Fréttablaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 32
8. júlí 2011 FÖSTUDAGUR20 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Góður rennilás! Ég gef mig allan í þetta en neihei. Hvað vilja þær eiginlega? Það veit enginn... ekki einu sinni pabbi. Viljið þið hafa mig afsakaðan? Ég þarf að læra heima. Aftur? Já! Vinnuálagið er fáránlegt! Brjálað! Það er að naga mig að innan- verðu! Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott. En á hinn bóginn losna ég við langa og leiðinlega kvöldverði með ykkur... UML! Hvað heldur þú að hafi gerst? Pabbi hefur væntanlega vaknað til að gefa Lóu að borða og sofnað við það að koma henni aftur í rúmið. Já... Mamma mun vilja sjá myndir. Ég er þegar komin í málið. LÁRÉTT 2. teikniblek, 6. hljóm, 8. að, 9. sníkjudýr, 11. bókstafur, 12. lítið barn, 14. yfirstéttar, 16. til, 17. hlaup, 18. goð, 20. tveir eins, 21. nabbi. LÓÐRÉTT 1. lýð, 3. innan, 4. eyja í Miðjarðarhafi, 5. rá, 7. ríkur, 10. löng, 13. tækifæri, 15. óhapp, 16. siða, 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. túss, 6. óm, 8. til, 9. lús, 11. ká, 12. kríli, 14. aðals, 16. að, 17. gel, 18. guð, 20. yy, 21. arða. LÓÐRÉTT: 1. fólk, 3. út, 4. sikiley, 5. slá, 7. múraður, 10. síð, 13. lag, 15. slys, 16. aga, 19. ðð. Hvað kom eiginlega fyrir þig, Freyr? Þú hefur breyst! Sigur- vegari Sigur- vegari Allt sem þú þarft Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing Oft er áhugavert fyrir fyrir ungan laga-nema að fylgjast með umræðu um lög- fræðitengd málefni. Á undanförnum vikum hef ég tvisvar sinnum rætt um gæsluvarð- hald við vini og vandamenn. Annars vegar um gæsluvarðhald yfir manni sem grunað- ur er um kynferðisbrot í Vestmannaeyjum og hins vegar yfir 21 árs litháískri stúlku. VIÐMÆLANDI minn í Vestmannaeyja- málinu botnaði ekkert í því að maðurinn hefði ekki verið úrskurðaður í gæsluvarð- hald þegar málið komst upp. Það væri augljóst að maðurinn hefði átt að vera kominn bak við lás og slá fyrir löngu og hefði átt að dúsa þar síðan. Meiri sam- úðar gætti í garð litháísku stúlkunnar í umræðu við ættingja vegna gæsluvarð- halds stúlkunnar. Ættinginn velti fyrir sér af hverju unga konan væri vistuð á Litla-Hrauni. Ljóst væri að unga konan hefði átt mjög erfitt og angist hennar væri augljós í gerð- um hennar. Ættinginn velti því fyrir sér hvernig stuðningsneti útlendinga sem setjast að á Ísland væri háttað. Væri ekki réttast að styrkja tengsl útlendinga við Íslendinga og hjálpa þeim að aðlagast nýjum aðstæðum? UMRÆÐUR þessar vöktu upp vangaveltur um hvaða augum almenningur lítur gæsluvarðhald. Margir telja trúlega að markmið gæsluvarðhalds sé að loka þann grunaða frá samfélaginu. Hefndarþorstinn ræður augljóslega miklu og reglan um að fólk sé saklaust uns sekt sé sönnuð er látin sem vind um eyru fjúka. GÆSLUVARÐHALDI er oftast beitt í þágu rannsóknar máls. Um gæsluvarðhald er fjallað í XIV. kafla laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Skilyrði fyrir gæslu- varðhaldi eru almenn og sérstök. Almennu skilyrðin þurfa alltaf að vera fyrir hendi en að auki þarf eitt hinna sérstöku skilyrða að vera til staðar. Almennu skilyrðin eru fimmtán ára aldur, rökstuddur grunur, fangelsisrefsing, samsvörun milli gæslu- varðhalds og væntanlegrar refsingar og meðferð máls má ekki dragast óhóflega. SÉRSTÖKU skilyrðin eru: hætta á að rann- sókn verði torvelduð, hætta á flótta eða undankomu, endurteknum brotum eða sem vörn gegn árásum. Þá er fjallað um gæslu- varðhald með tilliti til almannahagsmuna ef sterkur grunur leikur á að afbrot hafi verið framið sem að lögum getur varðað tíu ára fangelsi. Erfitt getur verið að ákvarða hvenær almannahagsmunir eru til staðar og er það oft matskennt. MARKMIÐ gæsluvarðhalds er því aug- ljóslega ekki hefnd. Hver sá sem borinn er sökum um refsiverða háttsemi skal tal- inn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð! Um gæsluvarðhald BAKÞANKAR Mörtu Maríu Friðríks- dóttur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.