
Smjörvi
í sérmerktum
umbúðum á
20% lægra
verði ÉG ÓÐ
JÓGÚRT SEM KEMUR Á ÓVART
NÝTT
BRAGÐ
Einstakt á Íslandi
Ljóðasetur Íslands verður
vígt á Siglufirði í dag.
tímamót 18
Saknaði vatnsins
Dóra Takefusa er flutt til
Íslands eftir fjögur ár í
Kaupmannahöfn.
fólk 34
AFÞREYING „Það vantar svona
skemmtigarð á Íslandi,“ segir
Eyþór Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Skemmtigarðs-
ins.
Risavaxinn
skemmtigarður
rís nú í Vetrar-
garðinum í
Smáralind.
Garðurinn
verður á tveim-
ur hæðum og
kostnaður-
inn er um 500
milljónir krón-
ar. Íslenskir fjárfestar koma að
verkinu, en ekki fæst uppgefið
hverjir þeir eru.
„Þetta er risastór tækniver-
öld, með öllu því nýjasta sem er
að finna í heimi afþreyingar,“
segir Eyþór, en milligólf verður
byggt yfir Vetrargarðinn og
Skemmtigarðurinn því rekinn á
rúmlega 2.000 fermetra svæði á
tveimur hæðum.
- afb / sjá síðu 26
Breytingar í Smáralind:
500 milljónir
í skemmtigarð
DÝRALÍF Brúnin lyftist heldur betur
á Kristjáni Berg í fiskbúðinni
Fiskikónginum þegar sjómenn af
Þór HF færðu honum guðlax í gær.
Þessi sextíu kílóa fiskur slæddist í
trollið á 400 faðma dýpi, 230 mílur
úti af Reykjanesi.
Kristján vildi þó ekki vera einn
um dásemdina svo hann ákvað
að marinera fiskinn og bjóða við-
skiptavinum bita af guðlaxinum á
grillið í dag.
„Ég er búinn að vera í þessum
bransa síðan 1989 og þetta er í
þriðja sinn sem ég fæ guðlax á
borð til mín,“ segir Kristján, sem
lært hefur af mistökunum.
„Árið 1991 sendi ég eitt stykki
norður og borgaði 80 þúsund kall
fyrir að láta stoppa hann upp en
síðan hef ég ekki séð hann, þann-
ig að ég ætla bara að gefa hann
núna.“
Jónbjörn Pálsson, frá nytjasviði
Hafrannsóknastofnunar, segir það
afar sjaldgæft að guðlax slæðist í
trollin. „Það er nú ekki langt síðan
ég sá einn en hann var búinn að
vera tíu ár í frysti þannig að hann
var orðinn ósköp gugginn,“ segir
hann.
Hann beinir þeim tilmælum til
Fiskikóngsmanna að bandarískir
vísindamenn séu á höttunum eftir
bút úr guðlaxi til DNA-rannsókna.
Þeir telja að til séu fleiri tegund-
ir af þessum fallega fiski en þær
tvær tegundir sem vitað er um í
dag. - jse
Sextíu kílóa guðlax kom í troll frystitogara og verður gefinn í fiskverslun í dag:
Fallegur fiskur lagður í sósuna
GUÐI SÉ LOF FYRIR GUÐLAXINN Það var fallegur fiskur sem þeir Kristján Berg og Gunnar Ásgeirsson í fiskbúðinni Fiski-
kónginum skáru niður í marineringu í gær. Viðskiptavinum verslunarinnar býðst biti af fiskinum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
EYÞÓR
GUÐJÓNSSON
RÓLEGT Í dag verður hægur
vindur víðast hvar en hvassara
NV-til og austast. Súld eða
þokuloft við N-og A-stöndina.
Stöku skúrir SV-til. Hiti 7-16 stig.
VEÐUR 4
9
14
8
9
10
FANGELSISMÁL Fangaverðir lenda
ítrekað í lífshættulegum að stæðum
við störf sín segir Einar Andrésson,
formaður Fangavarðafélags
Íslands, sem starfar í Fangelsinu
Kópavogi. Hann segir stöðuna vera
hrikalega.
