Fréttablaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 18
8. júlí 2011 FÖSTUDAGUR18
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
timamot@frettabladid.is
RAGNAR ARNALDS fyrrverandi ráherra er 73 ára.
„Ég hef alltaf sagt að menn ættu ekki að vera allt of lengi í sama
starfinu í pólitík, og hef hvatt mjög til endurnýjunar innan flokksins.“
Ljóðasetur Íslands á Siglufirði verð-
ur formlega vígt í dag. Athöfnin hefst
klukkan 15 og vígir Vigdís Finnboga-
dóttir fyrrverandi forseti setrið. Þá
munu ljóðskáld lesa upp úr verkum
sínum og boðið verður upp á léttar
veitingar. Ljóðasetrið er til húsa að
Túngötu 5. Þar var um árabil rekin
hattaverslun og saumastofa Guð rúnar
Rögnvaldsdóttur en húsið er nú í eigu
Þórarins Hannessonar, sem er for-
stöðumaður safnsins.
„Ég fékk hugmyndina fyrir þremur
árum en þá vantaði mig eitthvert hlut-
verk fyrir húsið. Ég hafði haldið hér
nokkur ljóðakvöld og síðar ljóða hátíð
á haustin með ýmsum ljóð- og tón-
skáldum landsins. Upp úr því spratt
Ljóðasetrið,“ segir Þórarinn. Sjálfur
hefur hann gefið út tvær ljóðabæk-
ur en er hógvær þegar talið berst að
eigin afrekum í skáldaheimum.
„Ég kalla mig nú ekki ljóðskáld, en
ljóðlistin hefur gripið mig síðustu ár.
Það var þörf á safni þar sem hægt er
að kynna sér sögu ljóðlistar á Íslandi
frá A til Ö. Þetta er eina safn sinnar
tegundar á Íslandi.“
Á Ljóðasetri Íslands er að finna
hátt á annað þúsund íslenskar ljóða-
bækur bæði gamlar og nýjar. Þá er
saga íslenskrar ljóðlistar frá því land
byggðist sögð á veggspjöldum og bæði
myndir og munir tengdir sögunni til
sýnis. Hægt verður að kaupa ljóða-
bækur á setrinu en einnig að tylla sér
niður og lesa.
„Bækurnar hafa mér borist að gjöf
síðustu ár. Í dag mun ég meðal ann-
ars gera grein fyrir góðri gjöf upp á
900 bækur. Gestir geta svo fengið sér
kaffi og kleinur og gluggað í bækurn-
ar,“ segir Þórarinn, en safnið verður
opið alla daga í sumar. Boðið verður
upp á lifandi viðburði á hverjum degi,
upplestur eða tónlist, barnadagskrá og
skáld koma í heimsókn.
„Þórarinn Eldjárn, gestur opnunar-
innar í dag, mun lesa upp úr sínum
verkum hér á morgun. Ég hef fund-
ið fyrir miklum áhuga og stuðningi
víða og nú er þetta allt að komast á
leiðarenda,“ segir Þórarinn og þakkar
stuðning þeirra sem hafa lagt honum
lið en að verkefninu standa einnig
Menningarráð Eyþings og Menningar-
sjóður Sparisjóðs Siglufjarðar. „Ljóða-
setrið verður enn ein rósin í hnappa-
gatið hjá Siglufjarðarbæ.“
heida@frettabladid.is
LJÓÐASETUR ÍSLANDS Á SIGULUFIRÐI: VÍGT VIÐ HÁTÍÐLEGA ATHÖFN Í DAG
Rós í hnappagat Siglufjarðar
ÞÖRF FYRIR SAFN LJÓÐABÓKA Þórarinn Hannesson hefur sett á fót Ljóðasetur Íslands á Siglufirði. Safnið verur vígt í dag við hátíðlega athöfn.
73
Minning
Elsku grallaraspóinn okkar og gleðigjafi
Vilhelm Þór Guðmundsson
var tekinn frá okkur í einni svipan.
Spurningum sem aldrei verður
svarað og „efin“ brjótast upp á yfir-
borðið hjá okkur öllum, ekkert fær
hann afturkallað og sorg okkar og
söknuður er mikill. Tilgangurinn
enginn.
Þegar stórfjölskyldan lá harmi
slegin og orkaði engu voru margar
hendur tilbúnar að létta undir í
hinu daglega lífi, matur var borinn
heim til okkar ásamt hlýju þéttu faðmlagi í forrétt sem
gaf okkur öllum orku til þess að takast á við næstu
klukkutímana. Megið þið öll eiga þakkir fyrir.
Sóknarprestur okkar Selfyssinga, séra Óskar Hafsteinn
Óskarsson, fær frá okkur sérstakar þakkir fyrir sitt
hlutverk í lífi okkar síðustu vikurnar. Nærvera þessa
manns er engu öðru lík. Kristni Jósepssyni og konu
hans Guðnýju Sölvadóttur hjá Fylgd sendum við
einnig einstakar þakkir fyrir þeirra vinnu og hlýhug.
Yndislegri einstaklinga en ykkur þrjú er vart hægt að
hugsa sér þegar fólk stendur í raunum sem þessum að
kveðja ungan son sinn, bróður og barnabarn.
