Fréttablaðið - 02.08.2011, Page 20
2. ágúst 2011 ÞRIÐJUDAGUR4
form fá þeir að keppa í bardaga og
þá taka við erfiðari æfingar. Bæði
Gísla og Ívari hlotnaðist sá heiður
að berjast við bardagamenn úr
öðrum æfingabúðum.
„Bardagamennirnir taka allt
mjög alvarlega og ákvað ég að
gera hálfgert grín að því. Sem
dæmi brosti ég í stað þess að vera
alvarlegur í myndatökum fyrir
bardagana og fyrir lokabardagann
rakaði ég hárið á mér á sama
máta og Georg Bjarnfreðarson og
barðist þannig. Þrátt fyrir upp-
átækin gekk sá slagur mjög vel og
ég vann með rotsparki í annarri
lotu.“
Frá heimkomu hefur Ívar unnið
á fullu en ólíkt honum hefur Gísli
æft af kappi. Síðasta sunnudag
keppti hann í Ironman í Eng-
landi. Ironman er keppni sem
haldin er um heim allan og er
heimsmeistara mót haldið að
lokum á Hawaii. Þar mun hann
reyna að synda 3,8 kílómetra,
hjóla 180 kílómetra og hlaupa heilt
maraþon á innan við tólf klukku-
stundum. Stefnir hann á að ferðast
heimshorna á milli og stunda
ýmsar íþróttir. „Ég hleyp mara-
þon í Berlín í september næstkom-
andi. Eftir það fer ég til Brasilíu
að læra Jiu Jitsu í hálft ár, síðan
er stefnan tekin á Kína að læra
Kung Fu í hálft ár og þaðan langar
mig mikið að fara til Indlands að
stunda jóga,“ segir Gísli, sem þarf
að innbyrða sjö þúsund kaloríur
á hverjum degi vegna þrotlausra
æfinga. hallfridur@frettabladid.is
Gísli stefnir á að æfa alls kyns bardaga-
listir og íþróttir í öllum heimshornum.
Allt sem þú þarft
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 120 stöðum um land allt. Nánari
upplýsingar á visir.is/dreifing
„Það er yndislegt að sameina hug-
leiðslu og göngu í íslenskri nátt-
úru,“ segir Arnbjörg Kristín Kon-
ráðsdóttir jógakennari, sem býður
upp á námskeið í gönguhugleiðslu í
Öskjuhlíðinni næstu fjórar vikurn-
ar. Hún segir bæði líkamlegan og
andlegan ávinning af gönguhug-
leiðslu sem birtist í endurnýjaðri
orku og betra jafnvægi, virkari
hugsun og mildara skapi.
Námskeiðin standa í fjórar
vikur og kosta átta þúsund krón-
ur. Þau eru á miðvikudögum og
hver tími er ein klukkustund.
Hægt er að velja um tvo hópa.
Fyrri hópurinn hittist á bílaplan-
inu við Perluna klukkan 16.30 og
seinni hópurinn klukkan 17.30.
Fyrstu tímarnir eru á morgun 3.
ágúst og skráning og nánari upp-
lýsingar eru í akk@samana.is
Út að hugleiða
Arnbjörg Kristín í jógastöðunni Trénu sem er tekin klesst upp við tré.
MYND/HRAFNHILDUR REYKJALÍN VIGFÚSDÓTTIR
Hávaxnar konur eru líklegri en
lágvaxnar til að fá krabbamein,
að því er kemur fram í nýrri
rannsókn.
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknar sem gerð var við Oxford-
háskóla í Bretlandi aukast líkur
á krabbameini hjá konum um
sextán prósent með hverjum tíu
sentimetrum umfram 1,53 metra
hæð.
Efni sem hafa áhrif á hæð
fólks virðast einnig geta haft
áhrif á myndun krabbameina,
samkvæmt rannsókninni, sem
náði til yfir milljón kvenna.
Krabbameinsrannsóknaráð
í Bretlandi hefur þó bent á að
hávaxnar konur þurfi ekkert að
óttast. Jane Green, sem fór fyrir
rannsókninni, sagði í samtali
við breska ríkisútvarpið BBC
að hæðin sjálf hefði ekki áhrif á
krabbamein en gæti hins vegar
verið merki um eitthvað annað.
Rannsakendurnir telja að vaxtar-
hormón geti haft áhrif á krabba-
mein.
Mikið magn vaxtarhormóna
leiðir til þess að fleiri frum-
ur geta stökkbreyst og orðið að
krabbameini.
Green viðurkennir þó að rann-
sakendur geti ekki fullkomlega
skýrt þessa tengingu á milli
hæðar og krabbameins. - mmf
Háar konur fá
frekar krabbamein
Hávaxnar konur eru líklegri til að þróa með sér krabbamein en skýringin er nokkuð
á huldu.