Fréttablaðið - 08.07.2011, Síða 4

Fréttablaðið - 08.07.2011, Síða 4
8. júlí 2011 FÖSTUDAGUR4 LÖGREGLUMÁL Rannsókn og bráða- birgðaniðurstaða krufningar sveinbarns sem fannst látið í sorp- geymslu við hótel í Reykjavík um síðustu helgi þykir benda til þess að barnið hafi fæðst lifandi og heil- brigt. Það hafi látist með voveif- legum hætti og að konan sem fæddi það beri ábyrgð á andláti þess. Eftir það hafi hún sjálf komið því fyrir í geymslunni og allt þetta hafi gerst án þess að aðrir hafi haft eða fengið um það vitneskju. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu. Konan var í gær úrskurðuð í farbann til 4. ágúst að kröfu lög- reglunnar. Hún var handtekin um síðustu helgi vegna rannsóknar á voveiflegu andláti barnsins sem fannst í geymslunni. Hún var lögð inn á sjúkrahús en færð til skýrslu- töku hjá lögreglu á miðvikudag. Þaðan fór hún í gæsluvarðhald á Litla-Hrauni. Í ljósi þess sem niðurstöður krufningar barnsins leiddu í ljós og kom fram við skýrslutöku yfir kon- unni þóttu ekki lengur fyrir hendi sömu skilyrði gæsluvarðhalds yfir henni og áður. Hæstiréttur felldi því gæsluvarðhaldsúrskurðinn úr gildi. Að sögn lögreglu verður kapp- kostað að ljúka rannsókn málsins sem fyrst og senda rannsóknar- gögn til ríkissaksóknara til ákvörð- unar. Þá verður gætt að því að konan fái læknisaðstoð og heil- brigðisþjónustu í samræmi við þarfir sem læknar meta. - jss Unga konan sem fæddi barn á Hótel Fróni laus úr gæsluvarðhaldi en úrskurðuð í farbann til 4. ágúst: Lifandi fætt en sett látið í sorpgeymsluna Rannsókn lögreglu beinist nú að því að upplýsa hvort mál konunnar kunni að falla undir 212. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þar segir: „Ef móðir deyðir barn sitt í fæðingunni eða undir eins og það er fætt, og ætla má, að hún hafi gert það vegna neyðar, ótta um hneisu eða sökum veiklaðs eða ruglaðs hugarástands, sem hún hefur komist í við fæðinguna, þá varðar það fangelsi allt að 6 árum.“ Allt að sex ára fangelsi GENGIÐ 07.07.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 221,2635 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 115,74 116,30 184,93 185,83 165,37 166,29 22,167 22,297 21,374 21,500 18,196 18,302 1,4286 1,4370 184,08 185,18 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is FARIÐ MEÐ SVARIÐ Í FERÐALAGIÐ! Handhæg t ferðakort Hljóðbók Arnar Jón sson les 19 þjó ðsögur Nýr ítarle gur hálendisk afli Hafsjór af fróðleik um land og þjóð Vegahandbókin sími: 562 2600Eymundsson metsölulisti 30.06.10-06.07.10 1. Sæti Gamla bókin tekin upp í á kr. 1.000 Aðeins í bókaverslunum - Ekki á bensínstöðvum VIÐSKIPTI Unnið er að endurskipu- lagningu skulda eigenda olíu- verslunarinnar Olís við Lands- bankann. Bankinn hefur ekki í hyggju að ganga að veðum og taka fyrirtækið yfir. Þeir Einar Benediktsson, fram- kvæmdastjóri Olís, og Gísli Baldur Garðarsson stjórnarformaður keyptu Olís í gegnum einkahluta- félagið FAD 1830 um mitt ár 2003. Félagið var þá skráð á hlutabréfa- markað. Eftir viðskiptin var það afskráð. Félag þeirra Einars og Gísla fékk 5,5 milljarða króna í erlendri mynt að láni hjá Landsbankan- um og var reksturinn lagður að veði. Skuldir hafa hækkað mikið í gengis hruninu. Viðræður, sem munu skammt á veg komnar, snúa að því að breyta erlendum skuld- um eigenda félagsins í krónur og hlíta dómi Hæstaréttar um vaxta- útreikninga. Lánið var upphaflega mynt körfu- lán til tveggja ára, það var með framlengingarheimild um fjögur ár til viðbótar og því á gjalddaga árið 2009. Samkvæmt ársreikningi 2007 hefur gjalddaginn verið fram- lengdur fram yfir næsta ár. Athygli vekur að eigendur Olís greiddu sér samanlagt 3,4 millj- arða króna í arð á árunum 2004 til 2009. Á sama tíma nam uppsafnað tap fyrirtækisins rúmum 1,1 millj- arði króna. Arðgreiðslur til FAD 1830 fyrir uppgjörsárið 2003 voru tæplega tvöfalt meiri en hagnaðurinn á sama tíma, tæpir 1,3 milljarðar króna. Þetta var fjórða hæsta arð- Landsbankinn vill ekki taka Olís yfir Viðræður standa yfir um endurútreikning á skuldum eigenda Olís. Skuldirnar eru í erlendri mynt og stökkbreyttust í gengishruninu. Eigendurnir greiddu sér 3,4 milljarða í arð á tímabili þegar uppsafnað tap var 1,1 millljarður króna. „Það má taka allan hagnað út úr fyrirtækjum ef þau eiga óráðstafað eigið fé,“ segir Bjarni Frímann Karlsson, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hann bendir á að stundum greiði eigendur fyrirtækja út arð úr félögum þótt óráðstafað eigið fé sé ekki til. Slíkt sé óleyfilegt. „Það má höndla með óráðstafað eigið fé fyrirtækja eins og eigendur þeirra vilja. Ef þetta eru gróin félög sem ganga af sjálfu sér er ekkert því til fyrirstöðu að þau greiði út allan hagnað sem arð hverju sinni,“ segir hann. Eigið fé Olís hefur verið jákvætt um 2,2 til 4,4 milljarða króna frá því nýir eigendur komu að því um mitt ár 2003. Í lagi að greiða hagnaðinn út EIN AF VERSLUNUM OLÍS Olís komst í hendur nýrra eigenda um mitt ár 2003. Landsbankinn lánaði þeim 5,5 milljarða til kaupanna. Lánið var í erlendri mynt og hefur stökkbreyst síðan þá. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM greiðslan sem fyrirtæki á Íslandi greiddi út árið 2004, að því er fram kemur í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Þá rann allur hagnaður næstu tveggja ára í vasa eigenda. Arður var ekki greiddur út á árunum 2007 og 2009. Á sama tíma og Olís tapaði tæpum sex milljörð- um árið 2008 námu arðgreiðslur hins vegar 625 milljónum króna. Erfitt er að átta sig á stöðu FAD 1830, þar sem félagið hefur aðeins birt þrjá ársreikninga, fyrir árin 2003, 2006 og 2007. Greiddar hafa verið út í arð samtals 250 milljónir króna til eigenda FAD 1830. Fram kom í bréfi frá Einari Benediktssyni, framkvæmdastjóra Olís, og lögmanninum Gísla Baldri Garðarssyni, til starfsmanna fyrir- tækisins í síðustu viku að þeir hafi nýtt arðgreiðslurnar frá Olís til að greiða niður skuldir FAD 1830. jonab@frettabladid.is VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 30° 25° 22° 22° 23° 24° 20° 21° 26° 20° 29° 25° 29° 20° 23° 22° 24°Á MORGUN víða 3-8 m/s, hvassara austast. SUNNUDAGUR Hæg breytileg átt. 9 9 8 8 7 9 12 10 10 14 11 2 4 4 5 3 2 3 5 5 2 3 7 8 9 13 11 12 12 10 11 9 SVALT NA-TIL Það verður rólyndis- veður næstu daga. Yfi rleitt hæg breyti- leg átt en eitthvað ákveðnara NV-til og austast. Stöku skúrir SV- og V-til og súld eða þoku- loft NA-til a.m.k. í dag. Kólnar lítillega á morgun. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður HEILBRIGÐISMÁL Læknislaust var á Vopnafirði í fjóra daga í júní vegna sparnaðaraðgerða hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands. Vopnfirðingar eru óánægðir með að ekki hafi verið fenginn afleys- ingalæknir í sveitarfélagið. Í bókun hreppsnefndar er bent á að 135 kílómetrar séu í næsta lækni og um háa fjallvegi að fara til að komast þangað. Því sé óvíst um öryggi sjúklinga. - þeb Sparnaður í heilbrigðismálum: Læknislaust á Vopnafirði BANDARÍKIN, AP Casey Anthony, 25 ára bandarísk kona sem var grunuð um að hafa myrt tveggja ára barn sitt, verður látin laus í næstu viku. Kviðdómur komst á þriðjudag að þeirri niðurstöðu að hún hefði ekki myrt barnið, þrátt fyrir að hafa ekki látið vita af hvarfi þess og logið að lögreglu um tildrög hvarfsins. Hún var handtekin árið 2008 og hefur setið í gæsluvarðhaldi meðan mál hennar hefur verið til umfjöllunar fyrir dómstóli. Hún var í gær dæmd í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa sagt ósatt, en gæsluvarðhaldið og góð hegð- un kemur til frádráttar. - gb Sýknuð af drápi barns síns: Látin laus strax í næstu viku CASEY ANTHONY Mál hennar hefur vakið hörð viðbrögð í Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FERÐAÞJÓNUSTA Stofnaður hefur verið Flugklasi á vegum Mark- aðsstofu ferðamála á Norður- landi. Klasinn er samstarfsverk- efni fyrirtækja og stofnana sem koma nálægt ferðaþjónustu á svæðinu og hefur það sem mark- mið að koma á reglulegu milli- landaflugi um Akureyrarflugvöll. Í tilkynningu segir að mikil vinna hafi verið lögð í uppbygg- ingu undanfarin ár, sérstaklega með það fyrir augum að fjölga ferðamönnum að vetri. Með flugi tvisvar í viku megi skapa 120 störf auka veltu fyrirtækja um tvo milljarða króna. - mþl Fjölgun vetrarferðamanna: Vilja reglulegt millilandaflug NEYTENDUR Mikill verðmunur er á vegabréfum milli Evrópu- landa. Það kostar mest að fá sér vegabréf í Belgíu, 2.759 íslenskar krónur, en ódýrast í Tékklandi, 396 krónur. Þetta kemur fram á vef Neytendasamtakanna. Á Íslandi kostar vegabréf 1.540 krónur og er það fimmta dýrasta landið sem könnunin nær til. Evr- ópska neytendaaðstoðin fram- kvæmdi könnunina og bárust svör frá 22 löndum. Þau lönd þar sem dýrara er að fá vegabréf en á Íslandi voru Holland, Finnland, Rúmenía og Belgía. - sv Verðmunur á vegabréfum: Ísland fimmta dýrasta landið VEGABRÉF Ísland er í fimmta sæti yfir dýrustu vegabréfin. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.