Sjúkraflutningamönnum, lögreglumönnum, slökkvi-
liðsmönnum, björgunarsveitarmönnum og læknum
sem hlúðu að drengnum okkar strax í upphafi verðum
við ævinlega þakklát, ef ykkar hefði ekki notið við
hefðum við aldrei átt þennan dýrmæta sólarhring sem
við fengum til að knúsa, kyssa og kveðja.
Læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru starfsfólki á
gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut sendum
við einnig þakkir fyrir allt ykkar. Hjörtu ykkar eru stór,
viljinn mikill en máttur okkar allra er takmarkaður.
Við þökkum ykkur kærlega fyrir alla ykkar vinnu og
hlýju.
Til ykkar allra sem hafið gefið af ykkur á einhvern
hátt, hvort sem það er vinna ykkar, eyra til að hlusta á,
öxl til að gráta á, armur til að styðjast við, faðmlag til
að hughreysta, það megið þið vita vinir okkar,
ættingjar, kunningjar og bláókunnugt fólk að öll
hafið þið hjálpað okkur á þessum tíma og öll erum
við þakklát ykkur.
Við sem eftir lifum höldum minningunni um
glókollinn okkar á lofti og munum glaðværa,
brosmilda prakkarann sem söng allan daginn.
Við erum þakklát fyrir að hafa átt þig yndislegi
drengur þó endirinn hafi verið snöggur.
Við hittumst aftur síðar.
Elísa Björk Jónsdóttir
Guðmundur Friðmar Birgisson Íris Rán Símonardóttir
Guðný Sigurðardóttir Halldór Ág. Morthens
María Svava Andrésdóttir Birgir Sigurfinnsson
og systkini Vilhelms Þórs.
Yndislegur eiginmaður minn, faðir,
fósturfaðir, sonur og bróðir,
Einar Skagfjörð
Sigurðsson
húsasmíðameistari,
Fögruhlíð 3, Hafnarfirði,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans laugardaginn
2. júlí. Jarðsungið verður frá Garðakirkju fimmtu-
daginn 14. júlí. kl. 15.00. Jarðsett verður í kirkjugarði
Hafnarfjarðar.
Erla Sveinsdóttir
Telma Rut Einarsdóttir
Linda Björg Reynisdóttir Þórir Gunnarsson
Einar Örn Reynisson Kolbrún Ósk Elíasdóttir
Sigurbjörg Guðmundsdóttir Sigurður Skagfjörð
Birna Baldursdóttir
Eyjólfur Guðni Björnsson
Jóna Björk Sigurðardóttir Steindór Árnason
Bogi Sigurðsson Borga Harðardóttir
Auður Bryndís Sigurðardóttir
G. Brynja Sigurðardóttir
Anna Sólveig Sigurðardóttir Þórður Úlfar Ragnarsson
Aðalheiður Drífa Sigurðardóttir
Guðmundur Björn Sigurðsson Natalia Vico
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og systir,
Sigríður V. Jóhannesdóttir
Breiðuvík 18, Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
mánudaginn 4. júlí, verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 11. júlí kl. 13.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn og systkini.
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Líney Ólöf
Sæmundsdóttir
Álfabyggð 15,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, hinn 28. júní.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Furu- og
Víðihlíðar fyrir góða umönnun.
Hermann Jónsson
Erna Pétursdóttir Hallmann Óskarsson
Auður Björk Hermannsdóttir Jón Snorrason
Sæmundur Jón Hermannsson Sigrún Sigurgeirsdóttir
Brynjar Hermannsson Þóra Björk Kristjánsdóttir
Erla Hermannsdóttir
og ömmubörnin.
Ingibjörg H. Bjarnason var kjörin á þing þennan
dag fyrir 89 árum. Hún var fyrst kvenna til að
setjast á þing og tók sæti á Alþingi hinn 15.
febrúar árið 1923 fyrir sérstakt kvennaframboð.
Ingibjörg var þá 53 ára og skólastjóri Kvenna-
skólans í Reykjavík.
Ingibjörg gekk síðar í Íhaldsflokkinn, sem varð
Sjálfstæðisflokkurinn, og sat á þingi fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn til ársins 1930. Hún þótti hafa
svikið málstaðinn þegar hún gekk til liðs við karla-
flokk en barðist þó alltaf fyrir réttindum kvenna.
Ingibjörg lauk kvennaskólaprófi í Reykjavík árið
1882 og fór til framhaldsnáms til Kaupmannahafnar.
Hún lauk leikfimikennaraprófi fyrst Íslendinga árið
1892.
Ingibjörg var ein tólf kvenna sem samdi frumvarp
sem flutt var á Alþingi árið 1915 um þörf þess að
byggja Landspítala og var formaður Landspítalasjóðs
Íslands.Hún var einnig einn stofnenda Lestrarfélags
kvenna í Reykjavík. Þegar Ingibjörg lést árið 1941
arfleiddi hún Kvennaskólann í Reykjavík að öllum
eigum sínum. Heimild: wikipedia.org
ÞETTA GERÐIST: 8. JÚLÍ 1922
Fyrsta konan kosin á þing