Fréttablaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 8
8. júlí 2011 FÖSTUDAGUR8 – FULLT HÚS ÆVINTÝRA REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16 AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 8–18 • laugard. 10–16 • ellingsen.is STANGVEIÐI- DAGAR 30% afsláttur af Loop Classic Spey og Loop Evotec tvíhendum 20% afsláttur af öðrum veiði vörum PI PA R\ TB W A • SÍ A • 11 17 22 MENNING Fyrsti eþíópíski veitinga- staðurinn hér á landi var opnaður á Flúðum á sjálfan þjóðhátíðardag Íslendinga í júní síðastliðnum. Einn eigendanna, Azeb Kahssay, segir að Íslendingar hafi tekið þessari nýbreytni afar vel. „Margir hafa komið og fólk er bara ánægt með matinn,“ segir hún. Hún segist hafa orðið vör við að margir gestanna séu fólk sem búið hafi í lengri eða skemmri tíma í Afríku og vilji greinilega finna þefinn af afrískri matar- gerð á ný. En þeir sem eru að bragða í fyrsta sinn virðast taka matargerðinni vel. „Það er einna helst kryddið sem er ólíkt því sem Íslendingar eiga að venjast,“ segir Azeb. Þó er ekki allt jafn framandi því unnið er úr íslensku hráefni, en Azeb er til dæmis afar hrifin af íslenska lambakjötinu. Hún hefur búið hér á landi í þrjú ár og segir dvölina fara síbatnandi en það var vitanlega mikil raun fyrir hana að koma úr ys og þys milljónaborgarinnar Addis Ababa og fara í kuldann og fámennið á Íslandi. Hún vann á gróðrarstöð áður en hún og systir hennar Lem- lem ákváðu að koma veitingastaðn- um Minilik á koppinn. Minilik var keisari í Eþíópíu um þarsíðustu aldamót og er enn hampað sem þjóðhetju þar í landi. - jse Fyrsti eþíópíski veitingastaðurinn á Íslandi á Flúðum: Afrískur matur heillar SYSTURNAR Í MINILIK Azeb og Lemlem Kahssay sitja hér í Minilik á Flúðum til þjónustu reiðubúnar. EFNAHAGSMÁL Fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins lögðu fram til- lögu á síðasta borgarráðsfundi um úttekt á áhrifum fyrirhug- aðra breytinga á fiskveiðistjór- nunarkerfinu fyrir Reykjavík. Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir það skyldu borgaryfir- valda að skoða áhrif umræddra breytinga og koma niðurstöðu slíkrar úttektar til ríkisstjórnar og Alþingis áður en gengið er til breytinga á gildandi lögum. - shá Sjálfstæðismenn í borginni: Vilja úttekt fyrir Reykjavík STJÓRNSÝSLA Nefnd um endurskoð- un á lánastarfsemi Byggðastofn- unar leggur til að kannaðir verði kostir þess að fjármálastarfsemi Byggðastofnunar verði sameinuð starfsemi sparisjóðanna í kjölfar endurskipulagningar á spari- sjóðakerfinu. Þá verði samstarf við sjóði á borð við Nýsköpunar- sjóð atvinnulífsins og Frumtak einnig könnuð. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð- herra segir margt gott í tillögum nefndarinnar. Vinnan sé liður í úttekt á stjórnsýslunni svo hægt sé að bæta þjón- ustuna. Hún segir að til- lögurnar verði skoðaðar og niðurstöður kynntar með haustinu. „Markmiðið er að styðja betur við verk- efni stofnunar- i n n a r. Hú n hefur skýrt hlutverk samkvæmt lögum, en hefur ekki alveg haft tækin og tólin til að sinna þeim.“ Nefndin telur að lög og reglugerð um stofnunina verði að endur- skoða í heild út frá starfsemi hennar, en ekki eingöngu lána- starfsemi. Þá vill hún að athug- að verði hvort hægt sé að undan- skilja stofnunina frá þeim kröfum sem gerðar eru til eiginhlutfalls fjármálafyritækja. Stjórn stofnunarinnar hefur heimild til að veita ábyrgðir, en nýtir þær í litlum mæli í dag. Nefndin vill að skoðað verði hvort slíkt eigi að auka. - kóp Vilja endurskoða lög um Byggðastofnun en telja hana enn mikilvæga: Sameining við sparisjóði könnuð KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR SAMFÉLAGSMÁL Sterk, samtök gegn vændi og mansali, hafa fengið styrki frá Reykjavíkurborg og innanríkisráðuneytinu til að setja á fót forvarnaverkefni gegn vændi. Verkefnið er myndbands- keppni og fer í gang í haust. Allir undir 35 ára aldri geta tekið þátt. Kristbjörg Kona Kristjáns- dóttir, forsvarskona Sterk, segir samtökin leita eftir forvarna- auglýsingum gegn vændi og man- sali sem sýna megi í auglýsinga- tímum sjónvarps. - sv Forvarnaverkefni um vændi: Keppt um besta myndbandið UMHVERFISMÁL Prentmet í Reykja- vík hefur fengið vottun Norræna umhverfismerkisins Svansins. „Svansvottun prentsmiðjunnar tryggir að Prentmet er í fremstu röð hvað varðar lágmörkun nei- kvæðra áhrifa á umhverfi og heilsu,“ segir í tilkynningu fyrir- tækisins. