Fréttablaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 22
2 föstudagur 8. júlí núna ✽ Útilegur og bálkestir augnablikið Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Haraldur Guðjónsson Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@365.is og Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 MARKAÐUR OG TÓNLIST Útiskemmtun verður á nýjum svölum Iðuhússins í Lækjargötu klukkan 14 á morgun. Í boði verður hönnunarmarkaður, lifandi tónlist og ljúffengar sumarveitingar. FRÆÐSLA - HEILBRIGÐI - FEGURÐ Viltu læra að verða snyrtifræðingur? Viltu læra að verða förðunarfræðingur? Viltu læra að verða naglafræðingur? Þá er Beautyworld fyrir þig! Allar nánari upplýsingar í síma 510 8080 www.beautyworld.is H e l g a L i l j a Magnús dóttir og Berglind Árna dóttir, f a t a h ö n n u ð i r, h a f a ákveðið að opna saman verslun og vinnustofu við Bergstaðastræti 4. Verslunin hefur hlot- ið nafnið Work Shop og verður aðeins starfrækt út ágúst. Helga Lilja og Berglind kynntust í gegnum Pop Up markaðinn vinsæla í júní og ákváðu í kjöl- farið að koma á laggirn- ar sameiginlegri versl- un og vinnustofu. Stúlk- urnar tóku við húsnæði verslunarinnar Royal Extreme og munu opna búðina með pompi og prakt í dag. „Við hittumst á Pop Up markaðnum í júní og fórum að tala um hvað okkur langaði að opna búð svona yfir hásum- arið. Við æstum hvor aðra svolítið upp í þess- um pælingum og á end- anum ákváðum við að demba okkur út í þetta, einn, tveir og bingó,“ út- skýrir Helga Lilja. Stúlkurnar tóku við húsnæði Royal Extreme og verða með vinnu- stofu á efri hæðinni en verslun á þeirri neðri. „Önnur hvor okkar, eða báðar, verður hér alla daga nema sunnudaga. Við munum selja flíkur úr sumarlínum okkar og svo verða einnig til sölu mjög falleg spænsk barnaföt sem vinkona Berglindar hannar. Við ætlum að reka búðina út ágúst en Berglind fer aftur út til Spánar í byrj- un september. Það er þó ekki útilokað að ég haldi áfram með húsnæðið og þá í samfloti við annan hönnuð,“ segir Helga Lilja. Í tilefni opnunarinn- ar verður efnt til gleð- skapar milli klukkan 17 og 22 í dag. Að auki verður veittur tíu pró- senta afsláttur á öllum vörum í versluninni. - sm Hönnunarbúðin Work Shop opnuð í dag: SUMARVERSLUN Í MIÐBÆNUM Ný verslun Helga Lilja Magnúsdóttir og Berglind Árnadóttir munu reka verslunina Work Shop í sumar. Búðin verður opnuð í dag og verður starfrækt út ágúst. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG Nicola Formichetti, hönnuður hjá Thierry Mugler og stílisti Lady Gaga, sagði í viðtali við tímaritið W að hann ynni helst ekki með feitu fólki. Ummæli hans hafa vakið hörð viðbrögð bæði innan og utan tískuheimsins. Í v i ð t a l i nu v i ð W s ag ð i Formichetti að hann væri vanur að klæða fyrirsætur og grann- vaxið fólk og kynni ekki við að vinna með feitu fólki. „Ég kom á staðinn og þá biðu mín þrír feitir karlmenn. Ég gekk út. Þetta var í síðasta sinn sem ég vann með feitu fólki, þetta var svo lágkúru- legt,“ sagði Formichetti. Eftir fjölmiðlastorminn í kringum orð Formichetti skrifaði hann á Facebook-síðu sína og sagði W hafa mistúlkað orð sín. Hann sagðist einnig hafa unnið með feitu fólki og nefndi í því sam- hengi söngkonuna Beth Ditto. - sm Ummæli Formichetti gagnrýnd harðlega: Vill ekki vinna með feitu fólki UMDEILDUR Nicola Formichetti sagði í blaðaviðtali að hann ynni helst ekki með feitu fólki. NORDICPHOTOS/GETTY HAMINGJUSÖM BRÚÐHJÓN Ofurfyrirsætan Kate Moss gekk í það heilaga með tónlistarmanninum Jamie Hince helgina sem leið. Moss klæddist kjól úr smiðju Johns Gal- liano og þótti glæsileg brúður. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.