Fréttablaðið - 08.07.2011, Qupperneq 6
8. júlí 2011 FÖSTUDAGUR6
FANGELSISMÁL Fangar í fangelsum
landsins verða sífellt hættulegri
og erfiðari og fangaverðir eru í
stöðugri hættu vegna aðstöðu-
leysis, segir Einar Andrésson, for-
maður Fangavarðafélags Íslands,
sem starfar í Fangelsinu Kópavogi.
Fangaverðir lenda ítrekað í lífs-
hættulegum aðstæðum, þar sem
vinnutæki þeirra eru ekki full-
nægjandi miðað við það umhverfi
sem þeir starfa í. Fyrirsjáanlegt
er að slys verði ef stjórnvöld sjá
ekki að sér og heimila byggingu
nýs fangelsis.
„Staðan er hrikaleg,“ segir
Einar. „Biðlistinn er langur og
menn hafa orðið að grípa til þess
úrræðis að losa fyrr út léttari
brotamenn, það er að segja þá
sem eru frekar til friðs úti í sam-
félaginu, með því að setja þá í sam-
félagsþjónustu eða önnur úrræði.
Eftir í fangelsunum verða miklu
þyngri brotamenn og staðan verð-
ur alltaf erfiðari og erfiðari.“
Einar segir að fyrir nokkrum
árum hafi það heyrt til undan-
tekninga að sprautufíkill hafi
komið inn í fangelsi. Nú sé það
hending þegar fangar sem ekki
séu sprautufíklar komi inn.
„Sprautufíklum fylgir geysileg
árátta til að reyna að smygla inn
fíkniefnum. Einnig hætta varð-
andi alnæmissmit, lifrarbólgu C og
fleiri sjúkdóma sem þetta fólk er
útsett fyrir. Þetta eru hættulegri
fangar á allan hátt. Þeir svífast
einskis til að ná sér í dóp og það er
miklu meira starf í kringum þá.“
Einar segir að fólk sem komi til
afplánunar sé yngra og verr á sig
komið en áður. Konur séu að sækja
í sig veðrið og þeim fari sífjölgandi
í fangelsum landsins.
„Fangarnir eru í verri málum en
áður. Margir þeirra eru útlending-
ar, einkum á Litla-Hrauni. Þar eru
hættulegar klíkumyndanir í kring-
um harðsnúna menn, eins og gerist
í fangelsum erlendis, meðan þeir
sem eru utan klíkanna geta ekki
um frjálst höfuð strokið vegna
hótana og áreitni. Þá er reynt að
senda í önnur fangelsi, sem eru
fullsetin fyrir. Við höfum ekki
aðstöðu til að takast á við þetta,“
segir Einar.
„Það eina sem bjargar stöðunni
er að starfsfólkið er harðduglegt
og passar upp á félagana. Gríðar-
legt og stöðugt álag er hins vegar
ávísun á heilsubrest til lengri tíma
litið.“
Einar bendir á að með tilkomu
nýs fangelsis yrði miklu hægara
um vik að vinna með þessi mál,
auk þess sem fyrirsjáanlega næð-
ist miklu betri árangur við að
flokka fólk niður eftir aðstæðum,
afeitra fíkniefnaneytendur, vinna
að því að koma mönnum á beina
braut og bjarga þar með manns-
lífum.
Áætlun fangelsismálastofnunar
um uppbyggingu fangelsa á land-
inu liggi fyrir og hún þarf að fá
framgang sem fyrst, segir Einar.
Það muni leysa mörg vandamál
sem fangaverðir standi frammi
fyrir í dag.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra sagði í viðtali við Frétta-
blaðið að hans vilji stæði mjög
eindregið til þess að nýtt fangelsi
yrði reist og rekið af ríkinu, sem
væri mun ódýrari kostur heldur
en rekstur einkaaðila. Málið væri
nú komið frá sínu ráðuneyti á borð
ríkisstjórnarinnar.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra kvaðst ekki vilja
ræða málið við Fréttablaðið en vís-
aði á innanríkisráðherra.
Ekki náðist í Jóhönnu Sigurðar-
dóttur forsætisráðherra við
vinnslu fréttarinnar.
jss@frettabladid.is
Fangaverðir lenda
ítrekað í lífshættu
Erfiðir brotamenn og sprautufíklar eru nú meirihluti fanga í fangelsum lands-
ins. Fangavörðum stafar mikil hætta af föngunum þar sem vinnutæki þeirra
eru ekki fullnægjandi. Hættulegar klíkur myndast í kringum harðsnúna fanga.
Kona sem flutt var í Kópavogsfangelsið í vikunni reyndi að skera sig á háls
með kjöthníf. Hún var í fíkniefnavímu þegar hún kom inn. Í Kópavogs-
fangelsinu er engin aðstaða til að leita á fólki nema á salerni fangelsisins.
Illa gekk að hemja konuna við svo erfiðar aðstæður og hún rauk inn í
eldunar aðstöðu fanga, greip þar kjöthníf og ætlaði að skera sig á háls.