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti Svans- leyfið í gær. Prentmet er sjötta íslenska prentsmiðjan sem hlýtur Svans- vottun og um leið með sautjánda Svansleyfið sem gefið hefur verið út hér á landi. - óká Prentmet fær Svansvottun: Sjötta prent- smiðjan vottuð SAMGÖNGUMÁL Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, er ósáttur við þær áætlanir Ögmundar Jónassonar innanríkis- ráðherra og Jóns Gnarr borg- arstjóra að hætta við byggingu nýrrar samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýrinni. „Ég harma það ef á að hætta við þessar framkvæmdir líka, ofan á allt annað,“ segir Kristján. „En það kemur svo sem ekki á óvart. Ég var búinn að hafa þetta lengi á tilfinningunni.“ Kristján segir að borgarfulltrúar í Reykjavík hafi sagt sér að undirbúningsfram- kvæmdir væru í ferli. „Vorið fyrir sveitarstjórnar- kosningarnar í fyrra lögðum við okkur fram við að breyta ýmsu í áætlanagerð eftir óskum borg- arinnar, og það gekk ekki eftir,“ segir hann. „Það má segja að þetta hafi ekki komið manni neitt á óvart, er varðar ákvarðanir hjá borginni.“ Kristján segist einnig hafa fyrir vara á því að ríkið sé að gefa eftir af landi sínu til borgarinnar. „Af fenginni reynslu set ég, vegna þess að brennt barn forðast eldinn, fyrirvara um hvað verið sé að semja um,“ segir hann. „Að ríkið sé ekki að gefa af sínum eigum fyrir einhverja skamm- tímasamninga.“ Kristján undirstrikar þó að hann vilji halda Reykjavíkurflug- velli í Vatnsmýrinni. „Ég er alveg glerharður á því að völlurinn eigi hvergi annars stað- ar að vera en í Vatnsmýri,“ segir hann. „En það má svo sem gera einhverjar breytingar á honum.“ Páll Hjaltason, formaður skipulags ráðs Reykjavíkur, segir umræðu undanfarinna daga á misskilningi byggða. Aldrei hafi staðið til að halda flugvellinum í Vatnsmýri til frambúðar. Verið sé að vinna nýtt aðalskipulag fyrir allt Reykjavíkursvæðið sem gildi fram til ársins 2030 og verði það kynnt í haust. „Í núgildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir því að fyrri braut- in fari 2016 og sú seinni árið 2024. Það hefur ekkert breyst við vinnslu nýs aðalskipulags,“ segir Páll og bætir við að engar aðrar hugmyndir liggi fyrir um Ósáttur við nýtt samkomulag Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, harmar áætlanir um aflýsingu byggingar samgöngu- miðstöðvar í Vatnsmýri. Formaður skipulagsráðs segir flugvöllinn ekki munu vera á svæðinu til frambúðar. VATNSMÝRIN Formaður skipulagsráðs Reykjavíkur segir hag borgarinnar betur borgið ef íbúðarbyggð rísi í Vatnsmýrinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KRISTJÁN MÖLLER Isavia (áður Flugstoðir) hefur greitt 55 milljónir króna vegna undirbúnings við framkvæmdir samgöngumiðstöðvarinnar sem átti að rísa í Vatnsmýri. Þar sem nokkur óvissa og breytingar á miðstöðinni voru gerðar jókst kostnaðurinn, að sögn Hjördísar Guðmundsdóttur, upplýsingafulltrúa Isavia. Kostnaðarliðirnir voru meðal annars þarfagreining á verkinu, frumhönnun, könnun á hljóðvistun og greining á umferðarskipulagi. Kostnaður Flugstoða var 55 milljónir PÁLL HJALTASON framtíðar veru flugvallarins, en Keflavík eða Hólmsheiði. Páll telur Keflavík ágætis kost, verði þar góðar tengingar. „Við erum að skipuleggja fram- tíðarbyggð í Reykjavík,“ segir hann. „Ástæðan er ekki sú að okkur sé eitthvað illa við flugvöll- inn, heldur sjáum við hag borgar- innar betur borgið með íbúðar- byggð í Vatnsmýrinni,“ segir Páll. sunna@frettabladid.is 1. Hvaða þýska flutningafyrirtæki var að opna skrifstofu í Reykjavík? 2. Hvaða verslanakeðja rekur nú tjaldstæði í Garðabæ? 3. Hvar mun hljómsveitin Quarashi halda sína síðustu tónleika? SVÖR: 1. DB Schenker 2. IKEA 3. Á Nasa VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.