Fréttablaðið - 08.07.2011, Síða 32
8. júlí 2011 FÖSTUDAGUR20
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Góður
rennilás!
Ég gef mig
allan í þetta
en neihei.
Hvað vilja þær
eiginlega?
Það veit
enginn...
ekki
einu
sinni
pabbi.
Viljið þið hafa
mig afsakaðan?
Ég þarf að læra
heima.
Aftur?
Já! Vinnuálagið er
fáránlegt!
Brjálað!
Það er að
naga mig
að innan-
verðu!
Fátt er svo
með öllu illt
að ei boði
gott.
En á hinn bóginn losna
ég við langa og leiðinlega
kvöldverði
með ykkur...
UML!
Hvað heldur þú
að hafi gerst?
Pabbi hefur væntanlega vaknað til að
gefa Lóu að borða og sofnað við það
að koma henni aftur í rúmið.
Já...
Mamma
mun vilja
sjá myndir.
Ég er
þegar
komin í
málið.
LÁRÉTT
2. teikniblek, 6. hljóm, 8. að, 9.
sníkjudýr, 11. bókstafur, 12. lítið barn,
14. yfirstéttar, 16. til, 17. hlaup, 18.
goð, 20. tveir eins, 21. nabbi.
LÓÐRÉTT
1. lýð, 3. innan, 4. eyja í Miðjarðarhafi,
5. rá, 7. ríkur, 10. löng, 13. tækifæri,
15. óhapp, 16. siða, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. túss, 6. óm, 8. til, 9. lús,
11. ká, 12. kríli, 14. aðals, 16. að, 17.
gel, 18. guð, 20. yy, 21. arða.
LÓÐRÉTT: 1. fólk, 3. út, 4. sikiley, 5.
slá, 7. múraður, 10. síð, 13. lag, 15.
slys, 16. aga, 19. ðð.
Hvað kom
eiginlega fyrir
þig, Freyr?
Þú hefur
breyst!
Sigur-
vegari
Sigur-
vegari
Allt sem þú þarft
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 120 stöðum um land allt. Nánari
upplýsingar á visir.is/dreifing
Oft er áhugavert fyrir fyrir ungan laga-nema að fylgjast með umræðu um lög-
fræðitengd málefni. Á undanförnum vikum
hef ég tvisvar sinnum rætt um gæsluvarð-
hald við vini og vandamenn. Annars vegar
um gæsluvarðhald yfir manni sem grunað-
ur er um kynferðisbrot í Vestmannaeyjum
og hins vegar yfir 21 árs litháískri stúlku.
VIÐMÆLANDI minn í Vestmannaeyja-
málinu botnaði ekkert í því að maðurinn
hefði ekki verið úrskurðaður í gæsluvarð-
hald þegar málið komst upp. Það væri
augljóst að maðurinn hefði átt að vera
kominn bak við lás og slá fyrir löngu og
hefði átt að dúsa þar síðan. Meiri sam-
úðar gætti í garð litháísku stúlkunnar í
umræðu við ættingja vegna gæsluvarð-
halds stúlkunnar. Ættinginn velti
fyrir sér af hverju unga konan væri
vistuð á Litla-Hrauni. Ljóst væri að
unga konan hefði átt mjög erfitt og
angist hennar væri augljós í gerð-
um hennar. Ættinginn velti því
fyrir sér hvernig stuðningsneti
útlendinga sem setjast að á Ísland
væri háttað. Væri ekki réttast
að styrkja tengsl útlendinga við
Íslendinga og hjálpa þeim að
aðlagast nýjum aðstæðum?
UMRÆÐUR þessar vöktu upp
vangaveltur um hvaða augum
almenningur lítur gæsluvarðhald.
Margir telja trúlega að markmið
gæsluvarðhalds sé að loka þann grunaða
frá samfélaginu. Hefndarþorstinn ræður
augljóslega miklu og reglan um að fólk sé
saklaust uns sekt sé sönnuð er látin sem
vind um eyru fjúka.
GÆSLUVARÐHALDI er oftast beitt í þágu
rannsóknar máls. Um gæsluvarðhald er
fjallað í XIV. kafla laga nr. 88/2008 um
meðferð sakamála. Skilyrði fyrir gæslu-
varðhaldi eru almenn og sérstök. Almennu
skilyrðin þurfa alltaf að vera fyrir hendi
en að auki þarf eitt hinna sérstöku skilyrða
að vera til staðar. Almennu skilyrðin eru
fimmtán ára aldur, rökstuddur grunur,
fangelsisrefsing, samsvörun milli gæslu-
varðhalds og væntanlegrar refsingar og
meðferð máls má ekki dragast óhóflega.
SÉRSTÖKU skilyrðin eru: hætta á að rann-
sókn verði torvelduð, hætta á flótta eða
undankomu, endurteknum brotum eða sem
vörn gegn árásum. Þá er fjallað um gæslu-
varðhald með tilliti til almannahagsmuna
ef sterkur grunur leikur á að afbrot hafi
verið framið sem að lögum getur varðað tíu
ára fangelsi. Erfitt getur verið að ákvarða
hvenær almannahagsmunir eru til staðar
og er það oft matskennt.
MARKMIÐ gæsluvarðhalds er því aug-
ljóslega ekki hefnd. Hver sá sem borinn
er sökum um refsiverða háttsemi skal tal-
inn saklaus þar til sekt hans hefur verið
sönnuð!
Um gæsluvarðhald
BAKÞANKAR
Mörtu Maríu
Friðríks-
dóttur