Konan virtist til alls líkleg, enda viti sínu fjær af völdum neyslu. Fanga-
verðir náðu að yfirbuga konuna og setja hana í einangrun. Nú þarf að vista
hana með annarri konu, sem hún hafði barið í höfuðið þegar báðar gengu
lausar. Sú stakk hana þremur hnífsstungum í höfuðið í átökunum.
Tekið skal fram að eldhúsáhöld í fangelsum landsins eru útbúin þannig
að af þeim stafi sem minnst hætta. Til að mynda eru oddar brotnir af
hnífum og bit þeirra slævt.
Kona reyndi sjálfsvíg með kjöthníf
FANGELSIÐ KÓPAVOGI Margir fangar eru sprautufíklar sem svífast einskis til að ná
sér í eiturlyf, segir formaður Fangavarðafélags Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Notaðir bílar
Bíldshöfða 10 - Sími 587 1000
BMW M5 507 hö. Verð 11.900 þús.
Nýskráður 02.2008 - ekinn 20 þús.
Leðurinnrétting, active sportsæti, Xenon ökuljós, Bluetooth símkerfi, 19”
álfelgur, vetrardekk á 18” álfelgum, aksturstölva, topplúga, rafmagnslokun á
hurðum, hiti og kæling í sætum o.m.fl. Innfluttur nýr af umboði.
Staðgreitt 8.900 þús.
9 AF HVERJUM 10 KONUM
FINNA FYRIR ÓÞÆGINDUM
Á KYNFÆRASVÆÐI?
RAKAAUKANDI
GEL, EYKUR OG
VERNDAR RAKASTIG,
VIRKAR EINNIG SEM
SLEIPIEFNI
FÆST Í APÓTEKUM
DÓMSMÁL Vegagerðin hefur verið dæmd í
Héraðsdómi Reykjavíkur til þess að greiða
Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf. um 40
milljónir króna vegna vanefnda á verk-
samningi og ógreiddra reikninga vegna
viðbótarviðgerða á Sæfara, Grímseyjar-
ferjunni svokölluðu. Einnig var henni gert
að greiða þrjár milljónir króna í máls-
kostnað.
„Þetta sannar það sem við höfum alltaf
sagt, að Vegagerðin hafi verið að fara
verulega illa með okkur,“ segir Eiríkur
Ormur Víglundsson, framkvæmdastjóri
vélsmiðjunnar.
Eiríkur Ormur segist vona að þetta séu
endalokin á illvígum og erfiðum deilum.
„Þetta hefur valdið fyrirtækinu miklum
skaða vegna álitshnekkis og ills umtals en
nú hefur komið í ljós að það var ekki við
okkur að sakast.“
Vegagerðin keypti árið 2005 ferjuna
Oleain Arann frá Írlandi með það fyrir
augum að breyta henni og gera við svo
hún stæðist allar kröfur sem gerðar eru til
ferja hér á landi. Í framhaldinu var gerður
verksamningur við vélsmiðjuna og hljóðaði
hann upp á 216 milljónir, um það bil. Fljót-
lega kom þó í ljós að sú upphæð hrykki
skammt, þar sem mun meiri breytinga var
þörf en kveðið var á um í útboðslýsingu.
Hafði þetta einnig í för með sér fimm mán-
aða töf á verklokum. - jse
Vegagerðin dæmd til að greiða Vélsmiðju Orms og Víglundar um 40 milljónir vegna Grímseyjarferju:
Olli vélsmiðjunni skaða og álitshnekki
GRÍMSEYJARFERJAN Reikningurinn fyrir Sæfara, eða Gríms-
eyjarferjuna, hækkaði enn vegna dóms héraðsdóms.
EFNAHAGSMÁL Hagsmunasam-
tök heimilanna krefjast þess að
stjórnvöld hefji undirbúning að
almennum leiðréttingum stökk-
breyttra lána og afnámi verð-
tryggingar eða skjóti málinu
undir dóm þjóðarinnar. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá
samtökunum.
Samtökin krefjast þess að
stjórnarfrumvarp verði lagt fyrir
Alþingi ekki síðar en á næsta
haustþingi og samþykkt fyrir
áramót.
Þá hafa samtökin hafið undir-
skriftasöfnun kröfu sinni til
stuðnings, á vef sínum, www.
heimilin.is. Kröfugerð undir-
skriftasöfnunarinnar er eftir-
farandi: „Í nafni almannahags-
muna krefjumst við undirrituð
almennrar og réttlátrar leiðrétt-
ingar á stökkbreyttum lánum
heimilanna og afnáms verðtrygg-
ingar.
Hafi stjórnvöld ekki orðið við
þessari kröfu fyrir 1. janúar 2012
jafngildir undirskrift mín kröfu
um þjóðaratkvæðagreiðslu um
kröfugerðina.“ - sv
Hagsmunasamtök heimilanna hefja undirskriftasöfnun vegna verðtryggðra lána:
Vilja leiðréttingu og afnám trygginga
Hefur þú breytt trúfélags-
skráningu þinni á liðnu ári?
Já 12,5%
Nei 87,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Vilt þú íbúðarbyggð í Vatns-
mýrinni?
Segðu þína skoðun á Vísir.is
Allt sem þú þarft
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 120 stöðum um land allt. Nánari
upplýsingar á visir.is/dreifing
KJÖRKASSINN