Fréttablaðið - 08.08.2011, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 08.08.2011, Blaðsíða 36
8. ágúst 2011 MÁNUDAGUR16 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta BAKÞANKAR Magnúsar Þorláks Lúðvíkssonar ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Ekki furða að þú sért á steinöld en ekki miðlífsöld. Þú fórst allt of langt norður og beygðir til vinstri þegar þú áttir að beygja til hægri! algeng mistök... Ný peysa? Það held ég nú! Þetta er skemmti- legt! Já, virkilega gott efni! Ljót! Takk fyrir! Nú hata ég bara heima- vinnu og skóla. ÓkeiÞú ert búinn að vera svo duglegur að ég bakaði handa þér súkkulaðibitakök- ur og sótti handa þér stórt glas af mjólk. Ég hata heimavinnu! Ég hata skólann! Ég hata líf mitt og allt sem... TÍMAVÉL Hvað er svona ógeðslegt við að kyssa barnið? Namm namm nag nag slurp slurp LÁRÉTT 2. barningur, 6. 49, 8. ringulreið, 9. útdeildi, 11. mannþvaga, 12. hald, 14. hani, 16. frú, 17. æðri vera, 18. léreft, 20. ónefndur, 21. lofttegund. LÓÐRÉTT 1. göngulag, 3. strit, 4. rýrnun, 5. læsing, 7. sælgæti, 10. spor, 13. starfsgrein, 15. dugnaður, 16. skordýr, 19. nafnorð. LAUSN LÁRÉTT: 2. basl, 6. il, 8. tjá, 9. gaf, 11. ös, 12. skaft, 14. krani, 16. fr, 17. guð, 18. lín, 20. nn, 21. óson. LÓÐRÉTT: 1. rigs, 3. at, 4. sjötnun, 5. lás, 7. lakkrís, 10. far, 13. fag, 15. iðni, 16. fló, 19. no. Henry Kissinger var utanríkisráðherra Bandaríkjanna í tíð Nixons og Fords. Hann var refur og talinn mun valdameiri en almennt gengur um utanríkisráðherra. Forsetarnir hunsuðu sjaldan tillögur Kissingers en það var ekki endilega vegna þess hve þær voru skynsamlegar. ÁÐUR en forsetinn tók ákvörðun skilaði Kissinger til hans minnisblaði þar sem mögulegar aðgerðir voru tíundaðar. Kiss- inger sleppti hins vegar ákveðnum stað- reyndum úr minnisblöðunum sem gerði það að verkum að ein aðgerð leit yfir- leitt betur út en hinar. Aðgerðin sem Kissinger mælti síðar með. Það var ekki augljóst, enda Kissinger lúmsk- ur, en með því að velja þær staðreyndir sem komu inn á borð til forsetans gat Kissinger í raun ráðið ákvörðun hans. ÞAÐ er gömul saga og ný að það sem ekki er sagt skiptir jafn miklu máli og það sem er sagt. Þegar færð eru rök fyrir afstöðu til að sannfæra er nefnilega yfirleitt sniðugt að nefna kostina við afstöðuna en sleppa göllunum. Vandinn er að slíkur málflutningur er í eðli sínu óheiðarlegur. Skákborð lífs- ins er ekki svart og hvítt. ÞAÐ er til að mynda óþolandi þegar stjórnmálamenn eða álitsgjafar halda lof- eða skammarræðu um nokkuð jafn flókið og fyrirkomulag peningamála án þess að minnast orði á mótrökin. Um flesta hluti gildir að bera þarf saman kosti og galla áður en hægt er að komast að niðurstöðu. Vegna gildismats geta tveir einstaklingar þar að auki komist að gjörólíkri niður- stöðu út frá sömu forsendum. MEÐ því að hylja aðra hliðina er sá sem talar í raun að móta afstöðu þeirra sem hlusta með falsi. Hægt er að kalla slíka hegðun hugmyndafræðilega forsjárhyggju því sá sem talar þykist þess umkominn að taka ákvörðun fyrir alla hina. HUGMYNDAFRÆÐILEG forsjárhyggja leynist því miður víða í íslenskri stjórn- málaumræðu. Nærtækasta dæmið er sennilega sú algenga skoðun að fráleitt sé að eiga í aðildarviðræðum við ESB enda ekkert þangað að sækja. Það er vitaskuld fráleitt að gefa landsmönnum tækifæri til að segja sitt um málið í þjóðaratkvæða- greiðslu með skýrum valkostum. HVATNING mín er því þessi: Leyfum þeim sem svona tala ekki að komast upp með það. Bendum á hina huldu hlið þegar hún kemur ekki fram. Biðjum um kostina þegar einungis gallarnir eru taldir upp og öfugt. Treystum fólki til að ákveða sig sjálft. Hugmyndafræðileg forsjárhyggja Frá 1957 Elsta starfandi fasteignasala landsins S í m i : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k • w w w . e i g n a m i d l u n . i s Reykjavík Sverrir Kristinssonlögg. fasteignasali Fossvogur – óskast Óskum eftir einbýlis- eða raðhúsi í Fossvogi. Allar nánari upplýsingar veitir Kjartan Hallgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 824-9093 Kjartan Hallgeirsson löggiltur fasteignasali Skeifan fasteignasala / Suðurlandsbraut 46 108 Reykjavík / Sími 568 5556 / skeifan@skeifan.is FR U M Eysteinn Sigurðsson / Löggiltur fasteignasali Seilugrandi 2 – 4ra herb. – Bílskýli – Laus strax Opið hús í dag mánudag á milli kl. 16 og 18 Um er að ræða fallega 4ra herb. 100 fm íbúð á 1. hæð ásamt stæði í bílageymslu á þessum eftir- sótta stað í vesturborginni. Fallegar inn- réttingar. Sér- inngangur af svölum. 3 svefnherbergi öll með skápum. Nýlegt flísalagt bað. Góðar svalir. Sérlega rúmgóð geymsla í kjallara. Áhv. lán frá Íbúðalánasjóði kr. 20.700.000.- sem má yfirtaka. Íbúðin er laus nú þegar. Verð 27,5 millj. Gjörið svo vel að líta inn. Bjalla 01-01. Það verður tekið vel á móti ykkur. LAUS STRAX

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.