„Biðlistinn er langur og menn
hafa orðið að grípa til þess úr ræðis
að losa fyrr út léttari brotamenn,
það er að segja þá sem eru frekar
til friðs úti í samfélaginu, með því
að setja þá í samfélagsþjónustu
eða önnur úrræði. Eftir í fangels-
um verða miklu þyngri brotamenn
og staðan verður alltaf erfiðari og
erfiðari.“
Sprautufíklum hefur fjölgað
mjög í fangelsum landsins og
þeim fylgir árátta til að reyna að
smygla inn fíkniefnum. Þá eykst
hætta á alnæmissmiti, lifrarbólgu
C og fleiri sjúkdómum. „Þetta eru
hættulegri fangar á allan hátt. Þeir
svífast einskis til að ná sér í dóp og
það er miklu meira starf í kringum
þá.“
Einar segir að aðstæður myndu
breytast til muna með tilkomu nýs
fangelsis. Þá yrði hægt að flokka
fólk niður eftir aðstæðum, afeitra
fíkniefnaneytendur og vinna að því
að koma mönnum á beina braut og
bjarga þar með mannslífum. Það
sé því mikilvægt að áætlun fang-
elsisstofnunar um uppbyggingu
fangelsa gangi eftir sem fyrst og
það muni leysa mörg vandamál sem
fangaverðir standi frammi fyrir í
dag.
Engin svör hafa fengist frá ríkis-
stjórninni um hvenær hafist verður
handa við uppbyggingu nýs fangels-
is. Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er deilt um hvort fram-
kvæmdin yrði á vegum einkaaðila
eða ríkisins.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra segist vilja að ríkið reisi
og reki fangelsi og það væri ódýr-
ari kostur en rekstur einkaaðila.
Málið sé komið frá hans ráðuneyti
og á borð ríkisstjórnarinnar.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra vildi ekki ræða
málið við Fréttablaðið og vísaði á
innanríkisráðherra. Ekki náðist í
Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis-
ráðherra við vinnslu fréttarinnar.
- jss, kóp / sjá síðu 6
Lífshættulegar að-
stæður í fangelsum
Fangaverðir lenda reglulega í lífshættu í starfi sínu og kalla eftir úrbótum í
fangelsismálum. Hættulegri fangar fylla nú fangelsi landsins. Engin svör fást
frá ríkisstjórn um hvenær hafist verður handa við byggingu nýs fangelsis.
Elda í hraunsprungu
Um tuttugu milljónir fylgdust
með íslenskum feðgum elda á
glóandi hrauni fyrir japanska
sjónvarpsmenn.
allt
MENNING Ísland hefur ekki lokið
við tæmandi fornleifskrá, eitt
Norðurlandaríkjnna. Við gerð
rammaáætlunar þurftu forn-
leifafræðingar því að reiða sig á
heimildaskrá fornleifafræðinga
19. aldar.
Kristín Huld Sigurðardóttir,
forstöðumaður Fornleifaverndar
ríkisins, segir stöðuna sorglega
en ástæðan sé einföld; ekki hafi
verið veitt nauðsynlegum fjár-
munum til verkefnisins.
Til að ljúka fullnaðarskrán-
ingu þarf um 400 milljónir
króna, en verkið mun taka um
fimm ár. Til að vernda menn-
ingarminjar þarf að vita hvar
þær eru og í hvaða ástandi. „Það
er ótækt og óforsvaranlegt að forn-
leifafræðingum á 21. öld sé gert að
vinna við þessar aðstæður,“ segir
Kristín. Fornleifar 100 ára og
eldri gætu verið yfir 200 þúsund.
- shá / sjá síðu 11
Notuðust við 19. aldar skrár:
Engin tæmandi
fornleifaskráÖruggt hjá KR
KR komst áfram í
Evrópudeild UEFA en ÍBV
hefur lokið keppni.
sport 30